Saga - 2018, Side 114
kringum 1200 og aftur á fimmtándu öld. Á seinna tímabilinu er mun
meira af þorski af þeirri stærð sem talin er henta best til skreiðar-
verkunar (60–110 sentimetrar); á því fyrra er meira af undirmáls -
fiski, þó ekki eins mikið og á nágrannabænum Gjögri.145 Má því
vera að þegar um 1200 hafi a.m.k. hluti vertíðarveiðanna í Akurvík
miðað að því að framleiða söluhæfa vöru, en síðar átti það hlutfall
eftir að aukast til muna. Þó að skreið væri verkuð fyrir markað þarf
ekki að vera að hún hafi verið flutt út. Fullt eins líklegt er að þró -
unin hafi verið svar við aukinni eftirspurn eftir staðlaðri skreið inn-
anlands. En stöðlunin var örugglega forsenda þess að Íslendingar
gátu flutt út skreið í stórum stíl á fjórtándu öld.
Þriðja atriðið sem fjallað hefur verið um er hvaða hlutar af fisk-
beinagrindinni finnast. Bein úr þunnildum og aftanverðum hrygg
benda á hefðbundna skreiðarverkun,146 og færist hún greinilega í
vöxt þegar á líður. Finnist hausbein á sama stað eru þau ekki úr
skreiðinni heldur hafa hausarnir verið fluttir sérstaklega, eins og
síðar var algengt um herta þorskhausa, eða að fiskurinn hefur verið
fluttur heill og þá óverkaður. Í beinasöfnum inn til landsins er mis-
jafnt hve mikið finnst af hausbeinum, en undantekningarlaust eru
þau miklu færri að tiltölu en beinin úr bol fisksins. Hausar hafa því
síður verið verslunarvara heldur notaðir við sjávarsíðuna. Bent hef -
ur verið á athyglisverðan mun sem er á því hvaða bein finnast úr
beinagrindum þorskfiska á þremur samtíða heimilum í Mývatns -
sveit á tíundu öld.147 Á smábýlinu Sveigakoti hefur eitthvað af fisk-
inum verið verkað með líkum hætti og skreið á seinni öldum, en
fiskurinn sem fluttur var til höfuðbólsins Hofstaða og góðbýlisins
Hrísheima hefur annaðhvort verið þurrkaður með öðrum hætti eða
jafnvel fluttur blautur því þar var mun meira af hausbeinum.
helgi skúli kjartanss. og orri vésteinsson112
145 krivogorskaya o.fl. „Fish bones and fishermen“, bls. 41–42; Colin P. Amund -
sen, Sophia Perdikaris, Thomas H. McGovern, yekaterina krivogorskaya,
Matthew Brown, konrad Smiarowski, Shaye Storm, Salena Modugno, Mal -
gorzata Frik og Monica koczela, „Fishing booths and fishing strategies in
medieval Iceland. An archaeofauna from Akurvík, North-West Iceland“,
Environmental Archaeology 10 (2005), bls. 126–146.
146 Sophia Perdikaris, George Hambrecht, Seth Brewington og Thomas H.
McGovern, „Across the fish event horizon: A comparative approach.“ The
Role of Fish in Ancient Time. Ritstj. H. H. Plogmann (Rahden: Verlag Marie
Leidorf 2007), bls. 38–52.
147 McGovern, „The Archaeofauna“, bls. 229–234.
NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:45 Page 112