Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 6
Forseti Ísland, Guðni Th. Jóhannesson, og eiginkona hans, Eliza Reid, heiðruðu Langanesbyggð með komu sinni í gær og var þeim vel fagnað af öllum aldurs- hópum, ekki síst á leikskólanum Barnabóli þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Um er að ræða fyrstu op- inberu heimsókn Guðna í töluverðan tíma því lítið var um ferðalög meðan hömlur voru á hvers kyns sam- komum vegna veirufaraldursins. Forsetahjónin í kærkominni heimsókn í Langanesbyggð Fugladansinn með þeim yngstu Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Vefverslun:www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf S. 555 3100 · donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Verð kr. 39.420 Hreinna loft - betri heilsa Félag Sjálfstæðismanna um full- veldismál heldur ráðstefnu á morg- un, laugardaginn 26. mars, um efnið: Sjálfstæði og fullveldi, nýjar áskor- anir. Ráðstefnan er haldin í minn- ingu fyrsta formanns félagsins, Styrmis Gunnarssonar, sem hefði orðið 84 ára þann 27. mars 2022. Ráðstefnan er haldin í Valhöll við Háaleitisbraut í Reykjavík og verð- ur sett kl. 10:30. Ræðumenn eru: Halldór Blöndal fyrrverandi ráð- herra, Þór Whitehead prófessor em- eritus, Viðar Guðjohnsen lyfjafræð- ingur, Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður, Diljá Mist Ein- arsdóttir alþingismaður, Jón Magn- ússon, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, og Friðrik Hirst, verk- efnastjóri Háskóla Íslands. Fjallað verður um Styrmi sem mann og málsvara sjálfstæðisstefn- unnar. Einnig um nýjar áskoranir á nýrri öld varðandi fullveldi Íslands, sjálfstæði og fullveldi, stefnu Sjálf- stæðisflokksins fyrr og nú. Auk þess: Smáþjóð í fjölþjóðlegu sam- starfi. Varðveisla sjálfstæðis og full- veldis. Skerðir EES-samningurinn eða aðrir milliríkjasamningar full- veldi Íslands? Möguleikar útlend- inga á að eignast fiskveiðiheimildir, land og aðrar náttúruauðlindir í og við Ísland. Húsið verður opnað kl. 10:00 og verður kaffi og bakkelsi í boði. Há- degishlé er klukkan 12:00 og boðið upp á léttan málsverð. Ráðstefnulok eru kl. 15.30 og þá verða léttar veit- ingar. gudni@mbl.is Sjálfstæði og fullveldi og skyld málefni rædd í Valhöll - Ráðstefna í minningu Styrmis heitins Gunnarssonar Morgunblaðið/RAX Fullveldi Styrmi Gunnarssyni var mjög annt um fullveldi Íslands. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir hefjast á næstunni við stækkun húss sem Arctic Fish keypti við höfnina í Bolungarvík í þeim tilgangi að koma þar upp eigin laxasláturhúsi. Stefnt er að því að hefja slátrun á næsta ári. Skapar staðsetning sláturhúss á norður- svæði Vestfjarða möguleika á aukn- um útflutningi með skipum en fram hefur komið hjá forstjóra fyrir- tækisins að aukið magn laxaafurða hefur farið á markað í Norður-Am- eríku. Möguleikar á virðisaukningu Arctic Fish festi í upphafi ársins kaup á nýbyggingu Fiskmarkaðs Bolungarvíkur við Brimbrjótsgötu í Bolungarvík. Arctic Fish hefur feng- ið framkvæmdaleyfi hjá Bolungar- víkurkaupstað um að stækka húsið til austurs þannig að það verði um 2.700 fermetrar að grunnflatarmáli og alls 3.700 fermetrar þegar talið er með pláss á efri hæð. Fiskmarkaður Bolungarvíkur reisir síðan nýtt hús vestan við sláturhúsið. Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic Fish, segir að aðstaðan í Bolungar- vík sé stórt skref í framþróun fyrir- tækisins. Þetta sé mikil fjárfesting en hún skapi einnig mikil tækifæri. Fyrst og fremst sé hún mikilvæg til að fyrirtækið hafi næga afkasta- getu í slátrun og geti náð niður kostnaði á hvert framleitt kíló. Hann segir einnig að aðstaðan skapi tæki- færi í framtíðinni og nefnir í því sambandi virðisaukandi vinnslu, pökkun, frystingu og vinnslu auka- afurða. Teknar verði ákvarðanir um slíkar fjárfestingar á síðari stigum. Með góðri frammistöðu í eldinu og góðum árangri í rekstri ásamt góðu rekstrarumhverfi sem styðji sjálf- bært laxeldi á Íslandi, verði vonandi hægt að skoða þessi tækifæri í fram- tíðinni. Reglulegri og tíðari flutningar Stein Ove sagði í kynningu á fræðsluráðstefnu Lax-inn á dögun- um að aukið magn laxaafurða hafi farið á markaði í Norður-Ameríku og Asíu og sagði að aukin áhersla yrði á Ameríkumarkað á næstu ár- um. Jafnframt myndu flutningar sjóleiðis aukast. Nánar spurður út í þetta segir Stein Ove að hugmyndin um aukna sjóflutninga tengist því að nú þegar er framleitt verulegt magn af hvítfiski á svæðinu. Það ásamt auknu magni af laxi muni vonandi auka möguleika á reglulegri og tíð- ari flutningum beint inn á markaðs- svæðið. Mikilvægt sé að koma fersk- vöru eins og lax er að stærstum hluta hratt á markað. Flutningsleið- ir þurfi að taka mið af því. Hefja uppbyggingu í Bolungarvík Ljósmynd/Helgi Hjálmtýsson Sláturhús Arctic Fish mun byggja við þetta hús heldur stærri byggingu og hefja slátrun eftir rúmt ár. - Arctic Fish meira en tvöfaldar húsið sem keypt var í Bolungarvík undir laxasláturhús - Forstjórinn segir að mikil tækifæri skapist með eigin sláturhúsi - Meiri möguleikar á útflutningi með skipum Sigurjón Bragi Geirsson hafnaði í 5. sæti í Evrópuforkeppni Bocuse d’Or-matreiðslukeppninnar sem haldin var í Búdapest dagana 23. – 24. mars. Árangurinn gefur honum keppnisrétt í aðalkeppni Bocuse d’Or sem haldin verður í Lyon í Frakklandi í janúar 2023. Þjálfari Sigurjóns er Sigurður Laufdal, Bocuse d’Or-keppandi 2021 og 2013, og aðstoðarmaður Hugi Rafn Stefánsson. Þeir munu nú halda ströngum æfingum áfram en Sigurjón stefnir ótrauður á verð- launapall í Lyon. Dómari Íslands var Friðgeir Ingi Eiríksson. Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslend- ingar ávallt verið í efstu níu sæt- unum. Bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 náðu þeir báðir í bronsverðlaun. Matreiðslukeppni Bocuse d’Or er ein af virtustu matreiðslukeppnum heims og eru þátttakendur meðal fremstu matreiðslumanna sinna landa. Sigurjón Bragi í 5. sæti í Bocuse d’Or

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.