Saga


Saga - 2018, Page 188

Saga - 2018, Page 188
uppruna laga og fornan rétt, en æði margt þarf að skýra í burtu, ef svo má að orði komast, áður en Ólafslög eru greind í sögulegu samhengi sem forn réttur frá fyrri hluta elleftu aldar. Í þessu samhengi er einnig vert að muna að í réttarvitund þrettándu aldar manna voru sögulegar forsendur og forn venja ― sannarleg, ætluð eða uppgerð ― löghelgandi umfram önnur meðul venjuréttarins. Þó er það hin síðari leið sem höfundur fetar í umfjöllun sinni um Ólafs - lög. Áður en það er gert rekur Long helstu fyrirvara, ítrekar að ekkert sé fast í hendi og játar fúslega að þögn eldri heimilda þurfi að skýra með einhverj- um hætti, sem hún gerir tilraun til. Að öðru leyti er ekki fjallað sérstaklega um Ólafslög í samhengi við réttarheimspeki og lagaritun þrettándu aldar heldur miðar umfjöllunin umfram allt að því að skýra sögulegt samhengi hins forna réttar og hlutverk hans í mótun sögulegs og menningarlegs minnis eins og það birtist í fyrirliggjandi textum. Hér er því fjallað um tengsl Íslendinga og Noregskonungs á elstu tíð, eins og titill bókarinnar gefur fyrir - heit um: Iceland’s Relationship with Norway c. 870‒c. 1100. Þetta rímar hins vegar ekki fullkomlega við inngangskafla rannsóknarinnar, sem rímar betur við undirtitil bókarinnar en aðaltitil: Memory, History and Identity. Inngangs - kaflinn er yfirgripsmikill og í honum leggur höfundur áherslu á takmark - anir tólftu og þrettándu aldar heimilda til þess að vitna um fortíðina ― þær séu í grundvallaratriðum vitnisburðir um sögulegt og menningarlegt minni höfundanna eða sagnaritaranna sem á sér rök í samtíð en ekki fortíð. Sagna - textar miðalda séu því ekki heimildir um sögulegan raunveruleika heldur hugmyndir samtímamanna um hann. Áhersluþungi höfundar á þetta atriði kemur fram bæði í aðferðarfræðilegum inngangi, þar sem minnis- og minn- ingafræði Jans og Aleidu Assmann eru akkeri, og skýrum yfirlýsingum um að rannsóknin fjalli ekki um sögulegan raunveruleika á elstu tíð heldur hug- myndir manna á tólftu og þrettándu öld um hann, þ.e. sögulegt og menn- ingarlegt minni sem mótað er meðvitað og ómeðvitað af þörfum, hagsmun- um og heimsmynd ritaranna. Ég gat því ekki varist þeirri skynjun við lestur bókarinnar að hún sé tví- laga. Undir niðri sé rannsókn á tengslum Íslands og Noregs (einkum kon- ungs) á níundu, tíundu og elleftu öld, grundvölluð á krítískum lestri yngri textaheimilda. Þar á ofan leggist fræðileg umræða með áherslu á að við - fangs efni rannsóknarinnar sé ekki tengsl Íslands og Noregs á nefndum öldum heldur þvert á móti hugmyndasaga tólftu og þrettándu aldar um það sama. Til þess að gera langa sögu stutta fannst mér hið efra lag allþykkt í 2. kafla, þynnra í 3. kafla og slitrótt í 4. kafla. Nú mætti lesandi þessa ritdóms ætla að mér hefði því fundist feitast á stykkinu nær upphafi en magurt til endans, en því er öfugt farið: Bókin er öll hin prýðilegasta en vex eftir því sem á líður að mínu viti. Ég gæti útskýrt þessa afstöðu nánar ef mér væri gefið meira rúm en stuttur ritdómur, en almennt finnst mér höfundur njóta sín best í umfjöllun um lög og lagahefð. Ég er ósammála höfundi um margt, ritdómar186 NÝ_Saga haust 2018 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 19.10.2018 18:46 Page 186
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.