Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2016, Page 24

Bjarmi - 01.12.2016, Page 24
í FAGNAÐAR- SÖNG ENGLANNA ER íTILEFNI AF FÆÐINGU FRELSARA MANNKYNSINS MINNTÁ ORSÖK HENNAR, DÝRÐ, VEGSEMD OG HÁTIGN HIMINSINS samtengingu „og“, en hinar þríliðaðar með tveimur aðaltengingum „og“. Það skal strax tekið fram, að þýðing Odds og þær þýðingar, sem henni hafa fylgt, hafa fyrirmynd í þýðingu Lúters á þýzku, en Lúter byggði þýðingu sína á frekar lélegu grísku handriti, sem Erasmusfrá Rotterdam gaf út um 1516 og fylgdi textahefð austur- kirkjunnar, svonefndum býsantískum texta. Texti Lúters er í þremur liðum þannig: „Ehre sey Gott in der Höhe Vnd Friede auff Erden Vnd Menschen wohlgefallen. “ Sameiginlegt þessum þríliðuðu þýðingum er, að menn og jörð er aðgreint. Það stendur óákveðið eða opið við hvaða menn er átt. En í tvíliðuðu þýðingunni eru menn einkenndir sem menn velþóknunar og friðurinn tengdur við þá. Víkjum þá að frumtextanum, sem margir fræðimenn hafa glímt við, en hér í þessari jólahugleiðingu verður aðeins fjallað um greiningu þeirra og rök. í Lúk. 2.14 er að finna tvö textaafbrigði og ervalið milli þeirra talið frekar erfitt. Til glöggvunar fylgir hér gríski textinn með latnesku letri og orðréttri þýðingu: 1. Doxa en hypsistois theoi (Dativus po- ssesivus) kai epi ges eirene en anthropois eudokias. (Gen. qualitatis) Dýrð í upphæðum guði (Þágufall eignar- innar) og á jörðu friður með mönnum velþóknunar (Eignarfall einkenningar). Hér er friður tengdur mönnum vel- vildar, og textinn tvíliðaður. Lesháttur þessi er studdur frumrithönd stórstafa skinnhandrita frá 4. öld e. Kr., Codex Vaticanus og Codex Sinaiticus, sem eru fremstu fulltrúar alexandrínsku textahefðarinnar og í sameiginlegum textum studd elztu papýrushandritum, Þ75 frá 2. öld og Þ66 frá 3. öld., svo og vestrænu textahefðinni, þar sem elztu latnesku þýðingarnar eru frá 2. öld. 2. Doxa en hypsistois theoi (Dativus possesivus) kai epi ges eirene en anthropois eudokia (Nominativus). Dýrð í upphæðum guði (Þágufall eignar- innar) og á jörðu friður með mönnum velþóknun (Nefnifall). Án eignarfalls -s í eudokia / velþóknun/, eru menn og jörð aðgreind. Þetta leiðir til þríliðunar textans. Þessi lesháttur er studdur leiðréttingum annarrar rithandar í sömu skinnhandritum og nefnd eru í tengslum við fyrrnefnda lesháttinn, fáeinum sýrlenzkum þýðingum frá 4. öld og meirihlutayngri handrita, það er svokallaðri caesarensku textahefð, og býzantísku textahefð austurkirkjunnar. Með tilliti til ytri textagagnrýni, það er að segja aldurs og dreifingar texta, þá stendur fyrri leshátturinn sterkar. Þá verður að telja brottfall eignarfalls -s líklegra við afritun, en að því hafi verið bætt inn í, einkum vegna þess að bókstafurinn s, sem var skrifaður eins og lítill bogi c í lok orðs, var í stórstafahandritum nánast eins og punktur, og hefur getað yfirsézt við afritun, EYAOKIAC > EYDOKIA. Með tilliti til ytri gagnrýni, málfars og merkingar skal vakin athygli á því, að orðasambandið „mönnum velþóknunar," það er að segja Guðs, hefur verið talið framandi á grísku og ekki fundizt annars staðar í grísku textum utan Biblíunnar. En málfræðingar hafa bent á, að víða í Nýja testamentinu, einkum í Lúk. 1 - 2, gæti áhrifa frá hebresku. í hebresku er genitivus qualitatis, eignarfail einkenningar, iðulega notað, þar sem grískan notar að jafnaði lýsingarorð. Samsvarandi andstætt dæmi er að finna í Ef. 3. 2, „börn reiðinnar," það er Guðs. Við þetta bætist, að í nokkrum sálmum, sem hafa fundist í Dauðahafshandritunum er að finna orðasambandið, „synir velþóknunar hans / þinnar," það er Guðs, í 1QH iv. 32n og xi, 9, ennfremur viii,6 „hinir útvöldu velþóknunar hans,“ það er Guðs. Orðasambandið „mönnum velvildar“ verður því með góðum rökum innri sem ytri gagnrýni textafræðinnar að teljast til semi- tísks litaðs orðfæris Lúkasarguðspjalls. 1

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.