Strandapósturinn - 01.06.2020, Blaðsíða 127
126
sem létu lífið í Helförinni. Talið er að rúmlega ein milljón manna hafi látið
lífið í Auschwitz en talan 2,5 milljón þykir líklegri. Herforinginn Rudolf
Höss sem var síðar dæmdur fyrir að drepa 3,5 milljón manna mótmælti
við réttarhöldin: „Það voru aðeins 2,5 milljón.“ Hann var síðan hengdur á
svæðinu. Það var átakanlegt að horfa á eignir þessa fólks sem voru teknar
af þeim áður en það var sent í gasklefana: Ferðatöskur, greiður, rakáhöld,
gleraugu og skór og í skóhrúgunni voru barnaskór af öllum stærðum, allt
niður í ungbarnaskó. Bannað var að taka myndir þar sem hárið sem rakað
var af fólkinu var til sýnis. Það voru ekki ljóshærðir Aríar í hópi þeirra sem
var fargað þó sjá mætti einn og einn ljósan lokk. Í Birkenau var ólýsanlegt
að gera sér í hugarlund að í þessum tréskálum sem upphaflega voru smíð-
aðir fyrir 50 hesta var troðið um 400 manns. Þeirra beið aðeins dauðinn.
Herforinginn sem tók á móti lestinni sem kom með fólkið, flokkað það
strax. Annað hvort fór þumalfingurinn upp eða niður. Sumir fóru beint í
sturtu en aðrir fengu að þræla við ömurlegar aðstæður en þrátt fyrir þræl-
dóm og pyntingar var hungrið verst. Þó stríðið væri tapað átti að útrýma
öllum Gyðingum og líkbrennsluofnarnir gengu dag og nótt og undir lokin
voru fangarnir látnir rífa skálana og brenna öll gögn og ganga síðan 70
km leið í frosti að næstu fangabúðum. Aðeins voru 7.500 fangar eftir til
að frelsa í stríðslok. Yfir fangabúðum er skilti: „Vinna gerir þig frjálsa,“ en
eina frelsið var dauði.
Meðan fólk var almennt að reyna að jafna sig var haldið áfram til
Krákár sem er þriðja stærsta borg Póllands með um 750-800 þúsund íbúa
og stendur við ánna Wilsu, lengstu á Póllands sem er 1050 km. Kraká er
hin forna höfðuborg Póllands og hér voru konungar krýndir og grafnir. Við
lentum í nokkrum umferðartöfum þegar inn í borgina var komið á leiðinni
til Vienna House Hótel og það gafst rétt tími til að finna herbergin fyrir
kvöldverðinn sem var kl. 18:30. Sem betur fer voru allir stundvísir, kvöld-
verðurinn var þríréttaður að venju en vegna tvíbókunar hjá hótelinu var
okkur aðeins gefinn klukkutími til að koma matnum í okkur og yfirgefa
salinn. Gist var í tvær nætur en seinna kvöldið var ekki borðað á hótelinu.
Miðvikudaginn 18. september gafst loks tími til að sofa út, því
skoðunarferðin um borgina var á dagskrá kl. 10:00. Byrjað var á ökuferð
um borgina, skoðaðar helstu byggingar og ekið víða. Eins og áður var
staðarleiðsögumaður með í för sem fræddi Emil sem aftur túlkaði fyrir