Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 30
Nýjasta tískuæðið sem gengur nú yfir er hið svokall- aða „balletcore“ útlit þar sem markmiðið er að líkja eftir útliti ballettdansmeyja. Ég meina, hver heillaðist ekki af Natalie Portman í hlutverki Ninu Sayers í Black Swan? jme@frettabladid.is Annars vegar er um að ræða dans- araútlitið baksviðs, þar sem allt er bleikt, hvítt og ljósgrátt, og legg- hlífar, leikfimibolir, vafðar peysur, stutt pils, gammósíur og flatir ballettskór ráða ríkjum. Hárið er þá jafnan sleikt upp í strekktan hnút og förðunin náttúruleg. Uppstrílaða ballerínan Hins vegar er um að ræða ballett- lúkkið í fullum skrúða og þar eru tjullið og tútúpilsin í algleymingi sem og skór með löngum reimum eða borðum sem vefjast upp fót- leggina. Þessi tiltekna tíska gæti haft eitthvað með endurkomu Sex and the City að gera, enda gleyma fáir bleika bolnum og hvíta tjullpilsinu sem Sarah Jessica Parker skartaði í opnunarsenu þáttaraðarinnar. Hún endurvakti lúkkið rækilega á frumsýningu HBO Max á And Just Like That í New York, sem er ein- mitt nafnið á nýju Sex and the City þáttaröðinni. Tjullið á tískupöllunum Fjölmargir þekktir hönnuðir nikkuðu til ballettdansaramenn- ingarinnar á tískupöllunum fyrir vorið 2022 og notuðu óspart hið einkennandi tjull í f líkur sínar. Sömuleiðis klæddu sýningargestir sig óspart upp í f læðandi tjullpils og bandaskó. n Tjullaðar tískudrottningar Sarah Jessica Parker var ballerínuleg í tjulli með sleiktan hnút á frumsýningu And Just Like That í New York. Vorið 2022 verður tjullað hjá Dior, en þessi tjúllaði kjóll var á tískusýningu merkisins í janúar síðastliðinn í París. Viktor & Rolf sýndi í París í janúar þennan tjullkjól sem minnir óneitanlega á hvítan svan úr einu frægasta ballettverki veraldar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Loora sýndi hér kjól, sem lítur út fyrir að koma beint af ballettsviðinu, í Peking í mars 2021. Leila Ben Khalifa er með puttann á tjullpúlsinum fyrir utan Zuhair Murad-tískusýninguna á tískuvikunni í París. Byggingariðnaðurinn Nánari upplýsingar veitir: Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is • Sími 694 4103 Miðvikudaginn 23. febrúar gefur Fréttablaðið út sérblað um allt sem viðkemur byggingariðnaðinum á Íslandi, hvort það eru bæjarfélög, verktakafyrirtæki, trésmiðjur og söluaðilar byggingarvöru. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér got glýsingaplá s í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 kynningarblað A L LT 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.