Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 41
Ég segi ekki áhorfand-
anum hvernig hann
eigi að skilja verkin.
Rafrænn aðalfundur
Origo hf.
verður haldinn fimmtudaginn 3. mars 2022 kl. 14
Dagskrá fundarins
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið rekstrarár
2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á
reikningsárinu
3. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og fyrir setu í undirnefndum
4. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu félagsins
5. Kosning stjórnar félagsins
6. Kosning endurskoðanda
7. Tillaga stjórnar um staðfestingu á skipan tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd
8. Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá
9. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
10. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins:
• Stjórn leggur til að heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár í grein 15.1 verði endurnýjuð og
nái til þess að hækka hlutafé félagsins í einu lagi eða áföngum um allt að kr. 30.000.000
að nafnverði með áskrift nýrra hluta. Að öðru leyti verði heimildin í samræmi við gildandi
grein 15.1 í samþykktum félagsins.
• Þá leggur stjórn til að grein 15.2 í samþykktum félagsins verði eytt enda er gildistími heim-
ildarinnar útrunninn.
11. Önnur mál
Stjórn félagsins hefur ákveðið í samræmi við grein 4.4. í samþykktum félagsins að aðalfundur verði
eingöngu haldinn rafrænn. Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins
https://www.origo.is/um-origo/adalfundur. Fundurinn fer fram í gegnum tæknibúnaðinn Lumi
þar sem hluthafar geta fylgst með aðalfundarstörfum og tekið þátt í atkvæðagreiðslum. Nánari
leiðbeiningar og upplýsingar um rafræna þátttöku, aðgangsorð og atkvæðagreiðslu er að finna á
heimasíðu félagsins. Sérstök athygli er vakin á því að u.þ.b. fimm virka daga getur tekið að fá
sent aðgangsorð og hluthöfum því bent að sækja um aðgangsorð tímanlega.
Hluthöfum sem þess óska er velkomið að vera viðstaddir aðalfund félagsins í ráðstefnusal félags-
ins að Borgartúni 37, að því marki sem ekki er brotið gegn takmörkunum á samkomum. Atkvæða-
greiðslur og umræður verða einungis rafrænar á aðalfundinum. Þeir hluthafar sem óska eftir að
vera viðstaddir skulu senda tölvupóst til fjarfestatengsl@origo.is og munu þeir fá svar svo fljótt
sem auðið er um hvort hægt sé að taka á móti þeim, í ljósi takmarkana á samkomum.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá
hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um
það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka
mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir
fundinn, þ.e. fyrir kl. 14:00 mánudaginn 21. febrúar 2022. Tillögur skulu berast á netfangið
stjorn@origo.is.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki
atkvæðisréttar.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt
atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á
að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um
skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins
og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á
skrifstofu félagsins, frá og með 17. febrúar 2022 í samræmi við samþykktir félagsins. Hluthöf-
um er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir
hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynningar um framboð skulu berast á stjorn@origo.is.
Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfundinn.
Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um samsetningu stjórnar er aðgengileg á heimasíðu fé-
lagsins. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur
dögum fyrir aðalfund. Tillaga stjórnar um staðfestingu á skipan tveggja nefndarmanna í tilnefn-
ingarnefnd er aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Reykjavík, 10. febrúar 2022,
stjórn Origo hf.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn
er að finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is.
kolbrunb@frettabladid.is
Stefnumót við sjálfið er yfirskrift
sýningar á vídeóverkum og ljós-
myndum eftir Ásdísi Sif Gunnars-
dóttur í Nýlistasafninu. Sýningin
stendur til 6. mars.
„Á sýningunni eru valin vídeó-
verk frá árunum 2000–2022 og
skjámyndir úr þeim,“ segir Ásdís.
„Frá árinu 2000 hef ég af og til tekið
upp vídeó með kameru fyrir framan
mig þar sem ég er á nokkurs konar
eintali við sjálfa mig. Þaðan sprettur
heiti sýningarinnar. Umhverfið er
mismunandi en ég er oft inni í stúd-
íói eða úti í náttúrunni.“
Á myndböndunum fer Ásdís með
texta, venjulega ljóð eftir sjálfa sig.
„Það má líkja ljóðunum við popp-
texta, þau fjalla um tilfinningar og
eru nokkurs konar spegilmynd af
sjálfri mér.“
Spurð hverju hún vilji koma til
skila í verkum sínum segir hún: „Ég
segi ekki áhorfandanum hvernig
hann eigi að skilja verkin en ég býð
upp á upplifun og tengingu inn í
myndheim minn.“
Ásdís Sif útskrifaðist með BFA-
gráðu frá School of Visual Arts í
New York árið 2000 og MA-gráðu
frá University of California, Los
Angeles, árið 2004 með áherslu á
vídeó- og gjörningalist. Spurð hver
hafi verið mesta breytingin á þess-
um árum í vídeólistinni segir hún:
„Það sem hefur verið erfitt fyrir mig
er að tæknin breytist svo mikið og
hratt, það eru svo margir mismun-
andi miðlar sem ég þarf að læra á
og á stuttum tíma. En það sem mér
finnst skemmtilegast við að vinna í
vídeólist og gjörningalist er að þetta
eru form sem tengja saman kvik-
myndagerð, myndlist og ljóðlist.“
Ásdís Sif hefur frá upphafi ferils
síns sýnt bæði á einka- og sam-
sýningum víða innanlands og á
alþjóðavettvangi, meðal annars í
Listasafninu á Akureyri, Hverfis-
gallerí, Listasafni Reykjavíkur,
Centre Pompidou og Tate Gallery. ■
Býður upp á upplifun
Ásdís Sif Gunnarsdóttir myndlistarkona.
FIMMTUDAGUR 10. febrúar 2022 Menning 25FRÉTTABLAÐIÐ
kolbrunb@frettabladid.is
Rótlaus er sýning Myndlistarfélags-
ins Litku í Art67 að Laugavegi 61. Á
sýningunni eru sýnd verk 23 lista-
manna sem allir eru félagar í Litku
en listamennirnir koma víða að.
Titill sýningarinnar, Rótlaus,
vísar til þeirra breytinga sem
heimurinn hefur gengið í gegnum
og þeirra áskorana sem fylgja því
að þurfa að finna sig upp á nýtt í
breyttri heimsmynd. Sýningin, sem
mun standa til 28. febrúar, er sölu-
sýning.
Litka er félag fólks á öllum aldri
sem sameinast í áhuga sínum á
myndlist. Félagið var stofnað árið
2009. ■
Rótlaus í Art67
Verk á sýningunni. MYND/AÐSEND