Saga - 2018, Side 113
sérhæfðar veiðar á fiski sem verka skyldi til sölu. Því miður vantar
rannsóknir á sambærilegum framleiðslustöðum á víkingaöld. Á
neyslu stöðum má einnig finna yfirgnæfandi hluta þorskbeina:
99,5% í Viðey eftir siðaskipti og yfir 90% í Skálholti.141 Þetta er
væntanlega fiskur sem innheimtur hefur verið í landskuld og önnur
gjöld, en rannsóknir vantar frá bændaheimilum til að bera saman
við elstu söfnin. Það eina sem mætti benda á er að hafi Hofstaðir í
Mývatnssveit fengið sinn sjófisk í formi gjalda á tíundu öld þá hefur
fiskverkunin ekki verið orðin jafn sérhæfð í þorski eins og Skálholts -
beinin sýna að hún var orðin á sautjándu og átjándu öld.
Annað atriði, sem hefur verið skoðað á nokkrum stöðum, er
stærð þorsksins sem veiddur var. Í Noregi hafa dýrabeinasöfn frá
Lófót verið höfð til marks um markaðsvæðingu sjávarútvegsins á
tólftu öld, ekki aðeins að þá verði þorskur allsráðandi heldur hafi
fyrst og fremst verið veiddur þorskur af ákveðinni stærð, þeirri sem
hentar best til verkunar, flutnings og markaðssetningar.142 Fleiri rök
hníga að stórauknu vægi fiskveiða í Noregi á tólftu öld og hneigjast
fræðimenn til að tengja það við aukna utanlandsverslun.143 Merki
um Atlantshafsþorsk (sem þarf ekki endilega að vera kominn frá
Norður-Noregi) sjást þó ekki í beinasöfnum frá London fyrr en eftir
1250.144
Margt bendir til að þróun í fiskverkun á Íslandi hafi verið í átt til
meiri stöðlunar þó umskiptin verði ekki tímasett eins skýrt og gert
hefur verið í Noregi. Frá Akurvík á Ströndum var róið um skeið í
hvar reru fornmenn til fiskjar? 111
141 Hambrecht, „Zooarchaeology and the archaeology of Early Modern Iceland“,
bls. 22.
142 Sophia Perdikaris og Thomas H. McGovern, „Viking Age economics and the
origins of commercial cod fisheries in the North Atlantic“, Beyond the Catch.
Fisheries of the North Atlantic, the North Sea and the Baltic, 900–1850. Ritstj. Louis
Sickling og Darlene Abreu-Ferreira, (Leiden: Brill 2008), bls. 61–90.
143 Alf Ragnar Nielssen, „Early commercial fisheries and the interplay among
farm, fishing station and fishing village in North Norway“, Cod and Herring.
The Archaeology and History of Medieval Sea Fishing. Ritstj. James H. Barrett og
David C. Orton (Oxford: Oxbow Books 2016), bls. 42–49; Arnved Nedkvitne,
„The development of the Norwegian Long-distance stockfish trade“, sama rit,
bls. 50–59; Helge Sørheim, „The birth of commercial fisheries and the trade in
stockfish in the Borgundfjord, Norway“, sama rit, bls. 60–70.
144 David C. Orton, James Morris, Alison Locker og James H. Barrett, „Fish for
the city. Meta-analysis of archaeological cod remains and the growth of
London’s northern trade“, Antiquity 88 (2014), bls. 516–530, hér bls. 527.
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:45 Page 111