Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ég hugsa að ég muni taka lög Daft Punk aftur. Organistinn Kristján Hrannar Pálsson tók Daft Punk-lagið Veridis Quo með slíkum til- þrifum á orgelinu að mynd- band af flutningi hans hefur vakið athygli hundraða þús- unda á öldum internetsins og meira að segja náð augum og eyrum félaganna í Daft Punk. odduraevar@frettabladid.is Rúmlega þrjú hundruð þúsund manns hafa horft á YouTube-mynd- band af Kristjáni Hrannari Pálssyni taka Daft Punk-lagið Veridis Quo sínum mögnuðu orgeltökum. „Þetta er ágætis fjöldi, sérstaklega þar sem ég hef ekkert verið að deila þessu nema á Twitter á sínum tíma og svo hefur þetta bara greinilega verið að malla,“ segir Kristján, sem flutti lagið á tónleikum í Laugarnes- kirkju í júní í fyrra. Daft Punk trommaði upp með Verdis Quo á plötunni Discovery sem hafði mikil áhrif á Kristján sem var fjórtán ára þegar hún kom út 2001. Auk Verdis Quo skartar platan lögum á borð við One More Time og Harder, Better, Faster, Stronger og flestir ættu að kannast við. Daft Punk lagði, mörgum að óvör- um, upp laupana 2020 og í samtali við Fréttablaðið á sínum tíma sagði Kristján ætlunina að heiðra minn- inguna á fyrrnefndum tónleikum. „Ég frétti svo að þetta hefði verið sent til þeirra,“ heldur Kristján áfram og rekur hvernig vinur vinar hans, sem hefur einhverjar teng- ingar við tvíeykið, hafi sent þeim Guy-Manuel de Homem-Christo og Thomas Bangalter vídeóið frá tónleikunum. „Þannig að þeir eru búnir að sjá þetta líka, sem er mjög skemmtilegt.“ Voru þeir ekki hrifnir? „Ég held það. Ég náttúrlega veit það ekki og þeir hafa ekkert mikið verið að hafa sig í frammi en jú, jú, ég held þeir hljóti að hafa verið ánægðir,“ segir Kristján og hlær. Magnað hljóðfæri Kristján segir hljóðgervla-, eða syntha- tóna, sveitarinnar smell- passa við orgelið og að margir þeirra sem mættu á tónleikana síðasta sumar hafi verið að koma á sína fyrstu orgeltónleika. „Það sem orgelið gerir svo ótrú- lega vel er að það býr til pínulítið hljóð en líka risastórt hljóð. Daft Punk snýst einmitt um þau hljóð. Orgelið er svo ótrúlega sveigjanlegt hljóðfæri þótt margir haldi eðlilega hið gagnstæða,“ útskýrir Kristján og lifnar auðsjáanlega yfir honum við að ræða kirkjuhljóðfærið mikla. Önnur Daft Punk-veisla „Þú getur í rauninni gert hvað sem er og þetta er eins og að vera með heila hljómsveit inni í hljóð- færinu,“ útskýrir Kristján. „Það eru svo margar mismunandi raddir sem geta túlkað hvert og eitt hljóð- færi í sinfóníuhljómsveit. Það býr yfir óbórödd, það er fagottrödd, strengjarödd og „vox humana“, sem er týpa sem hermir eftir manns- röddinni svo þú getur bókstaflega látið orgelið syngja.“ Kristján segist þegar farinn að huga að næstu tónleikum sem hann stefnir á með vorinu. Hann ítrekar síðan að orgelið smellpassi svo vel við synthapoppið og segir ekkert skemmtilegra en að kynna þetta magnaða hljóðfæri og töfra þess fyrir fleirum og ná þá ef til vill eyrum einhverra sem hafa ef til vill aldrei hlustað á orgel annars staðar en í messu. „Ég hugsa að ég muni taka lög Daft Punk aftur og svo er aldrei að vita nema maður taki bónuslag í lokin, jafnvel Get Lucky,“ segir Krist- ján um lagið sem Daft Punk gerði gríðarlega vinsælt 2013 með aðstoð og aðkomu ekki ómerkari tónlist- armanna en Pharrell Williams og alhliðasnillingsins Nile Rodgers. ■ Magnaðir taktar íslensks organista bárust Daft Punk Organistinn boðar fagnaðarerindið líka utan kirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ari Freyr Ísfeld Óskarsson leikari „Það sem er mest í sjón- varpinu hjá mér þessa dagana eru auðvitað Múmínálfarnir enda á ég einn fjórtán mánaða sem horfir enda- laust á þetta. Svo eru þetta líka frábærir þættir og sá sem leikur Múmínsnáðann gerir það af stakri snilld,“ segir Ari Freyr þegar forvitnast er um hvað hann sé helst að horfa á þessa dagana. „Ég sjálfur er nýbúinn að hámhorfa á báðar seríur af The Great sem er (ó)sönn saga Katrínar Rússlandskeisara- ynju,“ segir Ari Freyr með fyrirvara um sögulegan áreiðanleika. „Skemmti- legir þættir þar sem Elle Fanning og sérstaklega Nicholas Hoult fara á kostum. Ég er að byrja á seinustu seríu af Ozark á Netflix og er spenntur að sjá hvernig sú flækja leysist öll. Svo ef ég er alveg heilalaus þá hendi ég í einn, tvo Seinfeld og fylgist með mínum manni, George Con- stanza, rústa lífi sínu á einhvern hátt.“ ■ Slekkur á heilanum með George ■ Á skjánum 30 Lífið 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ STÓR PIZZA PÖNNUTILBOÐ ALLA DAGA Í FEBRÚAR 1. 590 PEPPERONI • HAWAII • MARGARITA EF ÞÚ SÆKIR pizzahut.is - 515 1617 - Smáralind og Staðarbergi 2–4 Hafnarfirði

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.