Fréttablaðið - 09.02.2022, Side 2

Fréttablaðið - 09.02.2022, Side 2
Við virðumst komin inn í nýjan veruleika í kirkjunni. Það fer að vanta presta. Arnaldur Bárðarson, prestur í Árborgarprestakalli Vélinni sigað á snjóinn Húsvörðurinn í Menntaskólanum í Reykjavík sat síður en svo aðgerðalaus þegar allt fylltist af snjó fyrir utan skólabygginguna í gær. Húsvörðuinn vann hörðum höndum að því að hreinsa snjóinn frá göngustíg á lóðinni með aðstoð snjómokstursvélar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einstæð uppákoma í Íslands- sögunni þegar hjón sóttu um sömu prestsstöðuna við Skálholt. Hjónafriði borgið að hvorugt fékk, segir annað þeirra. Misrétti leiðrétt. bth@frettabladid.is ÞJÓÐKIRKJAN Í fyrsta skipti í kirkju- sögu Íslands sóttu á dögunum hjón um sama prestsembættið við Skál- holt, hvort á móti öðru. Þetta voru þau séra Arnaldur Bárðarson og séra Ingibjörg Jóhannsdóttir. Með umsókninni reyndi á embættisgengi Ingibjargar. Hvorugt fékk brauðið en sú niðurstaða er til marks um hve vegir Drottins eru snjallir, að sögn Arnaldar, prests í Árborgarpresta- kalli. Forsaga þess að hjónin sóttu bæði um tengist öðrum þræði því að Ingi- björg hafði ekki hlotið embættis- gengi sem prestur á Íslandi eftir að hún lærði guðfræði í Noregi. Gömul lög sögðu að hún þyrfti próf frá guð- fræðideild Háskóla Íslands til að þjóna sem prestur hér á landi. Hafði Ingibjörgu áður verið synjað um stöðu á grunni gömlu laganna. Með lagabreytingu í fyrra opnuð- ust ný tækifæri fyrir umsækjendur sem læra guðfræði utan Íslands. Með því að Ingibjörg þótti nú hæf, þótt hún fengi ekki brauðið, er hún sannarlega með embættisgengi hér á landi. „Hjónafriði okkar er borgið. Vegir Drottins eru snjallir,“ segir Arnaldur. Séra Dag ur Fann ar Magnús son fékk brauðið í Skálholti en alls sóttu fimm um. Arnaldur segir til marks um breytta tíma að svo fáir hafi sótt um þetta forna og virta brauð. Í eina tíð hefði fjöldi presta barist um þetta brauð. „Við virðumst komin inn í nýjan veruleika í kirkjunni. Það fer að vanta presta.“ Arnaldur telur ekki ólíklegt að innan nokkurra ára þurfi erlenda presta til að sinna þjónustu hér innanlands. Lagabreytingin hafi ekki síst í því ljósi verið þörf. Þá sé áhyggjuefni hve fáir læri til prests þessa dagana. Mögulega verði breytingar á kröfum í framtíðinni, enda námið langt og strangt. „Áhugi á guðfræði og kirkju hefur einhverra hluta vegna minnkað. Ég efast þó ekki um að það mun breyt- ast aftur.“ Arnaldur segir að guðfræði snúist um tengsl við Guð og manneskjur, að elska Guð og náungann. „Þau skilaboð þurfa alltaf að halda velli.“ n Friði prestshjóna bjargað þegar hvorugt fékk brauð Hjónin séra Arnaldur og séra Ingi- björg sem bæði sóttu um Skálholt. Happ fyrir hjónafriðinn. MYND/AÐSEND Í Skálholtskirkju en þar sóttu fimm um brauðið, þar á meðal hjón. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI gar@frettabladid.is FJÖLMIÐLAR Aðgerðastjórn lögreglu sendi frá sér tilkynningu í gær sem stangast á við svör talsmanna lög- reglu og Landhelgisgæslunnar um farsímagögn sem vísuðu á flak flug- vélarinnar TF-ABB. Fréttablaðið sagði frá því í gær að upplýsingar sem staðsettu síma í TF-ABB hefðu ekki borist stjórnend- um leitar að vélinni fyrr en talsvert eftir að þær bárust í gagnagrunn björgunarsveita og til einstaklinga í flugi. Þetta segir aðgerðastjórn lög- reglunnar rangt. Frásögn Fréttablaðsins byggði á upplýsingum sem gefnar voru er leit að flugvélinni TF-ABB hófst í Þing- vallavatni og svörum talsmanna lögreglu og Landhelgisgæslu. Frétta- blaðið sá ekki ástæðu til að rengja þau svör. Nú virðist komið á daginn að gögnin voru í fórum stjórnenda leitarinnar þegar síðdegis daginn sem TF-ABB hvarf en ekki um nótt- ina eða morguninn eftir eins og áður hefur verið sagt. Nánar er farið yfir málið á frettabladid.is. n Breytt frásögn um gögn frá TF-ABB Viðbragðsaðilar sinntu umfangs- miklu starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR birnadrofn@frettabladid.is DÓMSMÁL „Ég var 15 ára þegar ókunnugur maður nauðgaði mér. Ég var bara barn en enginn hjálpaði mér að skilja hvað hafði gerst eða hjálpaði mér með áfallið,“ segir Haf- dís Arnardóttir, ein fimm kvenna sem í gær stigu fram og fara fyrir áskorun á Jón Gunnarsson dóms- málaráðherra um að brotaþolar fái formlega aðild að málum sínum í réttarkerfinu. Jón hyggst leggja fram frumvarp um breytta réttarstöðu brotaþola á næstu vikum. Konurnar eiga það allar sameigin- legt að hafa verið beittar ofbeldi og reynt að leita réttar síns. Þær upp- lifðu vanmátt, útilokun og virð- ingarleysi í vegferð sinni í gegnum réttarkerfið. „Að fara í gegnum kæruferli var áfall ofan í áfallið. Ég myndi aldrei leggja það á mig aftur,“ segir Hafdís. Samkvæmt upplýsingum frá Stígamótum áður en blaðið fór í prentun höfðu yfir tvö þúsund manns skrifað undir undirskrifta- söfnun til stuðnings málinu. n Brotaþolar skora á dómsmálaráðherra Þórdís, Júnía, Hafdís, Linda Björg og Sigrún Emma hafa sagt frá hvernig þær reyndu að leita réttar síns. 2 Fréttir 9. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.