Saga


Saga - 2018, Side 184

Saga - 2018, Side 184
konar mála sé að vænta í þessum heimildum. Hjónaskilnaðir, landaþrætur, skuldamál og eignamál voru algengustu deilumálin og um helmingur allra mála í Miðfjarðarsáttaumdæmi. Illyrði og rógburður voru viðfangsefni hátt í fjórðungs málanna. Önnur voru t.d. erfðir, framfærsla, svik, vistarmál og almennur ófriður (bls. 39). Um tveir þriðju hlutar mála fengu úrlausn fyrir sáttanefndinni en þriðjungur var sendur óútkljáður til dómstóla. Borið er saman við hvernig málstegundir dreifðust miðað við Noreg og Danmörku. Einnig hefði verið áhugavert að fá hugmynd um stöðuna á Íslandi, sérstak- lega í ljósi þess að Miðfjarðarumdæmi byggir mikið á landbúnaði. Framganga réttarfars birtist líka skýrt í þessum bókum, hvað menn sættu sig við af rökum og framlögðum skjölum, hvernig þau áttu að vera vottuð og samþykkt, með innsiglum eður ei og hvernig menn leituðu sátta. Oft er rakið nokkuð nákvæmlega hvernig sáttanefndarmenn mátu rök og lögðu fram gögn og hvernig þeir leiddu að niðurstöðu. Þarna kemur því víða fram áhugaverður vitnisburður um iðkun réttarfars (sjá t.d. bls. 68–74). Hluti sættarinnar var gjarnan að greiða átti til fátækra. Ekki síður varpa dæmin þar sem sáttanefndin komst ekki að niðurstöðu ljósi á viðteknar venj- ur í réttarkerfinu. Oft voru færð sérstök rök fyrir því hvers vegna dómstóla- leiðin væri vænlegri til árangurs fremur en að halda áfram að leita sátta. Málsmeðferðin sjálf getur líka verið áhugaverð sem slík. Oft eru langar lýsingar á aðstæðum og framvindu sem sýna nærsamfélagið á fróðlegan hátt. Sem dæmi má nefna deilur lausamanns og bónda í október 1804 um skipti á sel. Þar kemur fram hvernig menn mátu laun, fæði, hestlán og fóður á móti vinnu við ákveðin verk. Aðstæður lausamanna birtast því ljóslifandi auk þess sem vel sést hvaða verk bændur hafa fengið lausamenn til að vinna fyrir sig (bls. 56–57). Fleiri dæmi eru um slík ágreiningsmál vegna launa - mála milli vinnumanna og bænda sem gerð voru upp í vinnu og landaurum (bls. 105, 158–159). Árið 1846 leystist mál t.d. með þeim hætti að: „Báðir lofa að vera hvers annars góðkunningjar og sveitarbræður“ (bls. 142). Landaura - kerfið í sinni fjölbreyttu mynd birtist vel þegar málavöxtum og uppgjörum er lýst. Ef menn gátu ekki greitt í einum miðli var annar tiltækur, greitt til kaupmanns að vori, eða tekið út í fóðri og svo framvegis. Varpa málin því góðu ljósi á verðlag og viðskipti innan sveita og hvernig hagkerfið virkaði frá degi til dags (sjá t.d. bls. 94–96, 118–119). Uppnefni og orðaskak urðu greinilega oft að deiluefni milli manna. Á grasafjalli 1806 féllu orðin „Þið hafið kallað mig kraga og Blesa“, sem viðmælandinn var öldungis ekki sáttur við (bls. 61). Og árið 1822 lét annar út úr sér „Þú ert bölvaður gikkur“ (bls. 95), sem áheyrandinn var afar ósátt - ur við. „Tilhæfulaus fréttaburður“, „ótilbærileg orð“ og „orðaóþægð“ voru líka tilefni deilna (bls. 106, 131, 149). Sumt var ekki hægt að sætta sig við, eins og þegar maður nokkur neitaði að taka til baka orð sín „svikari, lygari og þjófur“ og endaði málið fyrir dómstólum (bls. 168). ritdómar182 NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:46 Page 182
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.