Fréttablaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 6
Staðan er sú að ráð-
húsið er búið að
böggla þessu saman í
einn hnút og situr
núna eiginlega uppi
með skömmina af því
að hafa verið að draga
okkur á asnaeyrunum.
Hrafn Jökulsson
Efling-stéttarfélag • Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík • Sími 510 7500
Stjórnarkosning
í Eflingu-stéttarfélagi 2022
Stjórnarkosning í Eflingu-stéttarfélagi er hafin og stendur
til kl. 20.00 hinn 15. febrúar n.k.
Atkvæðisrétt eiga allir fullgildir félagsmenn í Eflingu-
stéttarfélagi.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu félagsins þar sem jafn-
framt er tekið við kjörskrárkærum.
Kosningin er rafræn og fer fram á vef Eflingar, www.efling.is.
Til að kjósa þarf rafræn skilríki.
Þau sem vilja ekki kjósa rafrænt eða hafa ekki rafræn skilríki
geta mætt á skrifstofu Eflingar í Guðrúnartúni 1 í Reykjavík
eða á skrifstofuna í Hveragerði að Breiðumörk 19 og greitt
atkvæði.
Á báðum stöðum er opið: miðvikudaginn 9. til sunnudagsins
13. febrúar kl. 09:00 til 15:00 og mánudaginn 14. og þriðju-
daginn 15. febrúar frá kl. 09.00 til 20.00.
Framvísa ber fullgildum persónuskilríkjum með mynd.
Reykjavík, 9. febrúar 2022
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags
Forsætisráðuneytið hyggst
styðja við og greiða fyrir
rannsókn Reykjavíkurborgar
á vöggustofum er starfræktar
voru í Reykjavík á síðustu öld.
Borgarstjóri hét stuðningi
borgaryfirvalda síðasta
sumar en málið hefur tafist í
stjórnsýslunni og lítið áorkast
í rúmt hálft ár.
tsh@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Borga r y f ir völd
hafa ekki staðið við loforð sín um
rannsókn á starfsemi vöggustofa í
Reykjavík á síðustu öld, segja tveir
fimmmenninganna sem vöktu upp
haf lega at hygli á málinu síðasta
sumar. Málið hefur tafist í stjórn
sýslunni í rúmt hálft ár en forsætis
ráðuneytið segist nú reiðubúið að
styðja við og greiða fyrir rannsókn
borgarinnar eins og þörf krefur.
Árni H. Kristjánsson og Hrafn
Jökulsson, tveir fimmmenning
anna, saka borgaryfirvöld um að
drepa málinu á dreif og kalla á skýr
svör um framhaldið.
„Staðan er sú að ráðhúsið er búið
að böggla þessu saman í einn hnút
og situr núna eiginlega uppi með
skömmina af því að hafa verið að
draga okkur á asnaeyrunum,“ segir
Hrafn.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins munu borgaryf irvöld
funda með fulltrúum forsætisráðu
neytisins um málið í dag og hafa
fjórir eftirlifandi meðlimir fimm
menninganna verið boðaðir á fund
borgarritara á fimmtudag.
Í kjölfar þess að fimmmenning
arnir gengu á fund Dags B. Eggerts
sonar í júlí 2021 lýsti borgarstjóri
því yfir að borgarráð myndi fara
þess á leit við forsætisráðherra að
gera almenna og heildstæða athug
un á starfsemi Vöggustofunnar að
Hlíðarenda og Vöggustofu Thor
valdsensfélagsins frá 5. til 8. ára
tugar síðustu aldar.
Í september síðastliðnum fund
uðu fimm menningarnir svo með
Þor steini Gunnars syni borgar ritara
og í kjölfar þess var því lýst yfir að
borgar ráð myndi skipa rann sóknar
nefnd sem fengi fjár magn úr borgar
sjóði fyrir verk efni sín. Tillaga þess
efnis er tilbúin en hefur þó ekki enn
verið lögð fyrir borgar ráð vegna
þess að beðið er eftir aðkomu for
sætisráðuneytisins til að greiða úr
ýmsum sjónarmiðum er snúa að
stjórnsýslu og persónuverndar
lögum.
Árni H. Kristjánsson sagnfræð
ingur lýsir miklum vonbrigðum
með vinnubrögð borgaryfirvalda í
málinu.
„Þær ástæður sem gefnar eru
fyrir kyrrstöðunni standast vart
skoðun. Annars vegar er því haldið
fram að sjónarmið persónuverndar
sé Þrándur í Götu. Það er til skýrt
fordæmi hvað það varðar frá starfs
tíma Vistheimilanefndar sem rann
sakaði allmargar stofnanir þar sem
börn voru vistuð. Eðli þeirra rann
sókna getur ekki verið frábrugðið
rannsókn á starfsemi vöggustofa.
Hins vegar halda borgaryfirvöld því
fram að ríkið hafi áform um að taka
að sér rannsóknina. Allt bendir til
þess að það sé úr lausu lofti gripið.
Að þessu sögðu þá þarf að fá skýr
svör hjá borgaryfirvöldum um
hvort þau ætli að standa við gefið
loforð og hvenær,“ segir hann.
Hrafn Jökulsson tekur í sama
streng og segir það ólíðandi að
málið skuli hafa dregist svo á lang
inn þegar fyrirhuguð rannsókn
hefði hæglega getað hafist síðasta
sumar.
„Það er óskiljanlegt að málinu
skuli nú hafa verið þvælt upp í
forsætisráðuneyti, sem við fimm
menningar eigum ekkert vantalað
við vegna þessa máls. Málið er stopp
hjá embættismönnum Reykja
víkurborgar, sem virðast ekki hlíta
pólitískri leiðsögn. Dagur hlýtur að
standa við sitt,“ segir Hrafn.
„Þetta er ekki bara spurning um
mig eða Árna eða Viðar eða Tómas
eða Fjölni heitinn, þetta eru mörg
hundruð manns sem eru að bíða
eftir því að sjá réttlætið verða og að
menn standi við orð sín.“ n
Ríki og borg funda um vöggustofur
Fimm menningarnir gengu á fund Dags B. Eggertssonar borgar stjóra þann 7. júlí 2021. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
arib@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Samtök leigjenda á
Íslandi hafa sett upp reiknivél á vef
sínum sem sýna á viðmiðunarverð
á leigu hér á landi.
Gunnar Smári Egilsson, ritari
stjórnar samtakanna, segir reikni
vélina gerða að erlendri fyrirmynd.
Þannig fái bæði leigjendur og leigu
salar mynd af sanngjörnu verði sem
stuðli að heilbrigðum leigumarkaði.
„Með því að halda verðinu í myrkri
þá eru öll ráð í höndum þeirra sem
leigja,“ segir hann.
Til dæmis, ef slegið er inn í reikni
vélina 90 fermetra, þriggja her
bergja íbúð í Árbænum í Reykjavík í
slæmu ástandi þá segir að markaðs
leigan sé 145 þúsund krónur á mán
uði og okurmörk séu 175 þúsund
krónur.
„Það var farin sú leið að taka
meðalverð á íbúðum eftir hverfum
og eftir stærð á árinu 2020, nota
það sem stofn. Þá getum við búið til
meðalverð þar sem leigusalinn fær
ávöxtun á eign sinni vegna hækkun
ar á húsnæðisverði, kostnað við að
leigja og greiðslufall, byggt á reynslu
Félagsbústaða,“ segir Gunnar Smári.
„Þetta er byggt á því að húsnæði sé
ekki venjuleg markaðsvara. Það er
hægt að gagnrýna þetta með því að
segja að svona sé ekki markaðurinn
Bæði leigjendur og leigusalar fái
mynd af sanngjörnu leiguverði
Gunnar Smári
Egilsson, ritari
stjórnar Sam-
taka leigenda
Ef slegin er inn í reiknivélina 80 fermetra, tveggja herbergja íbúð í Hlíðunum
í Reykjavík í sæmilegu ástandi þá segir að markaðsleigan sé 158 þúsund
krónur á mánuði og okurmörk séu 190 þúsund krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
en það er stefna Samtaka leigjenda,
hér og úti um allan heim, að hús
næði sé ekki venjuleg markaðs
vara. Ef þú vilt auðgast hratt þá er
hægt að stofna ísbúð, ekki fara inn
á húsaleigumarkað og láta fólk sem
fær ekki greiðslumat borga upp íbúð
á tuttugu ára tímabili.“
Hægt er að nálgast reiknivélina
á vef samtakanna, leigjendasam
tokin.is/reiknivel. n
olafur@frettabladid.is
NEYTENDUR Á sama tíma og verð
bólga mælist hærri en hún hefur
mælst í áratug, verð á matvælum
rýkur upp og fullyrt er að frekari
hækkanir séu í pípunum lækkar
verð á lausasölulyfjum, samkvæmt
verðkönnun sem Veritabus gerði
í síðustu viku í þeim apótekum og
keðjum sem eru með netverslanir.
Kannað var verð hjá Lyfjaveri,
Lyfju og Garðs apóteki, en Lyf og
heilsa eignuðust Garðs apótek á
síðasta ári.
Könnuð var vörukarfa með 68
lausasölulyfjum sem til voru hjá
öllum söluaðilum. Meðalverð körf
unnar var um 150 þúsund krónur.
Mæld var breyting verðs frá síð
ustu verðkönnun ASÍ, sem gerð var
2. nóvember 2021. Á þessu tímabili
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 1,4 prósent. Vörukarfan hafði
hins vegar lækkað hjá öllum apó
tekunum og keðjunum.
Mesta lækkunin var hjá Lyfju,
3,5 prósent. Miðað við 2,3 prósenta
skekkjumörk getur lækkunin legið
á bilinu 1,2 til 5,8 prósent.
Hjá Garðs apóteki lækkaði karfan
um 3 prósent. Miðað við 2,1 pró
sents skekkjumörk getur lækkunin
legið á bilinu 0,9 til 5,1 prósent.
Minnst var lækkunin hjá Lyfja
veri, 0,1 prósent. Miðað við 1,9 pró
senta skekkjumörk getur verðbreyt
ing þar hafa verið frá 1,8 prósenta
hækkun til 2,0 prósenta lækkunar.
Verðlækkun lyfja á sama tíma og
verðlag almennt hækkar mjög getur
gefið vísbendingu um að verðsam
keppni á markaði með lausasölulyf
hafi aukist hér á landi. n
Verðlækkun lyfja
Breyting Óvissa(+/-)
á körfu
Garðs apótek -3% 2,1%
Lyfja -3,5% 2,3%
Lyfjaver -0,1% 1,9%
Vísitala 1,4% 0,0%
neysluverðs
Lyf lækka í verði þótt
verðbólgan rjúki upp
6 Fréttir 9. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ