Morgunblaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 OPINN FUNDUR FRAMKVÆMDAÁÆTLUN UM STEFNU ÍSLANDS Í MÁLEFNUM NORÐURSLÓÐA HÁSKÓLANUMÁAKUREYRI & FJARFUNDUR FIMMTUDAGINN 31. MARS 8:30 - 16:00 S K R Á N IN G Erindi og dagskrárliðir 08:30 Skráning og morgunkaffi 09:00 Opnunarávarp: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra 09:10 Ávarp: Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður Arctic Mayors Forum 09:20 Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í málefnum norðurslóða: Kynning á stefnu Íslands í málefnum norðurslóða 09:35 Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu norðurslóða: Starf Íslandsdeildarinnar og þingmannaráðstefnunnar 09:50 Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands: Kynning á verkefninu, verkáætlun, tímaáætlun og þemahópum 10:30 Pallborð: umræður og kynning á þemahópum um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða: A. Alþjóðlegt samstarf og skuldbindingar; B. Loftslagsbreytingar, vistkerfi og mengunarvarnir; C. Samfélag og innviðir; D. Uppbygging og framlag til málefna norðurslóða; E. Leit og björgun, fjarskipti, björgunarklasi 12:00 Hádegisverður 13:00 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti (óstaðfest) 13:20 Heiðar Guðjónsson, formaður Norðurslóða-viðskiptaráðs: Norðurslóða-viðskiptaráðið 13:35 Hugarflug um aðgerðir og forgangsröðun 15:20 Samantekt 15:30 Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs norðurslóða og fyrrverandi forseti Íslands: Ísland á norðurslóðum, framtíðarsýn Fundarstjóri: Sigríður Huld Blöndal, sérfræðingur, utanríkisráðuneyti Nánari upplýsingar á fb.me/nordurslodanetid Guðni Einarsson gudni@mbl.is Norður-Íslands Irminger-straum- urinn (NIIS) flytur varma, salt og næringarefni inn á landgrunnið fyr- ir norðan Ísland og er mikilvægur fyrir lífríkið og loftslagið á þeim slóðum. Nýlega birtist fræðigrein í ritinu Journal of Geophysical Rese- arch: Oceans um þennan haf- straum. Stein- grímur Jónsson, sérfræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun og pró- fessor við Há- skólann á Akureyri, er einn höfunda ásamt Héðni Valdi- marssyni haf- fræðingi og fleirum. „Við kortlögðum Norður-Íslands Irminger-strauminn nákvæmar en áður hefur verið gert og með meiri upplausn,“ segir Steingrímur. Mæl- ingarnar miðuðust að mestu við til- tekinn tímapunkt en einnig voru teknar til greina eldri mælingar Hafrannsóknastofnunar. Norður-Íslands Irminger- straumurinn kemur sunnan úr höf- um og er tunga úr Golfstraumnum sem flytur með sér heitan og saltan Atlantssjó. Hann flæðir norður með Vestfjörðum og hófust mælingarn- ar við Látrabjarg. Straumurinn beygir fyrir Horn, flæðir austur með landgrunninu og svo suður með Austurlandi. „Við fylgdum straumnum alla leið. Hitastigið lækkar um u.þ.b. 0,3 gráður og seltan lækkar um 0,02- 0,03 grömm á kíló fyrir hverja 100 km sem hann fer. Það hljómar eins og það sé lítið, en það skiptir samt máli,“ segir Steingrímur. Lækkun hitastigs og seltu í straumnum reyndist aðallega vera vegna blöndunar við seltuminni og kaldari pólsjó sem kemur niður með Grænlandi. Þegar NIIS kemur austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg fer hann einnig að víxlast mikið við og blandast Austur-Íslands- straumnum. Hann er kaldari og seltuminni en Irminger-straumur- inn. „Norður-Íslands Irminger- straumurinn er lykilatriði í vist- kerfinu fyrir norðan. Með honum kemur líka seiðarek og færir seiðin á uppeldisstöðvar,“ segir Stein- grímur. NIIS er mjög breytilegur á milli ára. Því meira sem er af heitum og söltum Atlantssjó í NIIS-straumn- um þess betra er ástandið fyrir líf- ríkið því Atlantssjórinn er ríkur af næringarefnum. Pólsjórinn er hins vegar mun næringarminni. Aukið flæði Golfstraumsins Lars H. Smedsrud, prófessor við Háskólann í Bergen, hefur ásamt fleirum rannsakað gögn frá heilli öld til að sjá hvernig flutningskerfi hafsins hefur þróast. Hann segir þau sýna að flæði Golfstraumsins inn í Norðurhöf hafi aukist. Með auknu flæði hlýs sjávar hafi varma- flutningur norður á bóginn aukist um 30%. „Þetta er alveg rétt. Við skrif- uðum greinar um varma- og sjáv- arflutninginn inn á þetta svæði fyr- ir nokkrum árum. Okkar framlag var mæling á þessum Norður-Ís- lands Irminger-straumi á Horn- banka í um 20 ár. Við sáum mikla breytingu frá 1996 til 2000. Þá hækkaði hitastigið og straumurinn jókst þannig að það varð töluvert mikil aukning á varmaflutningnum norður í höf,“ segir Steingrímur. Hvernig rímar þetta við kenningar um að Golfstraumurinn sé að veikj- ast? „Það rímar alls ekki við það. Þessar mælingar sýna að hann er frekar að eflast hérna. En það er bara lítill hluti af Golfstraumnum sem fer hér norðureftir. Hann er miklu stærri fyrir sunnan Ísland,“ segir Steingrímur. Oft hefur verið rætt um að það muni hægja á færibandi hafsins, varma- og seltuhringrás Norður- Atlantshafs vegna aukinnar ís- bráðnunar á Norðurslóðum. Því muni hægja á Golfstraumnum. Steingrímur segir að Atlantssjórinn sem streymir inn á Norður-Íshafs- svæðið kólni og þyngist og geti sokkið til botns. Þessi kaldi og þungi sjór skríður svo út yfir hryggina beggja vegna við Ísland. Það dregur Golfstrauminn norður. „Við höfum séð að þetta kerfi virðist vera býsna stöðugt yfir hryggina milli Íslands og Græn- lands og Íslands og Skotlands. Það er heldur meira flæði í þessu en var fyrir 1995 sem bendir til þess að færibandið sé ekki að veikjast í kringum okkur og þá ekki heldur Golfstraumurinn,“ segir Steingrím- ur. Hann kveðst ekki sjá í kort- unum stórar sveiflur eða breyting- ar í þessu á næstu árum. Golfstraumurinn er ekki að veikjast - Mikilvægi Norður-Íslands Irminger-hafstraumsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Hafnarfjörður Hafrannsóknastofnun stundar reglulega rannsóknir á haf- svæðinu í kringum Ísland. Stofnunin er nú með aðsetur í Hafnarfirði. Hafstraumar í Norður-Atlantshafi Norður Íslands Irminger straumurinn Heimild: Haf og vatn Mynd: dr. Stefanie Semper Noregs- straumur Grænland Grænlands- sund Ísland Noregur North Icelandic Jet Norður Íslands Irminger straumurinn Hlýir straumarKaldir straumar Steingrímur Jónsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þeir sem hljóta þarna kjör geta vel við unað enda var þátttakan mjög góð, rétt rúm 31%. Það er besta þátt- taka sem við höfum fengið til þessa í stjórnarkjöri,“ segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, VM. Aðalfundur félagsins fer fram í dag klukkan 17. Auk hefðbundinna aðal- fundarstarfa verður á fundinum lýst kjöri formanns, stjórnar og vara- stjórnar félagsins. Kosningin var raf- ræn og hófst 1. mars síðastliðinn og lauk á þriðjudaginn síðasta, 22. mars. Kosning til stjórnar er til næstu tveggja ára en formannskosningin er fyrir tímabilið 2022 til 2026. Mikil spenna er fyrir niðurstöðu formanns- kosningarinnar. Þrír voru í framboði: Guðmundur Helgi, sem gegnt hefur formennsku síðustu fjögur árin eftir að hafa velt sitjandi formanni úr sessi, Guðmundur Ragnarsson, fyrr- verandi formaður VM sem varð að lúta í lægra haldi fyrir nafna sínum fyrir fjórum árum, og Eiríkur Ingi Jóhannsson. Sá síðastnefndi er sjó- maður og varð landsfrægur fyrir ára- tug er hann komst einn lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst undan ströndum Noregs. Metþátttaka í formannskjöri - Aðalfundur VM fer fram síðdegis Guðmundur Helgi Þórarinsson Guðmundur Ragnarsson Eiríkur Ingi Jóhannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.