Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Blaðsíða 25

Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Blaðsíða 25
sólblikaðan fjörð með dimmbláum eyjum, hólum og skerjum, og norðan við hann hóf mót himni röð af fjallabungum og tind- um — allt til hánorðurs, þar sem auganu mætti drifhvítur þokubakki. Það voru þessar furðusýnir, sem höfðu lokkað okk- ur tvo, félaga og samstarfsmenn, suður á Arnarnes, en í þennan tíma skyggðu eng- in hús á útsýnið þaðan til orðvesturs og norðurs. Áður en við lögðum í það dýra fyrir- tæki að leigja með okkur bíl alla þessa í þá daga löngu leið, höfðum við góða stund rætt þessa undrasýn, sem hafði á okkur svo djúptæk áhrif, að hjá okkur báðum vaknaði hvöt til að njóta hennar utan við múg og margmenni. Af Arnar- hóli? Nei . . . Seltjarnarnesi. Óekkí. Þar mundi verða fjöldi fólks. Við urðum að komast út í fjarlægar óbyggðir —- og til þess þurftum við ekki lengra en þetta fyrir um það bil fjórum áratugum. Báðir vor- um við heillaðir, — þessar hillingar höfðu snert eitthvað það innra með okkur, sem var handan við hinn rökræna veruleika. Auðvitað voru þetta frá sjónarmiði nátt- úruvísindanna ósköp eðlileg fyrirbrigði, en okkur voru þau jafndásamleg furða, hvort sem þarna hillti upp órafjarlægar hrika- strendur Grænlands, Breiðafjörðinn með hans eyjum, hólmum og skerjum og Vest- fjarðafjallgarðinn allt að Látrabjargi og austur að Vaðlaf jöllum — eða þetta voru sjónhverfingalönd, sem urðu til þetta kvöld og máski aldrei síðan, Við störðum og sögðum ekki neitt. Loks kom frá mér: „Ég trúi því ekki, þó að mér verði sagt það, að þetta sé ekki það, sem okkur datt strax í hug. Trúlega hafa fslendingarnir, sem reyndust fúsir til Grænlandsfarar, einhvern tíma séð strendur þess mikla lands eins og við sjáum þær í kvöld, og sýnin orðið þeim ógleymanleg". Félagi minn þagði. Síðan hummaði í honum, og svo sagði hann: „Hvað sem því líður, þá eru þetta Mll- ingar, og hillingar eru alltaf fagrar“. — Hann leit á mig, og augu hans voru óvenju stór og dökk, en í þeim eins og rauð sind- ur. Sindur hafði ég séð þar áður, þegar honum var sérlega mikið í hug, en varla svona björt og heit. Nú hélt hann áfram: „Þetta eru dásamlegar hillingar, en ég hef séð þær fegurri“. Andartak þagnaði hann á ný. Síðan kom í lágum, heitum rómi og svo sem sársaukakenndum: „Ég hef séð þær miklu fegurri, miklu dásam- legri — um hávetur . . . í kolsvarta myrkri . . . í rúminu mínu fyrir austan, þar sem ég lá undir súðinni og heyrði storminn gnauða á þekjunni og brimið öskra á flúð- um og skerjum — já, og við Bölkletta". Enn þagnaði hann, og nú þagði hann lengi. Og ég sagði ekkert, þorði ekki að segja neitt. Kannski fengi ég nú að skyggnast inn í hug þessa undarlega unga manns. Hann var allra manna ræðnastur, oftast glaður, glettinn, stundum jafnvel brellinn, alltaf duglegur og oftast skyldu- rækinn, en þó stundum sérlega kærulaus. Hann virtist ósköp opinskár, en þrátt en þrátt fyrir það fannst mér ég ekki þekkja hann, fannst sem yfir honum hvíldi einhver djúp dul, — innra væri hann all- ur annar en hann sýndist daglega, — þar væri meiri festa, dýpri alvara og heitari tilfinningar en hjá flestum öðrum ungum mönnum. Ég vissi, að hann hafði þjáðst mikið, vissi líka, að hann hafði í öllum sínum líkamlega veikleiða reynzt undur- samlega styrkur, hafði brotizt undan fargi þjáninga og vangetu, reynzt óvenju- legur fjörkálfur og forustumaður í leikj- um jafnaldra sinna, komizt þar í þá furðu- legu aðstöðu að vera virtur og dáður í stað þess að verða að sitja við hið lægsta náðarborð, borð aumingjans, sem flestir telja sér skylt að sýna miskunn. SIÁLFSBJÖRG 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.