Saga


Saga - 2018, Blaðsíða 179

Saga - 2018, Blaðsíða 179
Íslands á árunum um og eftir seinni heimsstyrjöld með „nótur í farteskinu“. Nóturnar — líkt og í frásögninni hér í upphafi — standa auðvitað fyrir svo miklu meira en blöð með torkennilegum táknum. Þær standa fyrir Menningu með stórum staf — menntun, þjálfun, ögun og fegurð sem mætir fyrir fátæku og fábreyttu samfélagi sem skorti ef til vill allt þetta. En þetta er líka menning sem — þrátt fyrir allt hið háfleyga og fagra — hafði umbreyst í andstæðu sína og farið langt með að tortíma sjálfri sér. Þeir sem hingað komu voru þannig margir á flótta undan stríði og helför, með slitr- urnar af evrópskri hámenningu, ef til vill reiðubúnir að byrja með óskrifað blað. Í bók sinni Með nótur í farteskinu. Erlendir tónlistarmenn á Íslandi 1930– 1960, stígur Óðinn Melsted ákveðnum skrefum út fyrir ramma þessarar frá- sagnar og segir miklu stærri sögu af viðgangi íslensks tónlistarlífs á téðu árabili, þótt áherslan sé vissulega á erlenda tónlistarmenn. Í umfjöllun um stöðu þekkingar og fyrri sagnritun á sviðinu skrifar Óðinn: Því sem ritað hefur verið um erlenda tónlistarmenn á Íslandi hættir gjarnan til að miðla ákveðinni mynd af hinum erlendu tónlistarmönn- um. Maður fær þá tilfinningu að þar hafi verið um fáeina hámenntaða tónlistarmenn að ræða sem til landsins hafi komið og síðan helgað íslensku tónlistarlífi krafta sína óskerta (bls. 3). Í þessari sögu er sjónum gjarnan beint að tónlistarmönnum sem hingað komu á flótta undan ógnum nasismans á fjórða áratugnum en þeir eru í raun ekki nema fjórir: Robert Abraham, Hans Edelstein, Victor Urbancic og Albert klahn (bls. 126). Þannig er sagan tengd stóratburðum mannkynssög- unnar sem hröktu tónlistarmenn að Íslands köldu ströndum, á meðan inn- lendir áhrifaþættir og -fólk liggur í láginni. Sama má segja um ólíkar ástæð - ur og forsendur þess tónlistarfólks sem hingað flutti og tók virkan þátt í uppbyggingu íslenskrar tónlistarmenningar um skemmri eða lengri tíma. Með rannsókn sinni dregur höfundur saman og birtir upplýsingar um stóran og fjölbreyttan hóp erlends tónlistarfólks sem starfaði á Íslandi á fyrri hluta tuttugustu aldar, alls um 100 manns. Með vísun í fyrri skrif um efnið segir Óðinn að þar sé oftast einungis fjallað um lítinn hóp nafnkunnra lista- manna „[e]n ef aðeins verður fjallað um þá sem efst tróna — þjóðþekkta menn eins og Abraham, Mixa og Urbancic — liggja æði margir óbættir hjá garði“ (bls. 3). Óðinn velur þá leið að fjalla um þennan hóp sem heild fremur en að greina feril hinna fáu þekktu. Því vali fylgja miklir kostir að mínu mati, en einnig hættur sem vikið verður nánar að síðar. Bókin er tvískipt og leggur höfundur upp með það leiðarljós að nýta eigin bakgrunn til að rekja söguna frá tveimur hliðum, en sjálfur er hann alinn upp í Austurríki, sonur íslensks föður og austurrískrar móður. Rann - sóknin er unnin hér á landi sem hluti af sagnfræðinámi við Háskóla Íslands, en að baki átti Óðinn tónlistarnám í heimalandinu. Hvort það tvísæi gangi ritdómar 177 NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:46 Page 177
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210

x

Saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Saga
https://timarit.is/publication/775

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.