Strandapósturinn - 01.06.2020, Síða 50
49
fjáraflamenn. Til marks um þetta hvað Óla snertir var, að þegar tímar liðu
var hann nefndur Óli ríki, enda talinn sparsamur og fastur á fé. Hvað Grím
áhrærir þá er hann sagður hafa verið hvatleikamaður hinn mesti og for-
stöndugur í hvívetna. Munnmæli herma að Óla hafi lengi leikið hugur á að
fá ábýlisréttinn að Ófeigsfirði og hafi hann beitt brögðum til að koma fram
ætlun sinni í þá veru. Svo vill til að til eru skrifleg gögn í skjölum sýslu-
mannsins í Strandasýslu sem varpa ljósi á viðskipti þeirra Óla og Gríms
varðandi ábúðina á Ófeigsfirði.
Í lok september árið 1834 gerðist það að Óli fékk keyptan hlut Jóns
Grímssonar, sem að framan er nefndur. Jafnframt þessu fékk hann loforð
fyrir því að hann fengi leigðan part Guðmundar bróður Jóns. Þetta þýddi
auðvitað að Óli var búinn að fá ábúðarrétt á 16 hundruðum eða öllum
þeim hluta sem Grímur hafði búið á. Að þessu gjörðu gerði Óli sér ferð til
Ófeigsfjarðar seint í nóvember 1834 og tilkynnti Grími bónda þessi tíðindi
og þar með að hann [Grímur ] skyldi flytja á næstu fardögum [ júní 1835]
af jörðinni. En hvernig sem það hefir verið þá virðist sem ekki hafi gengið
saman um þetta með þeim bændunum.
Það sem gerðist næst var það, að Óli skrifaði sáttanefndinni í Árnes-
hreppi þann 14. janúar 1835 og óskaði eftir að Grímur Alexíusson yrði
kallaður til sáttafundar til að fullgjöra þá samninga sem þeir gjört hafi við
síðustu samfundi í Ófeigsfirði viðvíkjandi sölu til sín eða annarra á parti
þeim sem Grímur átti í jörðinni Seljanesi, sem hann þá hafi lofað að láta
sig vita innan mánaðar en hafi ennþá ekki gert. Sömuleiðis til að tala um
fleiri skilmála, sem þá hafi skeð þeirra á milli áhrærandi Ófeigsfjörð. Þetta
gekk eftir og var Grími stefnt til sáttafundar í Árnesi þann 26. janúar 1835.
Greinargerð sáttanefndarinnar, þeirra séra Þorleifs Jónssonar í Árnesi og
Magnúsar Guðmundssonar hreppstjóra á Finnbogastöðum, um hvað hefði
gerst á fundinum, hljóðar svo:
,,Í Árnesi þann 26. janúar síðastliðinn bar saman fundum bændanna
Óla Viborg í Reykjarfirði og Gríms Alexíussonar í Ófeigsfirði. Við
sáttatilraun bauð bóndinn Óli Viborg bóndanum Grími í Ófeigsfirði
að vera þar kyrran þetta ár ef hann vildi þægjast sér dálítið meira
í landskuldar skyni, [hækka leiguna] sem Grímur neitaði að því til-
lögðu: Ég bið hann aldrei! Eftir tilmælum Óla Jenssonar Viborgs