Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 34
Rúrik Gíslason var í framboði árið 2016. Björgvin Páll á að baki 240 leiki fyrir Íslands hönd og var hluti af silfurliði Íslands á Ólympíuleikunum og bronsliði Íslands á Evrópumótinu. 18 Íþróttir 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR Björgvin Páll Gústavsson til- kynnti í vikunni að hann gæfi kost á sér í framboði Fram- sóknar fyrir komandi borgar- stjórnarkosningar. Nokkur dæmi eru um að þingmenn eða sveitarstjórnarfólk eigi ríkan bakgrunn á sviði íþrótta og tók Fréttablaðið saman nokkur dæmi um fólk sem náði góðum árangri innan vallar og fór í pólitík. kristinnpall@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Það voru eflaust margir sem ráku upp stór augu þegar Björg- vin Páll Gústavsson, markmaður íslenska landsliðsins í handbolta, tilkynnti í vikunni að hann hygðist taka þátt í sveitarstjórnarkosning- um og sæktist eftir 1. til 2. sæti hjá Framsókn í Reykjavíkurborg. Fyrr í mánuðinum hafði Björgvin velt því fyrir sér að bjóða sig fram í borgarstjórnarhlutverkið og snerist framboðsyfirlýsing markmannsins helst um að hann ætli sér að berjast fyrir hag barna. Í tilefni þess tók Fréttablaðið saman nokkra af þeim íslenska afreksíþróttamönnum sem leidd- ust inn á svið stjórnmála eftir að íþróttaferlinum lauk. ■ Ekki fyrsti íþróttakappinn sem færir sig yfir í stjórnmál Ingi Björn Albertsson Markahrókurinn fetaði í fótspor föður síns víðs vegar á lífsleiðinni. Líkt og Albert fékk Ingi, sem er næstmarkahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi, tækifærið hjá íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu áður en hann gerðist þingmaður. Ingi Björn sat eitt kjörtímabil á þingi. Albert Guðmundsson Fyrsti atvinnumaður Íslendinga, sem lék meðal ann- ars með AC Milan, Arsenal, Rangers og RC Paris. Eftir að leikmannaferlinum lauk var hann kosinn á þing 1974 og bauð sig fram í forsetakosningunum 1980. Hann átti síðar eftir að taka við embætti fjármála- ráðherra og iðnaðarráðherra. Hanna Katrín Friðriksson Annar af tveimur fulltrúum Viðreisnar sem eiga landsleiki að baki fyrir kvennalandslið Íslands. Hanna Katrín lék fyrsta leik sinn fyrir Íslands hönd á táningsaldri og lék alls 36 leiki fyrir A-landsliðið. Willum Þór Þórsson Ólíkt öðrum á þessum lista náði Willum ekki landsleik en hann átti farsælan feril í efstu deild. Eftir að leikmannaferlinum lauk tók við enn farsælli þjálfaraferill þar sem Willum varð þrisvar Íslandsmeistari. Willum var kosinn inn á þing árið 2013 og hefur haldið sæti sínu alla tíð síðan þá, meðal annars samhliða þjálfarastarfi um tíma og er hann í dag ráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Þorgerður Katrín lék handbolta á árum áður og náði tveimur landsleikj- um fyrir A-landsliðið. Þorgerður átti fleiri leiki fyrir yngri landslið Íslands en hún hefur eytt stærstum hluta síðasta aldarfjórðungs á þinginu auk þess að ala upp landsliðsmanninn Gísla Þorgeir. Markmaðurinn var á sínu fimmtánda stórmóti í röð með íslenska landsliðinu í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.