Fréttablaðið - 09.02.2022, Page 4

Fréttablaðið - 09.02.2022, Page 4
Fyrst þá fer að skýrast í hvaða átt rannsóknin beinist. Ragnar Guðmundsson, hjá Rannsóknarnefnd samgöngu- slysa Gerð nýrra kjarasamninga verður ekki auðveld í ár. For- menn verkalýðsfélaga telja ríkið þurfa að koma að með stuðningi. kristinnhaukur@frettabladid.is KJARAMÁL Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir þá stöðu sem uppi er í efnahagsmálum benda til þess að þær kjaraviðræður sem fram fara á árinu verði gríðarlega flóknar og erfiðar. Þær verði þær langflókn- ustu síðan hann hóf aðkomu að samningagerð árið 2009. Fulltrúar verslunar hafa boðað verðhækkanir næstu mánuði, einkum vegna hækkandi olíuverðs. Verðbólga er 5,7 prósent. Stýrivextir eru 2 prósent og verða sennilega hækkaðir ríf lega í dag. Húsnæðis- verð hækkaði um meira en 12 pró- sent í fyrra og ríkissjóður tapaði um 500 milljónum á dag. 50 kjarasamn- ingar losna í október og nóvember. Ragnar segir leigu venjulegrar íbúðar hafa hækkað úr 280 þúsund krónum í 310 á tveimur árum. „Ég þarf að semja um 50 þúsund króna launahækkun fyrir þennan hóp, bara til þess að standa undir vísi- töluhækkun leiguverðs,“ segir hann. VR er nú að gera umfangsmikla könnun hjá félagsmönnum sínum. Spurt er út í heildarmyndina, rétt- indahlutann og kröfur utan við launaliðinn sjálfan. Hann er mót- aður út frá því sem talið er að hag- kerfið þoli. Alvöru viðræður við atvinnurekendur hefjist svo í vor. Hjá Starfsgreinasambandinu er einnig undirbúningur undir kröfu- gerð í gangi. Björn Snæbjörnsson formaður gerir ráð fyrir að vinna félaganna með félagsmönnum sínum ljúki í mars og kröfugerð verði til fyrir miðjan maí. „Verðbólga er kjararýrnun og fólk vill sækja hana til baka ef ekki verður hægt að koma böndum á verðbólguna,“ segir Björn. Bæði Björn og Ragnar benda á að ríkið þurfi að koma inn til að liðka fyrir viðræðunum eins og við gerð Lífskjarasamninganna árið 2019, en þá lofaði ríkisstjórnin aðgerðum í 42 liðum. Björn bendir á að margt hafi enn ekki verið efnt, svo sem er varðar húsnæðismál, verðtryggingu og löggjöf um húsaleigu og starfs- kjör. „Þau verða að hysja upp um sig buxurnar og klára það,“ segir hann. „Ríkisstjórnin hefur stutt mjög myndarlega við atvinnulífið en stuðningurinn við fólkið er tak- markaður,“ segir Ragnar um aðgerð- ir í faraldrinum. Stærsta aðgerðin fyrir fólk hafi verið að leyfa því að taka út séreignarsparnaðinn sinn. 30 milljarðar hafi verið teknir út og ríkissjóður tekið 12 í skatt. Aðkoma ríkisins skipti höfuðmáli í ljósi komandi dýrtíðar og verð- hækkana. „Ef hið opinbera myndi bregðast við þessum erlenda þrýst- ingi, meðal annars í gegnum virðis- aukaskatt og tolla, myndi það tala mjög sterkt inn í kjarasamningana. En ef þau sitja á hliðarlínunni mun það gera stöðuna enn þá erfiðari og flóknari.“ Björn segir barnafólk hafa orðið út undan og að ríkið verði að styðja við þennan hóp í gegnum vaxta- og barnabótakerfið. Samtök atvinnulífsins hafa bent á að samningarnir geti orðið flóknir vegna misjafnrar stöðu atvinnu- greina. Ragnar tekur undir að þetta auki á flækjustigið, sem og að staða félagsmanna stéttarfélaga sé einnig mismunandi. Björn segir hins vegar að það verði erfitt að mismuna verkafólki hvort sem það vinni hjá Jóni eða Páli. Einnig að þau fyrirtæki sem illa hafi farið út úr faraldrinum hafi verið ríflega styrkt af ríkissjóði. n Flókin og erfið staða fyrir viðræður í ljósi yfirvofandi dýrtíðar á árinu Fulltrúar verslunarinnar hafa boðað verðhækkanir næstu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR kristinnhaukur@frettabladid.is SLYS Ragnar Guðmundsson, rann- sakandi hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, segir önnur gögn en f lug vélina sjálfa ekki geta skýrt f lugslysið í Þingvallavatni. Vélina verði að rannsaka. Kallað hefur verið eftir myndefni úr nær- liggjandi sumarhúsahverfi. Einn- ig hefur því verið velt upp hvort mennirnir fjórir hafi tekið upp myndefni, sem annað hvort sé í myndavélum í vatninu eða upp- halað. „Við lítum enn þá mjög vítt á málið og erum ekki byrjuð að líta á einstaka þætti,“ segir Ragnar. Verið sé að safna öllum gögnum sem tengjast málinu. Hann segist á þessum tímapunkti ekki getað tjáð sig um einstaka rannsóknarþætti málsins. Nefndin vinnur fyrst vettvangsrannsókn á vélinni. Hún hefur reynst erfið þar sem vélin er undir vatni. Aðeins hefur verið hægt að skoða hana með kaf báta- myndavélum. Þegar vélin hefur verið hífð upp úr vatninu fer fram svokölluð frumrannsókn í skýli Rannsóknar- nefndarinnar. Þar eru hin ýmsu kerfi vélarinnar skoðuð. „Fyrst þá fer að skýrast í hvaða átt rann- sóknin beinist,“ segir Ragnar. Að sækja f lugvélina er ekki auð- velt verk og aðstæður á þessum árstíma ekki góðar til þeirrar aðgerðar. Mikilvægt er hins vegar að sækja vélina sem fyrst að mati Ragnars því að sýni gætu hæglega mengast, svo sem eldsneytissýni og olía. Bendir hann hins vegar á að það sé mun skárra að vélin sé í ferskvatni heldur en í sjó. n Önnur gögn geti ekki skýrt slysið ein og sér Ólafur Stephen- sen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda arib@frettabladid.is VIÐSKIPTI Félag atvinnurekenda hefur sent Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Svandísi Svavarsdóttur matvæla- ráðherra ítrekun á erindi sínu til ráðuneytanna þar sem farið er fram á endurskoðun tolla á blómum. Fyrra erindi var sent fyrir ári. „Þarna er mjög auðgripið tæki- færi fyrir stjórnvöld til að lækka tolla sem myndu hafa veruleg áhrif á verðlag á blómum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. „Við leggjum til leiðir sem hægt er að fara til að lækka tollana og lækka verð án þess að það kippi fót- unum undan innlendri framleiðslu á blómum enda er hún mjög tak- mörkuð og annar ekki eftirspurn á markaðnum.“ n Telur það auðsótt að lækka verð til muna á blómum bth@frettabladid.is KÓPAVOGUR Mál vegna bruna- varna áfangaheimilis við Fannborg í Kópavogi hefur verið í gangi í tæpt ár en ekki hefur verið brugðist við athugasemdum frá slökkviliðinu og byggingarfulltrúa Kópavogs. Þetta segir Sigríður Björg Tómasdóttir, almannatengill Kópavogsbæjar. Sigríður segir slökkviliðið hafa gert úttekt á húsnæðinu í ágúst og í kjölfar þess hafi borist beiðni til byggingarfulltrúa um að húsnæðið yrði rýmt. Gefinn var rúmur frestur til úrbóta en athugasemdum ekki sinnt. Eigandi húsnæðis er Árkór en Betra líf er með húsið á leigu. „Brunavarnir í húsnæðinu eru óásættanlegar og þar sem húsnæð- ið er skrifstofuhúsnæði er búseta í því óheimil. Ekki er hægt að gefa undanþágu á brunavörnum. Þarna búa einstaklingar við óviðunandi brunavarnir,“ segir Sigríður Björg. n Búseta í Fannborg er í raun óheimil 4 Fréttir 9. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.