Fréttablaðið - 03.02.2022, Síða 2
Þetta er ekkert eins og
við vorum að sjá í
Verbúðinni, þegar allt
tal um áfengi var að
Íslendingar kynnu
ekki að drekka.
Jóhanna María Gunnarsdóttir og
Bjarni Líndal Snorrason
Snjórinn heillar
Ekki er gert ráð fyrir að
hárgreiðslustofur sæki um
vínveitingaleyfi og gerir
kerfið ekki ráð fyrir þeim
möguleika. Hjónin sem eru
eigendur Unique hár og spa,
Jóhanna María Gunnarsdóttir
og Bjarni Líndal Snorrason,
hafa sótt um leyfið fyrir sína
stofu, en þá sem kaffihús.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Hjónin Jóhanna María
Gunnarsdóttir, alltaf kölluð Jóa, og
Bjarni Líndal Snorrason, eigendur
Unique hár og spa í Síðumúla, hafa
sótt um vínveitingaleyfi fyrir stof
una sína. Eitthvað sem þau hafa
gengið með í maganum í mörg ár.
„Það merkilega er að við þurfum
að sækja um sem kaffihús, því kerfið
gerir ekki ráð fyrir að hárgreiðslu
stofa sé í þessum hugleiðingum,“
segir Bjarni.
Hann bendir á að þau þurfi að
vinna með arkitektum til að breyta
stofunni, þannig hún uppfylli alla
staðla fyrir kaffihús, en eins og
nafnið gefur til kynna, er Unique
hár og spa alls ekki kaffihús.
„Við höfum skoðað hárgreiðslu
stofur víða um lönd og þar er allt í
lagi að fá sér einn bjór, eitt rauðvíns
glas eða jafnvel hvítvínstár, meðan
það er setið í hárgreiðslustólnum.
Planið er ekki að hafa hér bjór á dælu
og kokteilagerð. Alls ekki. Bara lítinn
kæli fyrir vín og bjór,“ segir Jóa.
Hún segir að þessi hugmynd sé
búin að gerjast hjá þeim hjónum
í langan tíma og þau vilji hafa allt
uppi á borðum. Þó það sé vín og bjór.
„Menningin hér á Íslandi er búin
að breytast mikið á undanförnum
árum. Þetta er ekkert eins og við
vorum að sjá í Verbúðinni, þegar
allt tal um áfengi var að Íslendingar
kynnu ekki að drekka. Það var
1989,“ segja þau í kór og hlæja.
Jóa bendir á að það sé ekki algengt
að hárgreiðslustofur séu að sækja
um vínveitingaleyfi en Nonni Quest
á Laugaveginum sé með glæsilegan
viskíbar á sinni stofu á Laugaveg
inum og á Siglufirði stofa með bar.
Hún hafi sett á Facebook að þau hafi
sótt um og viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Allir voru jákvæðir gagnvart
þessari tilraun þeirra hjóna.
„Þó ég segi sjálf frá, þá finnst
mér stofan okkar ein sú flottasta á
landinu. Og við viljum bæta þessu
við okkar þjónustu. Ég veit að kerfið
vinnur yfirleitt hægt og rólega, sem
er allt í lagi því við höfum nægan
tíma,“ segir Jóa og Bjarni tekur
undir. ■
Vilja leyfi til að selja áfengi á
hárgreiðslustofu í Síðumúla
Hjónin Jóhanna María Gunnarsdóttir og Bjarni Líndal Snorrason á góðri
stund á Unique hair and spa. MYND/AÐSEND
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
Veturinn er fastur í sessi á landinu bláa og um að gera að njóta þess sem hann hefur upp á að bjóða, eins þessi piltur gerði á Reykjavíkurtjörn í gær. Sam-
kvæmt Veðurstofu Íslands mun kuldaboli ekkert gefa eftir næstu daga nema síður sé, því frosti er spáð fram yfir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ilk@frettabladid.is
SLYS Nemandi við Framhaldsskól
ann á Laugum í Reykjadal lést í gær,
eftir að hann varð fyrir bíl skammt
frá skólanum.
Lögreglan á Norðurlandi eystra
fékk tilkynningu upp úr klukkan tvö
í gær, um að 19 ára karlmaður hefði
orðið fyir bíl. Þegar viðbragðsað
ilar mættu á vettvang var maðurinn
meðvitundarlaus og endurlífgunar
tilraunir báru ekki árangur.
Haraldur Bóasson, íbúi á Laugum,
segir fregnir af banaslysinu hafa haft
mikil áhrif á samfélagið í Reykja
dal. „Þetta var ákaf lega hæglátur
og góður strákur sem allir dáðu og
dýrkuðu, þannig að þetta er mikið
áfall fyrir alla,“ segir Haraldur.
Nokkrir nemendur úr skólanum
urðu vitni að slysinu og var því
áfallahjálparteymi Rauða krossins
virkjað til að hlúa að þeim. Rann
sókn á tildrögum slyssins eru á
frumstigi. ■
Fólkið á Laugum í áfalli eftir banaslys
Pilturinn sem lést var nemandi við Laugaskóla í Reykjadal. MYND/AÐSEND
lovisa@frettabladid.is
COVID-19 Frá og með í dag er þess
ekki krafist lengur að einn metri
verði á milli fólks á sitjandi viðburð
um. Þetta ákvað Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra að höfðu samráði
við sóttvarnalækni, að því er segir í
tilkynningu frá ráðuneyti hans.
Leikhúsfólk og tónlistarmenn
fögnuðu tíðindunum í gær. „Þetta
er mjög á nægju legt og er mjög gott
fyrsta skref til að koma okkur af
stað. En auð vitað viljum við sjá þetta
gerast hraðar,“ sagði Ísleifur Þórhalls
son, fram kvæmda stjóri Senu og for
maður Banda lags ís lenskra tón leika
haldara, við Fréttablaðið í gærkvöld.
„Með þessu breytast aðstæður til
viðburðahalds þar sem hægt verður
að nýta öll sæti á viðburðum svo
lengi sem ekki eru f leiri en 500 í
hólfi,“ var haft eftir ráðherra í fyrr
greindri tillögu.
Ísleifur sagði í gærkvöldi að ganga
bæri lengra, til dæmis með því að
endurskoða grímu skyldu og að
stækka hólfin sem selja megi í. Helsta
gagnrýni við burða haldarar lúti að
því hversu hratt sé hægt að skella í
lás en langan tíma að af létta. ■
Fjarlægðarmörk
sitjandi afnumin
Willum Þór
Þórsson, heil-
brigðisráðherra
2 Fréttir 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ