Strandapósturinn - 01.06.2020, Síða 31
30
z Bæjarhátíðin Hamingjudagar var haldin sem fyrr sumarið 2019 og
var mjög fjölbreytt að vanda. Þar eru fastir liðir eins og hamingju-
hlaupið, Leikhópurinn Lotta, kökubasar, hoppukastali o.fl.
z Náttúrubarnahátíðin og náttúrubarnaskólinn eru verkefni sem
hafa fest sig í sessi og eru nú sótt af fólki víða að af landinu, enda
bjóða þau upp á ómetanlega tengingu við náttúruna, sjóinn, fjöruna,
dýr og menn.
z Annað: Þá má nefna að Þjóðleikshátíð á Vestfjörðum var haldin á
Hólmavík, sögugöngur um umhverfið voru reglulegir viðburðir, leik-
hópar heimsóttu sveitarfélagið, sem og sirkus o.fl.
Það verður aldrei af Strandabyggð og Strandamönnum tekið, að þeir
kunna að skemmta sér og öðrum.
Skólamál á krossgötum
Á vorönn 2019 stunduðu 44 nemendur nám við grunnskólann og 7 útskrif-
uðust úr 10. bekk. 40 nemendur hófu nám að hausti 2019 og voru þeir 41
í árslok. Gert er ráð fyrir 42 nemendum frá byrjun árs 2020. Nemendur
í tónskólanum eru nú 46 þar af eru 7 fullorðnir. Skólakór yngri nemenda
og rokkband eldri nemenda hafa æft frá hausti. Nemendur í leikskólanum
Lækjarbrekku voru í september 2019 22 talsins. Gert er ráð fyrir að á vor-
önn 2020 verði fjöldi nemenda við leikskólann kominn í 26. Þessar tölur
sýna fjölgun sem er ákaflega gleðilegt.
Íbúar Strandabyggðar voru 449 þann 1. janúar 2019, en ljóst er að þeim
hefur fjölgað á árinu.
Sameining leik-, grunn- og tónskóla
Sveitarstjórn Strandabyggðar tók þá ákvörðun um mitt ár 2019 að sam-
eina leik-, grunn- og tónskóla Hólmavíkur í einn skóla. Umræða um sam-
einingu hefur komið reglulega upp á undanförnum árum en aldrei leitt af
sér ákvörðun fyrr en nú. Hvatinn að baki ákvörðuninni er fyrst og fremst
að nýta betur þann mannauð sem allir skólarnir hafa og auka þannig sam-
vinnu milli skólaeininga til hagsbóta fyrir nemendur. Inn í þessa umræðu
spilaði einnig viss fækkun nemenda sem hafði orðið í leik- og grunnskóla.
Þó er rétt að hafa í huga að sveiflur verða alltaf í litlu samfélagi eins