Fréttablaðið - 03.02.2022, Síða 41

Fréttablaðið - 03.02.2022, Síða 41
Ég vildi láta dans- arana dansa í íslensku landslagi og þá fannst mér enginn annar en RAX koma til greina. Hvíla sprungur er nýtt dans- verk eftir Ingu Maren Rúnars- dóttur sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu á morgun, föstudaginn 4. febrúar. Um titilinn segir Inga Maren: „Upp- haf lega var titill verksins annar en svo kom í ljós að verk í Borgar- leikhúsinu var með þann sama titil þannig að ég þurfti að breyta heitinu. Síðastliðið sumar var ég að keyra úti á landi með fjölskyld- unni. Ég var með minnisbók og skrifaði niður hugmyndir að titlum og reyndi að grafa mig inn í hugar- ástand okkar mannanna. Þá kom þessi titill, Hvíla sprungur. Í lífinu förum við gjarnan á sjálf- stýringu og tökum margar ómeð- vitaðar ákvarðanir og burðumst með óunnin mál. Þetta sé ég eins og sprungur í huganum sem hægt er falla ofan í. Við höfum öll orðið fyrir áföllum sem fylgja okkur en ef maður er duglegur að vinna í sínum málum þá er maður kannski ekki að falla ofan í sprungur.“ Dofið fólk Verkið er um klukkutímalangt og þar dansa fjórir dansarar í landslagi af myndum eftir RAX, Ragnar Axels- son. Tónlistin er byggð á tónverkinu Sprungur í huganum Inga Maren er höfundur dans­ verksins Hvíla sprungur sem sýnt verður í Borgarleik­ húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Dansarar dansa í landslagi af myndum eftir RAX. MYND/RAX Quadrantes eftir Óttar Sæmundsen og Stephan Stephensen. Þegar hún er beðin um að lýsa dansinum segir Inga Maren: „Ég sá fyrir mér keðju. Þegar við erum úti í búð eða úti að keyra þá eru allir í röð. Ég er að vinna með þessa pæl- ingu um frekar dofið fólk sem eltir hvert annað. Dansarar eru alls ekki dofnir í dansinum, en þeir eru í sjálf- stýringarmótinu og elta hver annan þar til einn brýst út en fer um leið að ríghalda í annan einstakling. Aðrir tveir einstaklingar glíma við sitt hlið við hlið og sjá ekki hvor annan, eru hálfpartinn fyrir hvor öðrum, dansa saman en eru í eins konar ástandi.“ Dásamleg samvinna Inga segir að kveikjan að verkinu hafi verið saga hennar sjálfrar. „Við erum samt ekki að vinna með mína sögu heldur kviknaði hugmyndin upp úr henni. Ég ólst upp á heimili þar sem var einstaklingur sem var mér ekki hliðhollur. Ég segi að ég hafi fyrir vikið orðið meistari í að fela mig. Í verkinu tengi ég þetta við náttúruna og árstíðirnar og breyt- ingar, eins og þegar rjúpan skiptir um lit. Ég vildi láta dansarana dansa í íslensku landslagi og þá fannst mér enginn annar en RAX koma til greina og hann var til í að vera með.“ Júlíanna Lára Steingrímsdóttir gerir búninga og leikmynd. Þær Inga Maren hafa áður unnið saman að verkunum Ævi og Dagdraumar sem hlutu samtals sex Grímutil- nefningar. Inga Maren hlaut tvenn verðlaun fyrir Ævi, sem dansari og danshöfundur ársins. „Við Júlíanna vorum saman í menntaskóla og höfum unnið mikið saman. Við vinnum vel saman, skilj- um hvor aðra og erum óhræddar við að segja skoðun okkar. Hún er dásamleg og verulega flink að koma með lausnir,“ segir Inga Maren. ■ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is kolbrunb@frettabladid.is Ljósa hliðin er yfirskrift sýningar á málverkum eftir Hauk Dór í Gallerí Fold. Sýningin stendur til 5. febrúar. Í kynningu á sýningunni segir: Málverk hans virðast við fyrstu sýn einföld og óhlutbundin en þegar glöggt er skoðað skynjar áhorfand- inn andlit, dýr eða aðrar verur í formunum. Sumum verkanna mætti jafnvel líkja við eins konar dýragarða þar sem margbrotið mann- og dýra- líf flæðir yfir myndflötinn. Formin eru hrein og skörp en öðlast eigið líf á myndfletinum. Í öðrum myndum skynjar áhorfandinn dularfullan svip fortíðar sem leiðir hann til Afr- íku og að list frumbyggja sem Hauk- ur Dór hefur löngum hrifist af. ■ Ljósa hliðin í Gallerí Fold Haukur Dór sýnir í Gallerí Fold. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI kolbrunb@frettabladid.is Björk Níelsdóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Eyjólfur Eyj- ólfsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson barítón og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari halda tónleika á lands- byggðinni á næstunni. Flutt verða ný lög eftir Þórunni Guðmunds- dóttur. Lögin skiptast í þrjá flokka eftir efni: Sumarlög, Matarlög og Lög um ástina. Tónleikarnir verða haldnir í Tón- listarmiðstöð Austurlands, Eskifirði 17. febrúar klukkan 20.00, Egils- staðakirkju 18. febrúar klukkan 20.00, Bergi, Dalvík, 19. febrúar klukkan 16.00 og Hofi, Akureyri, 20. febrúar klukkan 16.00. ■ Lög Þórunnar flutt víða um land Björk, Erla, Eyj­ ólfur, Hafsteinn og Eva leggja í tónleikaferða­ lag. FIMMTUDAGUR 3. febrúar 2022 Menning 25FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.