Saga - 2018, Side 79
Hið sama gildir um eftirmann Gissurar Einarssonar, Martein
Einarsson. Jón Egilsson segir frá herferð Jóns Arasonar í Skálholt og
aftöku hans og sona hans þar árið 1550 en síðar, þegar hann greinir
frá veikindum Marteins, bætir hann við að „þótti mönnum svo sem
vitneskja nokkur þar til, sem það væri ströffun fyrir aftöku þeirra
fegðanna, fyrst það vildi svo til“.51 Virðist hann líta á valdaskeið
Gissurar og Marteins sem hnignunarskeið og tekur fram að
um þennan allan áður greindan tíma varð svo mikil presta fæð, því
enginn vildi vígjast, því þeir sem að áttu foreldrana (á) lífi bönnuðu
þeim það, en þeir vígðust sem engan áttu að; varð þá einn prestur (að)
hafa iij eða iiij kirkjur, og urðu að vígja hvern sem þeir náðu, þegar
hann var með nokkru móti þar lærður til, að hann læsi.52
Þessi prestaskortur er greinilega forsenda þess að Jón sjálfur fékk
prestvígslu einungis 23 ára gamall en hann tengir það þó ekki sam -
an sjálfur.
Að þessu leyti má segja að tímasnið Biskupaannála sé hringlaga
þar sem segir fyrst frá velmektarskeiði kirkjunnar á dögum Stefáns
Jónssonar og Ögmundar Pálssonar, svo hnignunarskeiði undir stjórn
Gissurar Einarssonar og Marteins Einarssonar, en að lokum endur-
reisn hennar undir forystu Gísla Jónssonar. Hins vegar marka siða -
skiptin einnig rof í tíma þar sem kirkjan missir fyrri stöðu sína í
samfélaginu. Jón Egilsson er þó fáorður um breytingarnar sem urðu
frá fyrri siðum. Samkvæmt honum snerust þær einkum „um hjóna-
band prestanna, og öll pápisk helgihöld skyldi af leggja, framar en
í ordinantíunni standa, og söng með öllum ceremonium þar eptir
hegða“.53 Siðaskiptasaga hans fjallar fyrst og fremst um átök ein-
staklinga þar sem Jón hefur greinilega samúð með þeim sem urðu
undir, ekki síst Ögmundi frænda sínum.
Páll Eggert Ólason hafði mikið álit á Jóni Egilssyni og taldi hann
aldrei fara vísvitandi með ósannindi enda þótt sums staðar hefði
hann rangt fyrir sér „um smávægilega hluti“ sem sjá mætti af traust-
ari heimildum: „[Á] frásögn hans er sá blær sanninda, hispursleysis
hin sársaukafullu siðaskipti 77
51 „Biskupa-annálar Jóns Egilssonar“, bls. 104.
52 „Biskupa-annálar Jóns Egilssonar“, bls. 85. Þessi hugmynd um hrun presta-
stéttarinnar í kjölfar siðaskipta virðist ekki eiga við rök að styðjast. Í mesta lagi
fjórðungur presta í Skálholtsbiskupdæmi mun hafa lagt niður störf, sjá nánar
Hjalti Hugason, „Seigfljótandi siðaskipti. Viðhorf og staðalmyndir í siðaskipta-
rannsóknum“, Ritið 1 (2018), bls. 165–197, einkum bls. 186–189.
53 „Biskupa-annálar Jóns Egilssonar“, bls. 105.
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:45 Page 77