Bjarmi - 01.06.2017, Page 39
Liíi lífið
NÝ BÓK SIGURBJÖRNS ÞORKELSSONAR
Fyrr á árinu sendi Sigurbjörn Þorkelsson
frá sér Ijóðabókina Lifi lífið. í henni eru 175
Ijóð, þar af 150 áður óbirt. Á kápu segir
höfundur: „í þessari bók eru meðal annars
trúarleg Ijóð full af sannfæringu og óbilandi
trausti en einnig erfiðri glímu og baráttu,
einlægu ákalli og hjartanlegri bæn. Ljóð
sem tjá fegurð, aðdáun og ást, sorg og
trega, þar sem von og vonbrigði kallast á. í
bókinni eru einnig Ijóð um lífsins engla sem
komu líkt og himnasending inn í líf mitt á
erfiðum tímum." Að mestu er um að ræða
prósaljóð að hætti höfundar. Bókina má
nálgast með því að hafa beint samband
við Sigurbjörn, sigurbjorn.thorkelsson@
gmail.com.
EKKERT AÐ ÓTTAST
Þeir sem eiga
himininn í hjartanu
og nafn sitt letrað
í lífsins bók
þurfa ekki að óttast
tannför tilverunnar
og þá taumiausu ógn
sem frá henni stafar.
SÞ