Bjarmi - 01.12.2016, Page 29
Loks skal minnst á sex þátta röð, A.D.
Kingdom and Empire (E. Kr., konungsveldi
og ríki) frá því í fyrra en í þessum þáttum
er saga frumkirkjunnar rakin eftir að fjallað
er um krossfestinguna og upprisuna, ekki
ósvipað og er í Risen, en þó ekki eins, í
fyrsta og öðrum þætti. Þættirnir eru
aðgengilegir á íslenskri áskrift að Netflix en
textinn þá á ensku.
Þáttaröðin er mjög vönduð og grípandi.
Hún kemur sem framhald af þáttaröðinni
The Bible (Biblían) frá 2013, þar sem
lykilsögur Biblíunnar eru raktar á góðan
og sannfærandi hátt. Árið eftir var efni
þeirra nýtt til að setja saman kvikmyndina
Son of God (Sonur Guðs).Vænta má fleiri
biblíumynda frá þessum framleiðendum,
Burnett og Downey.
í þáttaröðinni er frásögu guðspjallanna
fylgt í fyrstu tveim þáttunum en í
næstu fjórum er frásögu tíu fyrstu kafla
Postulasögunnar fylgt þegar ofsóknir setja
frumkirkjunni skorður og lærisveinar Jesú
þurfa að glíma við margs konar vanda,
leggja á flótta og fagnaðarerindið breiðist
út. Önnur þáttaröð er í undirbúningi.
nativity
TheJourney of a Lifetime.
a Story for All Time
FROM THE PRODUCERS WHO BROUGHT YOU HEAVENIS FOR REAL
Ir you dont
believe in Mirades
you will after
watdiing this film!
, -
bjarmi | cleseinber 2016 | 29