Saga


Saga - 2018, Side 164

Saga - 2018, Side 164
þriggja veldur ekki straumhvörfum í sagnaritun um þessar könnunar- og veiðiferðir en vissulega er öldungis ágætt að eiga þess kost að lesa af bók frásagnir Vigfúsar af verkahring hans, veðurlagi, náttúrufari og ýmsu sem til bar í ferðunum þremur sem allar voru mjög ólíkar. Á öndverðri tuttugustu öld var vart eftir nokkur sá kimi á þurrlendi jarðar sem Vesturlandabúar höfðu ekki komist til — fundið eða uppgötvað eins og gjarnan var komist að orði — en ýmis torfarin svæði voru enn lítt rannsökuð, þar á meðal meginjökull Grænlands. Fjöldi könnunarleiðangra hafði þó verið farinn um Grænland á nítjándu öld, einkum á síðari hluta aldarinnar, og beinst að strandlengjunni enda ærið verkefni að henda reiður á henni, geysilöng sem hún er og vogskorin. Grænlandsjökull hafði einnig freistað landkönnuða en var ekki árennilegur yfirferðar. Leiðangur Norð - mannsins Fridtjofs Nansen varð fyrstur yfir innlandsísinn árið 1888. Neyttu leiðangursmenn skíðakunnáttu sinnar og gengu yfir þveran jökul frá Umivik á austurströndinni til Nuuk (sem þá hét Godthåb) á vesturströnd- inni. Áður höfðu tveir þekktir landkönnuðir þeirra tíma, Svíinn Adolf Erik Nordenskiöld og Bandaríkjamaðurinn Robert Edwin Peary, freistað þess að fara þvert yfir Grænland en orðið frá að hverfa. Þrekvirki Nansens og félaga hans vakti því mikla athygli og var fagnað mjög af löndum hans. Til marks um það er að talið er að um þriðjungur íbúa Óslóar hafi tekið þátt í hátíð sem haldin var til að vegsama landkönnuðinn og afrek hans. Er það aðeins eitt margra dæma um að landkönnuðum væri fagnað sem þjóðhetjum er þeir sneru heim úr vel heppnaðri för og minnir á hvílíkar frægðarpersónur þeir voru á sinni tíð. Robert Peary hélt aftur á Grænlandsjökul árið 1891 og tókst að þessu sinni að þvera nyrsta hluta hans. Í þeim leiðangri var sann- reynt að Grænland er eyja. Fyrsti leiðangurinn sem Vigfús Sigurðsson tók þátt í fór einmitt yfir þveran Grænlandsjökul þar sem hann er hvað breiðastur og var höfð vetur- seta á jöklinum. Alls lögðu leiðangursmenn að baki um 1.100 km, um það bil tvöfalda þá vegalengd sem Nansen hafði farið, og getur ekki farið á milli mála að í heild var leiðangurinn mikið afrek. Stjórnandi hans, Johan Peter koch, hafði fengist við landmælingar á Íslandi nokkrum árum áður og það mun hafa verið hann sem átti hugmyndina að því að nota íslenska hesta sem burðar- og dráttardýr í leiðangri yfir Grænlandsjökul. Hér var það sem Vigfús Sigurðsson kom til skjalanna. koch valdi hann til Grænlandsfarar úr stórum hópi umsækjenda til að annast hvaðeina sem laut að hestunum og sjá um flutninga með þeim. Vigfús gegndi því miklu ábyrgðarstarfi í leið - angri kochs og virðist raunar að hefðu hann og hestarnir ekki reynst eins vel og raun varð á hefði leiðangurinn farið út um þúfur. Vigfús Sigurðsson var meðal helstu hvatamanna að Gottuleiðangrinum sem farinn var til Austur-Grænlands sumarið 1929 og dró nafn sitt af sam- nefndum vélbáti. Leiðangursmönnum tókst það ætlunarverk sitt að ná sauðnautakálfum lifandi og flytja þá til Íslands. Samtíma blaðafregnir um ritdómar162 NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:46 Page 162
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.