Morgunblaðið - 21.01.2022, Síða 9

Morgunblaðið - 21.01.2022, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2022 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Staðfest hefur verið að brislingur hrygndi í Ísafjarðardjúpi á síðasta ári og trúlega hefur hrygning átt sér stað á fleiri stöðum. Fiskum af tegundinni hefur farið fjölgandi á síðustu árum, en hún fannst fyrst við landið, svo staðfest sé, árið 2017. Hrygning við landið er talin auka líkur á að brislingur nái fótfestu hér og til framtíðar verði hægt að nýta hann. Jón Sólmundsson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, vill þó hafa fyrirvara á og segir að hita- stig og aðrar umhverfisaðstæður muni ráða mestu um hvort brisl- ingur festir sig í sessi og verði mik- ilvæg tegund í vistkerfi Íslands- miða. Líkur ungsíld Jón telur ekki ólíklegt að eitthvað af brislingi hafi farið fram hjá mönnum við rannsóknir síðustu ára enda sé brislingur líkur ungsíld. Tegundin gæti því hafa verið stað- fest seinna en ella hér við land. Jón segir að á næstu árum þurfi að fylgjast með þróuninni og ef stofn- inn fari vaxandi þurfi að fylgjast með vexti hans með frekari rann- sóknum, t.d. með flottrolli og berg- málsmælingum. Líklegast er talið að lirfur brisl- ings hafi borist til landsins með haf- straumum og þær síðan alist upp við landið. Kynþroska verður fisk- urinn 2-3 ára, þá rúmlega 10 senti- metrar að lengd. Fiskar yfir 10 cm hafa fundist á nokkrum stöðum við landið og flestir brislingar sem hafa verið kynþroskagreindir hafa verið kynþroska. Brislingur er veiddur í einhverjum mæli í fjörðum og sund- um við Færeyjar og er trúlegt að lirfurnar hafi borist þaðan. Jón tekur þó fram að hvorki egg, lirfur né fullorðnir fiskar hafi fund- ist á hafsvæðinu milli Íslands og Færeyja. Erfðasýnum hefur verið safnað úr íslenskum brislingi og mögulega gætu þau veitt upplýs- ingar um uppruna hans. Um þessa nýju fisktegund við Ís- land er fjallað í grein í Náttúru- fræðingnum, útgefendur Hið ís- lenska náttúrufræðifélag og Náttúruminjasafn Íslands. Þar kem- ur fram að árið 2017 veiddist brisl- ingur í fyrsta sinn á Íslandsmiðum svo vitað sé. Á næstu árum fjölgaði brislingum sem veiddust við landið og í rannsóknarleiðangri í mars 2021 fengust alls 375 brislingar, einkum fyrir Suður- og Vesturlandi. Í leið- öngrum haustið 2021 fengust um 300 brislingar, nokkrir við Suður- land og í Faxaflóa en flestir í Arn- arfirði og Ísafjarðardjúpi. Danir stórtækastir Brislingur er smávaxinn uppsjáv- arfiskur af síldaætt og algengur við strendur meginlands Evrópu allt suður til Afríku, einkum á minna en 50 metra dýpi. Frá árinu 1994 hefur ársaflinn yfirleitt verið 500-700 þús- und tonn. Langstærstur hluti aflans er veiddur undan ströndum Norð- vestur-Evrópu og eru Danir þar stórtækastir; veiddu um 37% heild- araflans á árunum 2010-2018. Þar á eftir komu Svíar með 14% og Pól- verjar með 12%. Stærstur hluti aflans er unninn í mjöl og lýsi, en lít- ilsháttar markaður er fyrir hann til manneldis, ýmist ferskan, reyktan eða niðursoðinn, að því er fram kem- ur í greininni í Náttúrufræðingnum. Ásamt Jóni Sólmundarsyni eru höfundar greinarinnar í Náttúru- fræðingnum þau Jónbjörn Pálsson, Guðjón Már Sigurðsson, Ingibjörg G. Jónsdóttir, Klara B. Jakobs- dóttir, Nicholas Hoad og Valur Bogason. Brislingur farinn að hrygna við landið - Fannst hér fyrst 2017 - Fiskum af tegundinni hefur farið fjölgandi - Gæti fest sig í sessi Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Náttúrufræðingurinn Af síldaætt Brislingur á efri myndinni og smásíld á þeirri neðri, um 15 cm langir fiskar. Brislingurinn er fjögurra ára en síldin eins árs. Brislingur er auðgreindur frá síld á þunnri kviðrönd með þunnum snarptenntum kili og á því að rætur kviðugga eru undir eða rétt framan við upphaf bakugga. Einnig eru kvarnir brislings og síldar ólíkar. Kringlan í alfaraleið Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða á tölvupósti info@finnssonbistro.is Alvöru steik fyrir bóndann! Í boði alla helgina Nautalund 4.990kr. 300gr. með frönskum og bernaise Aðeins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.