Fréttablaðið - 03.02.2022, Side 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Við ákváðum að slá til
eftir að við vorum
búin að prófa okkur
áfram og höfðum trú á
að við værum með
eitthvað gott í hönd-
unum.
Geir Finnsson,
fyrrverandi rit-
stjóri Leikjafrétta
„Þetta eru án efa
viðbrögð Sony
við tíðindunum
af Microsoft hér
um daginn,“ segir
Geir Finnsson,
tölvuleikjagúrú,
um kaup japanska leikjarisans Sony
á bandaríska leikjafyrirtækinu
Bungie, sem þekktast er fyrir gerð
Halo og Destiny tölvuleikjanna.
„Bungie hefur átt ríkan þátt í
velgengni X-box leikjatölvunnar
á Bandaríkjamarkaði með Halo
tölvuleikjunum, sem eru meðal
vinsælustu tölvuleikja þar í landi,“
segir Geir, en einungis eru
tæpar þrjár vikur síðan tilkynnt
var um risakaup keppinautar Sony,
bandaríska leikjarisans Microsoft,
á tölvuleikjaframleiðandanum
Activision Blizzard, sem fram-
leiðir meðal annars Call of Duty og
Warcraft leikina.
Geir segir ljóst að þau tíðindi
hafi velgt keppinautnum Sony
undir uggum, enda takast fyrir-
tækin á á leikjatölvumarkaði með
X-box annars vegar og PlayStation
hins vegar. Með kaupunum getur
Microsoft mögulega innan örfárra
ára tryggt að risatitlar eins og Call
of Duty komi eingöngu út fyrir
sínar leikjatölvur, en ekki Play-
Station.
Samkvæmt tilkynningu um
kaupin mun Bungie þó áfram gera
tölvuleiki fyrir fleiri leikjatölvur
en PlayStation. „Ef til vill má túlka
þetta sem velvilja Sony, sem vilja
með þessu sýna Microsoft að þau
séu tilbúin til að bjóða eigin leiki
fyrir Microsoft, í þeirri von að þau
útiloki ekki risaleiki eins og Call of
Duty, frá PlayStation.“ n
Sony bregst við útspili Microsoft
n Sérfræðingurinn
Hjónin Alex Viðar Santos
og Hildur Hlíf Sigurkarls-
dóttir renndu sér nýlega inn
á frostpinnamarkaðinn, með
eigin ávaxtablöndum sem
þau kenna við Jaka. Margir
ráku upp stór augu þegar
Alex, sem er verkfræðingur,
hætti í vinnu til þess að hella
sér á fullu í frostpinnagerð.
svavamarin@frettabladid.is
Þegar hjónin Hildur Hlíf Sigurkarls-
dóttir og Alex Viðar Santos, voru að
prufa sig áfram með hollari valkosti
fyrir börnin sín, duttu þau niður á
ávaxtablöndur sem hittu í mark
hjá krökkunum. Þau ákváðu því að
ganga skrefinu lengra og hefja ein-
faldlega framleiðslu á frostpinnum,
sem þau kenna við Jaka.
Þótt íspinnar séu kannski ekki
það fyrsta sem fólki dettur í hug
í myrkum og oft hrollköldum
janúarmánuði, ákváðu þau að láta
slag standa, enda ekki eftir neinu
að bíða, og hófu sölu á Jaka í síðasta
mánuði.
Markaðsrannsóknin sem þau
gerðu á börnum sínum í eldhús-
inu heima virðist enda hafa skilað
áreiðanlegum niðurstöðum, því
viðtökurnar hafa verið býsna góðar.
„Fólki finnst skrítið að ég hafi
hætt í vinnunni minni og farið að
framleiða frostpinna,“ segir verk-
fræðingurinn Alex, sem tók þarna
ískalda stefnubreytingu og segir
Hildur hugmyndina hafi sprottið
upp úr tilraunastarfsemi í eldhús-
inu heima þegar þau voru að reyna
að finna hollari kost fyrir börnin
sín tvö.
„Það kom virkilega skemmtilega á
óvart hversu vel blandan heppnað-
ist. Við vorum búin að breyta hlut-
föllunum og lentum á nokkrum
góðum pinnum sem krakkarnir
elskuðu,“ segir Hildur ánægð með
afraksturinn.
Slegið til í miðjum faraldri
Eftir nokkrar tilraunir í eldhúsinu
sáu þau Hildur og Alex tækifæri
sem gæti fært þau nær draumnum,
með því að breiða út bragðgott
fagnaðarerindið, sem hófst með
leitinni að hollari valkosti fyrir
börnin þeirra.
„Við ákváðum að slá til eftir að
við vorum búin að prófa okkur
áfram og höfðum trú á að við
værum með eitthvað gott í hönd-
unum,“ segir Alex og bætir við að
gestir og gangandi hafa dásamað
bragðið af Jaka.
Nafnið kom frá ömmu
„Eftir töluverða leit að aðstöðu til að
vinna vöruna enduðum við á Eld-
stæðinu, sem er deilieldhús í bak-
garðinum hjá okkur,“ heldur Alex
áfram. Eldstæðið er atvinnueldhús
fyrir matarfrumkvöðla og smá-
framleiðendur og byggir á deilihag-
kerfi og eftir að þau leituðu þangað
komust þau svo gott sem alla leið
með að láta drauminn rætast.
Hildur segir aðspurð að Jaka-
nafnið hafi komið upp í fjölskyldu-
boði. „Amma mín kom með nafnið
í vor og það eiginlega bara smell-
passaði. Vinkona okkar Katrín Inga
Frantzdóttir hannaði svo myndina
af ísbirninum Jaka sem er á umbúð-
unum,“ segir hún og hlær. n
Fjölskyldan stökk ísköld úr
eldhúsinu á klakavagninn
Alex og
Hildur gerðu
ávaxtabragð-
tilraunir, með
ískalda hollustu
barnanna í huga.
MYND/AÐSEND
Jaki reis upp úr tilraunum hjónanna.
MYND/AÐSEND.
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................
Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
Þessa vöru þarf að sérpanta. S. 561 1433
Netfang: bjornsbakari@bjornsbakari.is
Frjáls framlög enginn kostnaður!
www.facebook.com/samferdafoundation
Þú finnur okkur á Facebook – ekki hika við að fylgja okkur þar, við
gerum góðverk í hverjum mánuði fyrir íslensku þjóðina.
Hjá okkur í Samferða er enginn kostnaður og allt rennur
óskert til þeirra sem þurfa svo sannarlega á að halda.
Þú getur hringt í eftirtalin númer:
VILTU GLEÐJA FORELDRA LANGVEIKRA BARNA
EÐA FJÖLSKYLDUR ÞAR SEM FORELDRI ER AÐ
GLÍMA VIÐ LÍFSÓGNANDI SJÚKDÓM?
907 1081 - 1.000 kr. 907 1083 - 3.000 kr.
907 1085 - 5.000 kr. 907 1090 - 10.000 kr.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
28 Lífið 3. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ