Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 41
Ég segi ekki áhorfand- anum hvernig hann eigi að skilja verkin. Rafrænn aðalfundur Origo hf. verður haldinn fimmtudaginn 3. mars 2022 kl. 14 Dagskrá fundarins 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið rekstrarár 2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu 3. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og fyrir setu í undirnefndum 4. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu félagsins 5. Kosning stjórnar félagsins 6. Kosning endurskoðanda 7. Tillaga stjórnar um staðfestingu á skipan tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd 8. Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá 9. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga 10. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins: • Stjórn leggur til að heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár í grein 15.1 verði endurnýjuð og nái til þess að hækka hlutafé félagsins í einu lagi eða áföngum um allt að kr. 30.000.000 að nafnverði með áskrift nýrra hluta. Að öðru leyti verði heimildin í samræmi við gildandi grein 15.1 í samþykktum félagsins. • Þá leggur stjórn til að grein 15.2 í samþykktum félagsins verði eytt enda er gildistími heim- ildarinnar útrunninn. 11. Önnur mál Stjórn félagsins hefur ákveðið í samræmi við grein 4.4. í samþykktum félagsins að aðalfundur verði eingöngu haldinn rafrænn. Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins https://www.origo.is/um-origo/adalfundur. Fundurinn fer fram í gegnum tæknibúnaðinn Lumi þar sem hluthafar geta fylgst með aðalfundarstörfum og tekið þátt í atkvæðagreiðslum. Nánari leiðbeiningar og upplýsingar um rafræna þátttöku, aðgangsorð og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins. Sérstök athygli er vakin á því að u.þ.b. fimm virka daga getur tekið að fá sent aðgangsorð og hluthöfum því bent að sækja um aðgangsorð tímanlega. Hluthöfum sem þess óska er velkomið að vera viðstaddir aðalfund félagsins í ráðstefnusal félags- ins að Borgartúni 37, að því marki sem ekki er brotið gegn takmörkunum á samkomum. Atkvæða- greiðslur og umræður verða einungis rafrænar á aðalfundinum. Þeir hluthafar sem óska eftir að vera viðstaddir skulu senda tölvupóst til fjarfestatengsl@origo.is og munu þeir fá svar svo fljótt sem auðið er um hvort hægt sé að taka á móti þeim, í ljósi takmarkana á samkomum. Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 14:00 mánudaginn 21. febrúar 2022. Tillögur skulu berast á netfangið stjorn@origo.is. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Aðrar upplýsingar Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins, frá og með 17. febrúar 2022 í samræmi við samþykktir félagsins. Hluthöf- um er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynningar um framboð skulu berast á stjorn@origo.is. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn. Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um samsetningu stjórnar er aðgengileg á heimasíðu fé- lagsins. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Tillaga stjórnar um staðfestingu á skipan tveggja nefndarmanna í tilnefn- ingarnefnd er aðgengileg á heimasíðu félagsins. Reykjavík, 10. febrúar 2022, stjórn Origo hf. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is. kolbrunb@frettabladid.is Stefnumót við sjálfið er yfirskrift sýningar á vídeóverkum og ljós- myndum eftir Ásdísi Sif Gunnars- dóttur í Nýlistasafninu. Sýningin stendur til 6. mars. „Á sýningunni eru valin vídeó- verk frá árunum 2000–2022 og skjámyndir úr þeim,“ segir Ásdís. „Frá árinu 2000 hef ég af og til tekið upp vídeó með kameru fyrir framan mig þar sem ég er á nokkurs konar eintali við sjálfa mig. Þaðan sprettur heiti sýningarinnar. Umhverfið er mismunandi en ég er oft inni í stúd- íói eða úti í náttúrunni.“ Á myndböndunum fer Ásdís með texta, venjulega ljóð eftir sjálfa sig. „Það má líkja ljóðunum við popp- texta, þau fjalla um tilfinningar og eru nokkurs konar spegilmynd af sjálfri mér.“ Spurð hverju hún vilji koma til skila í verkum sínum segir hún: „Ég segi ekki áhorfandanum hvernig hann eigi að skilja verkin en ég býð upp á upplifun og tengingu inn í myndheim minn.“ Ásdís Sif útskrifaðist með BFA- gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA-gráðu frá University of California, Los Angeles, árið 2004 með áherslu á vídeó- og gjörningalist. Spurð hver hafi verið mesta breytingin á þess- um árum í vídeólistinni segir hún: „Það sem hefur verið erfitt fyrir mig er að tæknin breytist svo mikið og hratt, það eru svo margir mismun- andi miðlar sem ég þarf að læra á og á stuttum tíma. En það sem mér finnst skemmtilegast við að vinna í vídeólist og gjörningalist er að þetta eru form sem tengja saman kvik- myndagerð, myndlist og ljóðlist.“ Ásdís Sif hefur frá upphafi ferils síns sýnt bæði á einka- og sam- sýningum víða innanlands og á alþjóðavettvangi, meðal annars í Listasafninu á Akureyri, Hverfis- gallerí, Listasafni Reykjavíkur, Centre Pompidou og Tate Gallery. ■ Býður upp á upplifun Ásdís Sif Gunnarsdóttir myndlistarkona. FIMMTUDAGUR 10. febrúar 2022 Menning 25FRÉTTABLAÐIÐ kolbrunb@frettabladid.is Rótlaus er sýning Myndlistarfélags- ins Litku í Art67 að Laugavegi 61. Á sýningunni eru sýnd verk 23 lista- manna sem allir eru félagar í Litku en listamennirnir koma víða að. Titill sýningarinnar, Rótlaus, vísar til þeirra breytinga sem heimurinn hefur gengið í gegnum og þeirra áskorana sem fylgja því að þurfa að finna sig upp á nýtt í breyttri heimsmynd. Sýningin, sem mun standa til 28. febrúar, er sölu- sýning. Litka er félag fólks á öllum aldri sem sameinast í áhuga sínum á myndlist. Félagið var stofnað árið 2009. ■ Rótlaus í Art67 Verk á sýningunni. MYND/AÐSEND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.