Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2022, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2022, Síða 32
SUNNUDAGUR 20. MARS 2022 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 539.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 559.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,- STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 479.000,- TRATTO model 2811 L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,- L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,- L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Danski leikarinn Nikolaj Coster-Waldau viðurkennir að það hafi verið erfitt, kalt og krefjandi að leika í nýjustu kvikmynd sinni, Against the Ice, sem nú er aðgengileg á Netflix. Þar fer hann með hlutverk danska landkönnuðarins Ejnars Mikkelsens sem skipulagði leiðangur á Shannon Island á Austur-Grænlandi árið 1909 til að freista þess að komast að örlögum leiðangursmanna úr öðrum dönskum leiðangri sem farinn hafði verið skömmu áður. Myndin var að miklu leyti tekin upp á Íslandi. „Mitt hlutverk sem leikara varð miklu léttara þar sem myndin var tekin upp úti í náttúrunni, á stöðum sem líkjast þeim sem leiðangurinn kom á. Ég reyndi bara að bregðast við umhverfinu sem gat verið býsna öfgakennt,“ segir hann í samtali við Nett- avisen. Mikkelsen glímir m.a. við ísbirni í myndinni en Cos- ter-Waldau slapp vel frá þeim hluta enda var ræstur út stað- gengill með bakgrunn í júdói, auk þess sem tæknibrellum var beitt. Ísbirnir eru engin lömb að leika við. Reuters Leikarinn Nikolaj Coster-Waldau mátti hafa sig allan við við tök- urnar á Íslandi og Grænlandi. AFP/Ronny HARTMANN Nikolaj Coster-Waldau þurfti á góðri loðbrók að halda við tökur á Against the Ice. Gætinn og ráðsettur borgari leit við á ritstjórn Morgunblaðsins um miðjan mars 1942 með frá- sögn sem var þess verð að henni væri gaumur gefinn. Ungur enskur hermaður var sum sé að stjórna umferð í Reykjavík, alvarlegur og festu- legur á svip. „Þarna bar að ís- lenskan námsmann, hann gekk til Bretans, gretti sig og rak út úr sjer tunguna fyrir aftan hann, gekk fram hjá honum og í kring- um hann og yppti öxlum um leið,“ sagði sá gætni og ráðsetti. „Að þessu loknu gekk hann yfir götuna, en þar stóðu nokkrir skólanemendur. Virtist mjer flestir þeirra láta þetta af- skiftalaust, en einhverjir hlógu að afrekum fjelaga síns.“ Sögumanni þótti hermað- urinn taka þessari augljósu móðgun af reisn. „Þykjast þessir þroskalausu unglingar vera að sýna ást sína til föðurlandsins með þessu eða vanþóknun þess vegna? Eða hug sinn til setuliðs- ins? Eða kannske samúð með nazismanum? Eða er hjer um alstrípaðan og athugalausan strákskap að ræða? Það þykir mjer líklegast. Og svo eru menn að furða sig á að árekstrar verði milli landans og setuliðsmanna. Hver á sökina á þeim?“ GAMLA FRÉTTIN Ullaði á hermann Ekki voru allir kurteisir við bresku hermennina sem hér voru í stríðinu. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Antonio Banderas sem Pablo Picasso Margrét Pála Ólafsdóttir höfundur Hjallastefnunnar Mads Mikkelsen sem Gellert Grindelwald Varð ískalt á Íslandi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.