Morgunblaðið - 14.12.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.12.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 2021 Vi Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andrés Magnússon andres@mbl.is Útvarpsstjóri segir að veruleg hækkun á framlögum úr ríkissjóði til Ríkisútvarpsins (Rúv.) skýrist af því að verið sé að bæta upp lækkuð framlög frá liðnu ári. Tekjur Rúv. hafi lækkað töluvert við það, en nú gangi lækkunin nokkuð til baka. Lagt er til í fjárlagafrumvarpi fyr- ir árið 2022 að framlög til Ríkis- útvarpsins verði aukin um 430 millj- ónir króna. Þau námu 4.655 milljónum á árinu sem er að líða en eiga skv. frumvarpinu að verða 5.085 m.kr., sem er ríflega 9% hækkun milli ára. Gert er ráð fyrir að þau hækki áfram á næstu árum um 4% á ári, vel umfram verðbólguspár. Stefán Eiríks- son útvarpsstjóri segir að í fyrra hafi Ríkisútvarp- ið staðið frammi fyrir tekjulækk- un, þar sem tekjuáætlun fjár- laga gerði ráð fyrir töluverðri lækkun vegna innheimtu útvarpsgjalds. „Þessari stöðu var mætt með margvíslegri hagræðingu í rekstri og fjárfestingu, þar á meðal fækkun starfsfólks. Sú lækkun á tekjum sem varð á fjár- lögum þessa árs hefur samkvæmt tekjuáætlun fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár gengið til baka að hluta,“ segir Stefán. Rekstur Ríkisútvarpsins er aðal- lega fjármagnaður með auglýsinga- sölu og útvarpsgjaldi, en Stefán seg- ir að það standi undir um 2⁄3 rekstrarkostnaðar. Í lögum um Rúv. sé kveðið á um að sá tekjustofn felist í árlegri fjárveitingu í fjárlögum, sem nemi að lágmarki áætlun fjár- laga um tekjur af útvarpsgjaldi. Spurður um það í hvað þessi tekju- aukning fari minnir útvarpsstjóri á að Ríkisútvarpið hafi samkvæmt lög- um og þjónustusamningi fjölmörg- um skyldum að gegna. „Sú hækkun á tekjum sem frumvarp til fjárlaga gerir ráð fyrir er nægjanleg til þess að standa undir kjarasamnings- bundnum launahækkunum og hækk- un verðlags sem við blasir hjá Rúv. líkt og öðrum í samfélaginu.“ Tekjulækkun gangi til baka - Aukin framlög til Rúv. fara í launahækkanir og verðbólgu - Útvarpsstjóri segir þau uppbót fyrir fyrri tekjuskerðingu Stefán Eiríksson Gengið var í gær frá kaupum Reykjavíkur- borgar á húsnæði Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Magnús Ásmundsson, hafnarstjóri Faxaflóahafna, undir- rituðu samninginn en viðstödd var Guðrún Krist- jánsdóttir myndlistarkona sem var fulltrúi Unu Dóru Copley, dóttur Nínu Tryggvadóttur lista- konu. Með samningnum mun borgin eignast Hafnarhúsið í heild sinni en hluti hússins mun hýsa nýtt safn Nínu Tryggvadóttur ásamt við- bótarrými fyrir Listasafn Reykjavíkur. Efnt verður til samkeppni um frekari nýtingu. Morgunblaðið/Eggert Mun hýsa nýtt safn Nínu Tryggvadóttur Borgin kaupir húsnæði Faxaflóahafna í Hafnarhúsinu Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Meirihluti hluthafa Laxa fiskeldis ehf. komst í gær að samkomulagi um að greiða atkvæði með kaupum norska félagsins Ice Fish Farm AS á Löxum en viðræður um mögulega yfir- töku hófust í sumar. „Þetta er sóknarsamruni til að sækja fram og byggja upp það sem hvort fyrirtæki fyrir sig hefur verið að vinna í og nýta þau tækifæri sem bjóðast,“ segir Guðmundur Gíslason, for- stjóri Ice Fish Farm, í samtali við blaðamann. Samruni eykur afkastagetu Ice Fish Farm, sem er móðurfélag Fisk- eldis Austfjarða, hefur verið í miklu samstarfi við Laxa Fiskeldi sem elur lax og rekur þrjár seiðaeldisstöðvar í Ölfusi og sjókvíaeldi í Reyðarfirði. Saman reka fyrirtækin laxaslát- urhús á Djúpavogi með fyrirtækinu Búlands- tindi. Guðmundur segir marga kosti felast í sam- einuðum kröftum fyrirtækjanna og samrun- inn muni meðal annars leiða af sér aukna yfir- sýn, meiri afkastagetu og betra skipulag, en nú þegar hafi samvinna fyrirtækjanna á Djúpavogi borið mikinn árangur. „Það er mjög mikilvægt að geta haft fulla stjórn á öllu ferlinu og fá að nýta öll tækifær- in. […] Þetta er stór, öflugur og fjárfestinga- frekur iðnaður. Því meira sem við getum not- að af framleiðslutækjum, þeim mun öflugri og meiri framleiðni næst út úr allri kökunni.“ Spurður út í mögulegar hagræðingar vegna yfirtökunnar ítrekar Guðmundur að um sóknarsamruna sé að ræða sem muni leiða til uppbyggingar frekar en eitthvað ann- að. „Þetta er sóknarbolti. Við erum að sækja fram og okkur vantar frekar starfsfólk en að fækka því. Við erum að setja upp fleiri svæði og stækka. Það er sókn í gangi.“ Að sögn Guðmundar er nú verið að byggja upp öflugar seiðastöðvar sem framleiða stór seiði svo hægt sé að koma þeim í sjóinn á far- sælan hátt og stytta eldistíma þar. Á þetta að minnka áhættu og tryggja betri árangur. Samruni legið í loftinu í rúmt ár Eins og áður sagði hefur samstarf milli fyrirtækjanna verið mikið en samruni hefur legið í loftinu frá því í nóvember 2020 þegar norska fiskeldisfyrirtækið Måsøval Eiendom AS, sem átti fyrir meirihlutann í Löxum fisk- eldi, keypti meirihluta hlutabréfa í Ice Fish Farm. Í samtali við Morgunblaðið fyrir um ári sagði Lars Måsøval, stjórnarformaður Måsø- val Eiendom, spurður um möguleika á sam- runa íslensku fyrirtækjanna, að ekkert lægi ljóst fyrir en kaupin væru háð samþykki norskra og íslenskra samkeppnisyfirvalda. Þyrftu niðurstöður þeirra að liggja fyrir áður en ákvörðun yrði tekin um framhaldið. Í júní á árinu sagði Guðmundur, þá stjórnar- formaður Ice Fish Farm, að viðræður milli fyrirtækjanna væru að hefjast og það ætti eft- ir að koma í ljós hvert þær myndu leiða. Sóknarfæri á Austurlandi í fiskeldi - Norska félagið Ice Fish Farm yfirtekur fyrirtækið Laxa fiskeldi - Samruninn legið í loftinu frá því í nóvember 2020 - Forstjórinn segir yfirtökuna sóknartækifæri og að uppbygging sé í kortunum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Laxar reka þrjár seiðaeldisstöðvar í Ölfusi og sjókvíaeldi í Reyðarfirði. Björn Zoëga, for- stjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð og fyrr- verandi forstjóri Landspítala, hef- ur verið ráðinn tímabundinn ráð- gjafi Willums Þórs Þórssonar heilbrigðis- ráðherra. Um hlutastarf er að ræða og mun Björn sinna ráðgjafastöðunni sam- hliða störfum sínum sem forstjóri Karolinska. Hann hefur þegar hafið störf. Mikil vinna er fram undan hjá nýj- um heilbrigðisráðherra en meðal þess sem liggur til grundvallar eru áherslur í heilbrigðismálum í nýjum stjórnarsáttmála, innleiðing þjón- ustutengdrar fjármögnunar og greining á framtíðarþjónustu Land- spítala. „Umtalsverðar breytingar á rekstri og yfirstjórn Landspítalans munu eiga sér stað á næstunni og því er gríðarlega mikilvægt að sér- fróðir aðilar með þekkingu á rekstri slíkrar stofnunar séu til að veita ráð við slíka vinnu,“ er haft eftir Willum Þór í tilkynningu Stjórnarráðsins. Til aðstoð- ar Willum - Veitir ráðgjöf Björn Zoëga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.