Saga


Saga - 2018, Page 152

Saga - 2018, Page 152
Vaðmál var mikilvægasta útflutningsvara Íslendinga á þrettándu öld og fram undir 1450. Noregur var langstærsti markaðurinn en þar í landi var til- tölulega lítið um sauðfé og litla ull að hafa umfram þarfir. Á Íslandi var þessu öðruvísi farið; á meðalbýlum (20–25 hundraða) hefur nóg verið aflögu til að greiða í gjöld og kaupa innfluttar vörur. Helgi leggur áherslu á að Íslendingar hafi verið „mikil vaðmálsþjóð, sauðkindin var mikilvæg, mikla ull að hafa og konur iðnar við að koma ull í fat og mjólk í mat“ (bls. 23). Sérstök áhersla er lögð á að lýsa hvernig utanlandsverslunin fór fram og þann þátt sem stórgoðar áttu í að stýra viðskiptum og verði. Með því tengir hann verslunina við samfélag miðalda og dregur fram hverjir gátu keypt af erlendum kaupmönnum, hvað var keypt og á hvaða kjörum. Ítarlega er fjallað um hafnir og kaupstaði, sérkafli er um tímabilið fyrir 1300, annar um nýjar hafnir og kaupstaði á fjórtándu öld og sá þriðji um kaup - staði á sextándu öld, sérstaklega um Hafnarfjörð, sem var höfuðstaður þýskra kaupmanna á sextándu öld og lengst af í höndum Hamborgara. Við upphaf fimmtándu aldar verða þáttaskil í sögu Íslands þegar heim- urinn uppgötvar Ísland, eins og Helgi kemst að orði, og Norðmenn sitja ekki lengur að einir að Íslandsversluninni. Englendingar í leit að gjöfulum fiski - miðum fara að venja komur sínar til landsins og enskir og síðar þýskir kaupmenn taka yfir verslunina. Fiskiöldin gengur í garð og sjávarafurðir, fyrst skreið, svo saltfiskur og seinna síld, frystar afurðir og fjölbreytt flóra nútímasjávarútvegs, verða mikilvægustu útflutningsvörur landsins. Það er ekki fyrr en upp úr síðustu aldamótum að ál nær að velta fiski úr sessi sem verðmætasta varan. Gísli Gunnarsson skiptir sínum bókarhluta í sjö kafla sem fjalla um forna verslunarhætti, verðlagsmál og viðskiptakjör, helstu inn- og útflutningsvör- ur, framleiðslu og útflutning Íslandsskreiðar, kauphafnir og skipastól, versl- unarfélag og umdæmakaupmenn einokunartímans og arðinn af einokunar- versluninni. Gísli byggir sinn hluta einkum á fyrri ritum sínum, Upp er boðið Ísland og Fiskurinn sem munkunum þótti góður. Handritið að þessum kafla lá fyrir árið 2007 og Gísli tekur sérstaklega fram í formála að sínum hluta að hann hafi ekki séð neitt skrifað um tímabil einokunarverslunarinnar sem hafi gefið honum tilefni til neinna meiri háttar breytinga á handritinu. Að mati Gísla var verslunareinokunin „eðlileg og óhjákvæmileg ráðstöf- un á sínum tíma og var sem slík hvorki góð né vond“ (bls. 283). Með ein - okun hafi aðgengi alls almúga að innfluttri vöru batnað, en fyrri verslunar- hættir virðast hafa takmarkað rétt fólks til að versla beint við kaupmenn heldur hafi höfðingjar og landeigendur setið einir að þessum rétti og síðan selt öðrum varninginn áfram á uppsprengdu verði. Enda þótt verð á fiski hafi verið lágt í verslunartöxtum hafi sú verðlagning þjónað þeim tilgangi að niðurgreiða verð á innfluttum vörum. Þá hafi falist í því ákveðin trygging að einokunarkaupmenn voru skyldaðir til að sigla til landsins hvernig sem áraði og á margar hafnir víðs vegar um landið. Er leið fram á sautjándu öld ritdómar150 NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:46 Page 150
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.