Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 20
Veturinn býður líka upp á svo marga möguleika þar sem er endalaust hægt að leika sér með að „layera“ saman hinar ýmsu flíkur í skápnum. S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB Verðhrun á útsölu 50-70%afsláttur Fatahönnuður- inn Magnea Einarsdóttir útskrifaðist úr Central Saint Martin College of Arts árið 2012. Þar lærði hún fatahönnun með áherslu á prjón. Þá lagði Magnea einnig stund á nám við Parson Paris School of Design. Hún rekur verslunina Kiosk Granda við Granda- garð ásamt fleiri íslenskum hönnuðum. MYND/SAGA SIG Góð húfa er einnig ómissandi á veturna að sögn Magneu. Magneu þykir hlý og góð peysa vera staðalbúnaður í kulda. Til dæmis þessi frá BAHNS. Falleg og hlý kápa er algjörlega nauðsynleg í kuldann að mati Magneu. „Ég fékk mér þessi stígvél frá Ganni,“ segir Magnea. „Þau ná upp að hnjám og eru fullkomin í snjóinn.“ Fylgihlutir eru mikilvægir. Í uppá- haldi hjá Magneu eru uppháir hanskar úr kasmír frá Anitu Hirlekar. Magneu Einarsdóttur fata- hönnuði finnst að Íslend- ingar mættu vera duglegri að klæðast fallega litríkum flíkum í skammdeginu, enda bjóði kuldi, myrkur og snjór upp á alls konar skemmti- lega möguleika. „Mér finnst að litagleði og per- sónulegur stíll eigi ekki að þurfa að víkja fyrir kuldanum heldur þvert á móti ættum við að lýsa upp skammdegið með fallegum og litríkum flíkum sem hlýja um leið,“ segir Magnea, spurð hvað henni finnist að fólk megi hafa í huga þegar kemur að klæðnaði á veturna. Hafa Íslendingar tilhneigingu til að fara í hina áttina? „Við erum kannski dálítið gjörn á að klæða okkur í svart,“ segir hún, „en ég hvet fólk til að hugsa sig tvisvar um og nota meiri liti, hvort sem það er vetur, sumar, vor eða haust.“ Sjálf segist Magnea „elska Litagleði og persónulegur stíll mega ekki víkja fyrir kuldanum veturinn þegar kemur að tísku“. „Enda vinn ég mestmegnis með prjón svo ég er kannski ekki alveg hlutlaus,“ viðurkennir hún og hlær. „Veturinn býður líka upp á svo marga möguleika þar sem er endalaust hægt að leika sér með að „layera“ saman hinar ýmsu flíkur í skápnum.“ Beðin um að nefna fimm hluti, föt eða fylgihluti, sem Magneu þykja algjörlega ómissandi í veðráttu eins og þeirri sem hefur ríkt undanfarið, hugsar hún sig um. „Falleg og hlý kápa er algjör- lega nauðsynleg,“ svarar hún svo ákveðin. „Og uppháir hanskar, sem er virkilega fallegt að klæða yfir ermarnar á kápunni. Síðan er hlý og góð peysa auðvitað staðalbúnaður, vönduð húfa líka og há stígvél, sem hægt er að arka um í snjónum.“ Bjartsýn fyrir hönd Íslendinga Þótt nú sé vetur þá er sumarið Magneu efst í huga þessa dagana þar sem hún er að fylgja eftir framleiðslu á línu fyrir vorið og hefja undirbúning að sumarlínu fyrir næsta ár. „Ég er stödd á Ítalíu þar sem ég er að heimsækja efna- sýningar, framleiðendur og fyrir- tæki sem ég starfa með,“ útskýrir hún fyrir blaðamanni í gegnum símann. „Héðan flýg ég svo til Par- ísar og ætla að kíkja á efnasýningu fyrir sumarið 2023.“ Það er létt í henni hljóðið enda segir Magnea dásamlegt að komast loksins út fyrir landsteinana, hitta kollega og kynnast nýjungum í tískubransanum. Upplifir hún mikinn mun á bransanum úti og hér heima? „Miðað við þann ítalska þá er sá íslenski náttúrlega agnarsmár,“ svarar hún. „En hann á framtíðina fyrir sér.“ Í því samhengi bendir Magnea á að alþjóðlegi tískuiðnaðurinn standi frammi fyrir miklum áskorunum um þessar mundir. Á sýningunum á Ítalíu séu megin- stefin til að mynda sjálfbærni, umhverfisvernd og virðing fyrir náttúrunni og segist hún telja að þar liggi einmitt sóknarfæri Íslend- inga. „Við á Íslandi stöndum nefni- lega framarlega á því sviði og þar trúi ég að möguleikar íslenskrar fatahönnunar liggi hvað helst.“ Það er ekki annað heyra en að hún sé bjartsýn fyrir hönd íslenskra fatahönnuða? „Já, heldur betur.“ ■ 4 kynningarblað A L LT 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.