Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 40
Ég myndi ekki lýsa þessu sem raunsæis- verki, það er svo erfitt að segja hvað er raun- sætt og hvað er absúrd, en ég myndi segja að þetta væri absúrd gróteskt verk. Leikritið Blóðuga kanínan, sem Elísabet Jökulsdóttir skrifaði árið 2003, fannst fyrir tilviljun á bókasafni Listaháskólans. Verkið er sett upp fyrir svið Tjarnarbíós af leikhópnum Fimbulvetri í samstarfi við Murmur. tsh@frettabladid.is Leikhópurinn Fimbulvetur í sam- starfi við Murmur frumsýnir nýtt leikrit eftir Elísabetu Jökulsdóttur í Tjarnarbíói á morgun, föstudag- inn 11. febrúar. Verkið ber titilinn Blóðuga kanínan og var skrifað fyrir nærri tveimur áratugum en enduruppgötvaðist nýlega þegar ungur leiklistarnemi fann það fyrir tilviljun í bókasafni Listaháskólans. „Þetta er gamalt-nýtt verk. Ég skrifaði það 2003 og það týndist og fannst svo á bókasafni í Listahá- skólanum,“ segir Elísabet um tilurð verksins. „Jökull Smári Jakobsson, sem er náttúrlega næstum því pabbi minn, eða hann er með næstum því sama nafn og pabbi minn, fann leik- ritið á bókasafninu og tók mónólog úr því og setti það fyrir nefndina og komst inn í skólann.“ Elísabet segir verkið hafa runnið upp úr sér á nokkrum vikum árið 2003. Nokkrum árum síðar, þegar hún var við nám í Listaháskólanum, sýndi hún kennara sínum verkið sem hreifst mjög af því. Hún lagði verkið svo til hliðar sem gleymdist og týndist að lokum. Áhrif frá stríðinu í Júgóslavíu Verkið fjallar um Dísu sem rekur veitingastað og gerir sitt besta til að halda honum gangandi þrátt fyrir að úti geisi blóðugt stríð sem eng- inn man hvenær eða af hverju hófst, en Elísabet segist hafa verið undir áhrifum frá borgarastyrjöldinni í Júgóslavíu við skrifin. Einn daginn taka undarlegir hlutir að gerast og furðulegir karakterar birtast á veit- ingastaðnum sem eru eins konar hliðarsjálf Dísu. „Þetta byrjar ósköp sakleysislega, þetta byrjar á því að trúðurinn og barnið, sem eru partur af Dísu, þau koma og biðja um borð af því þau vilja fá að tala við Guð á veitinga- staðnum og fá sér kaffi og djús og þannig. En svo fer auðvitað allt úr böndunum og partarnir taka völdin og hún verður að gjöra svo vel að sættast við þessi hliðarsjálf til þess að verða heil manneskja og geta verið hamingjusöm,“ segir Elísabet. Hún telur að verkið muni koma áhorfendum á óvart, og spurð um hvernig hún myndi lýsa stílnum segir Elísabet: „Ég myndi ekki lýsa þessu sem raunsæisverki, það er svo erfitt að segja hvað er raunsætt og hvað er absúrd, en ég myndi segja að þetta væri absúrd gróteskt verk ... Þetta er líka svona heilandi verk. Af því það er verið að tala um áföll en þetta er ekki bara súrrealísk kómedía, það er það náttúrlega, en svo er þetta líka heilandi verk eins og maður verður að fá þegar verið er að taka áföll til umræðu. Áhorfandinn er ekkert skilinn eftir í einhverri áfallastreitu- röskun heldur er ákveðin heilun í gangi með hvernig persónunni reið- ir af í þessum ólgusjó tilfinninga.“ Hljóð eins og ljóð í salnum Elísabet segist ekki hafa þurft að breyta miklu í textanum þegar hún uppgötvaði verkið aftur en leik- stjóri þess, Guðmundur Ingi Þor- valdsson, og dramatúrg, Matthías Trygg vi Haraldsson, aðlöguðu handritið fyrir sviðið. Elísabet segist ekki hafa tekið virkan þátt í sviðsetningunni en hún fékk þó að sitja með síðasta spölinn. „Undanfarið hef ég fengið að sitja á æfingum á hverjum degi og það er algjör lúxus að fá að fylgjast með af því höfundur er oft ekkert mjög vinsæll svona. Oft hefur mér verið sagt, farðu bara og mættu á frumsýningu, sem er of boðslega vel meint. Höfundar eru oft taldir vilja fara að breyta textanum svo mikið. Ég er nú að fá leyfi til að sitja með á hverjum degi og er náttúrlega bara hljóð eins og ljóð þarna úti í salnum og er ekkert að skipta mér af nema ég sé spurð.“ Spurð um hvort það sé ekki gaman að uppgötva sitt eigið verk aftur eftir allan þennan tíma, segir Elísabet: „Já, þetta er bara held ég svo mikil frjóvgun í sálinni sem verður hjá mér og ég verð svo hamingju- söm, þetta er svo mikill heiður að fá að sjá fólk vinna vinnuna sína, skapandi vinnu sem er svo við- kvæm. Fólk er að gefa úr sér hjartað og leggja allt á borðið. Þetta er svo mikill heiður og hamingja að fá að fylgjast með. Svo eru þetta náttúr- lega bara miklir töffarar, þessir leikarar.“ n Uppgötvaði leikritið aftur eftir nærri tuttugu ár Áhorfandinn er ekkert skilinn eftir í einhverri áfallastreituröskun, segir Elísabet. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Elísabet segir leikara sýningarinnar vera mikla töffara. MYND/TJARNARBÍÓ kolbrunb@frettabladid.is Í tilefni af aldarafmæli Harðar Ágústssonar myndlistarmanns er sýning á Mokka kaffi við Skóla- vörðustíg. Á sýningunni eru ljós- myndir sem Hörður tók á árunum 1964–1965. Myndirnar eru úr safni ljósmynda sem Hörður kallaði Smáheimar og eru gerðar eftir litskyggnum sem Hörður tók af náttúrulegum og manngerðum fyrirbærum eins og frosnu vatni, sandfjöru eða veggj- um. Þær eiga það sameiginlegt að vísa til einhvers konar abstrakt forma, ýmist geómetrískra eða ljóð- rænna og eru í anda ljósmyndara sjötta áratugarins. Því hefur verið haldið fram að í ljósmyndunum megi sjá svipaða nálgun hjá Herði og þegar hann vann að strangflatar- myndum sínum á fyrri hluta sjötta áratugarins. Fyrir utan eina mynd sem birtist á forsíðu Birtings árið 1967 er ekki vitað um að þessi verk hafi áður komið fyrir almennings- sjónir. Sýningin stendur til 23. mars. n Myndir Harðar á Mokka Ein af myndum Harðar á sýningunni. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Dýrfinna Benita Basalan sýnir verk sín í Þulu á sýningunni Temprun ( U w U ). S ý n i n g i n stendur til 27. febrúar. D ý r f i n n a , e i n n i g þekkt sem Countess Malaise, er fædd og uppalin á Íslandi. Árið 2018 útskrifaðist hún f rá Ger r it R iet veld Academie í Amsterdam, með BA- gráðu í myndlist og hönnun. Síðan þá hefur hún unnið sem myndlistarkona og komið fram á ýmsum vettvangi og er þar að auki einn stofnenda listhópsins Lucky 3. Nú síðast voru verk Dýrfinnu til sýnis á sýn- ingunni Fallandi trjám liggur margt á hjarta í Kling og Bang. n Dýrfinna í Þulu Dýrfinna Benita Basalan. Alhliða vertakaþjónusta og öll almenn smíðavinna Drífandi ehf Gunnar / s. 777 8371 gunnariceman@gmail.com ... eignilega allt sem þig vantar að gera. Gluggar, hurðir, kjarnaborun, steinsögun, fræsun, parket, flísar... Undirbúningsstyrkir Styrkir til sýningaverkefna Útgáfu-/rannsóknastyrkir og aðrir styrkir M yn dl is ta rs jó ðu r Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 kr. Umsóknafrestur er til kl. 16:00 þann 14. febrúar 2022 Upplýsingar um myndlistarsjóð, umsóknareyðublað, úthlutunar­ reglur og leiðbeiningar má finna á vefsíðu myndlistarsjóðs, myndlistarsjodur.is Úthlutað verður í marsmánuði. Um er að ræða fyrri úthlutun úr sjóðnum árið 2022. Umsóknarfrestur í myndlistarsjóð rennur út 14. febrúar 24 Menning 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.