Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Síða 25
SKYRSLA SJALFSBJARGAR, ISAFIRÐI
Sjálfsbjörg á ísafirði var stofnuð 29. sept.
1958. Á stofnfundinum gengu í félagið tæp-
lega fjörutíu manns, þar af fimm styrktar-
félagar, einn ævifélagi. Nú eru í félaginu
samtals áttatíu manns. Sigursveinn D. Krist-
insson, forvígismaður þessa félagsskapar,
var mættur á fundinum til aðstoðar við
stofnun félagsins, og töldu félagarnir það
mikið happ að hafa fengið hann til aðstoð-
ar. I stjórn voru kjörnir: Trausti Sigur-
laugsson, formaður; Ingibjörg Magnúsdótt-
ir, ritari; Trausti Magnússon, gjaldkeri;
Sigrún Einarsdóttir og Gestur Loftsson
meðstjórnendur.
Á stofnfundinum var samþykkt áskorun
á Alþingi að hækka örorkustyrk og fella
liann ekki niður að fullu, fyrr en tekjur
örorkulífeyrisþega jafngiltu tekjum verka-
fólks. Áskorun þessi var síðan send þing-
manni ísafjarðar og hann beðinn að koma
henni á framfæri, en ekkert hefir gerzt í
málinu.
Hvað viðvíkur starfsemi félagsins á þessu
fyrsta starfsári, hefur hún verið all mikil.
Fjáröflun hefur gengið vel, og hefur félag-
ið þar mætt skilningi og velvild bæjarbúa.
F.ins og annars staðar á landinu var merkja-
Fyrsta stjórn Sjálfsbjargar á Isafirði: Trausti Sig-
urlaugsson, formaður, Ingibjörg Magnúsdóltir, rit-
ari, Trausti Magnússon, gjaldkeri, Sigrun Einars-
dóttir og Gestur Loftsson, meðstjórnendur.
söludagur hér þ. 26. okt. Merkjasölunni
var afbragðs vel tekið, og skilaði hún ágæt-
um hagnaði, en helmingurinn af honum
var sendur suður í húsbyggingarsjóð lands-
sambandsins. Á merkjasöludaginn færði
velunnari félagsins því að gjöf fjáruppliæð
og síðar áheit, háa fjárupphæð, og kann fé-
lagið honum beztu þakkir fyrir. Hagnaður
af hlutaveltu, sem haldin var í nóv. og bas-
ar, sem haldinn var í apríl var einnig góður.
Skemmtifundir félagsins, sem voru yfir-
leitt lialdnir mánaðarlega voru vel sóttir,
og fóru þeir þannig fram, að fyrst voru
rædd áhugamál félaganna, og síðan hlýtt á
skemmtiatriðin, meðan drukkið var úr
kaffibollunum.
Næsta verkefni félagsins verður að koma
á fót einhvers konar léttri vinnu fyrir félag-
ana, undir eins og viðunandi húsnæði fæst,
og einnig fyrirgreiðslu til þess að útvega
þeim atvinnu við þeirra hæfi.
Það er von og ósk Sjálfsbjargar á ísafirði,
að þeim megi takast að leysa atvinnumál
fatlaðra á félagslegan hátt, eftir því sem
þörf krefur og bæta með því hag þeirra,
sem harðast hafa orðið úti í lífsbaráttunni.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Frá stofnfundi á ísafirði.
SJÁLFSBJÖRG 23