Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Blaðsíða 17
Kollektivhúsið
í Álaborg.
Einstaklingarnir búa á deildinni og
njóta hjúkrunar útlærðs hjúkrunarliðs, en
fjölskyldumenn búa hjá. fjölskyldum sín-
um á daginn, annars staðar í húsinu, í sér-
staklega útbúnum íbúðum, en sofa á næt-
urnar á sjúkradeildinni, þar sem hjúkrun
er að fá.
I Kollektivhúsinu og í sambandi við það
eru „vernduð verkstæði“ handa þeim, sem
ekki geta komizt á hinn almenna vinnu-
markað, en hafa samt svo mikla starfs-
orku enn, að þeir geta unnaið t. d. létta
viðgerðarvinnu stuttan tíma á dag.
Nýlega hefur Vanföreforeningen(Lands-
samband fatlaðra) í samvinnu við Kaup-
mannahafnarborg, útbúið í húsinu, eða
komið fyrir tómstundaheimili, sem taka
á í notkun í ágúst þetta ár. Þangað geta
öryrkjar komið einu sinni til tvisvar í
viku, komizt þar í samband við félaga
sína og unnið með þeim að léttri föndur-
vinnu og ýmiss konar klúbbstarfsemi.
Kollektivhúsið á Hans Kndusens plads
í Kaupmannahöfn hefur kostað samtals
um það bil 151% milljón danskra króna.
Af því er 94% lán frá almennum lána-
stofnunum ásamt ríkisláni, 6% innborgun
frá íbúum ásamt viðbót frá Vanförefonden
og Samfundet og Hjemmet for Vanföre.
Leigan er rétt látin ná yfir reksturskostn-
að hússins, en er samt allhá eins og í flest-
um nýbyggingum, og þess vegna veittur
húsaleigustyrkur frá hinu opinbera bæði
fötluðum og barnmörgum fjölskyldum.
SJÁLFSBJÖRG 17