Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Samfylking, Viðreisn og Píratar slá ekki slöku við þessa dagana að minna almenning á hversu ómerkilegan mál- flutning flokkarnir eru tilbúnir að stunda. Nú er það þráin um aðild að ESB sem sameinar þá og innrásin í Úkraínu er það sem nýta á í þeim til- gangi. Aumara verð- ur það ekki. - - - Formaður Sam- fylkingar gekk á forsætisráðherra á Alþingi vegna þessa og þar viðurkenndi forsætisráðherra að betur hefði farið á því að spyrja þjóðina álits áður en anað var út í að sækja um aðild í tíð stjórnar Samfylkingar og VG. Forsætisráð- herra nefndi einnig að betri bragur hefði verið að því þegar hætt var við umsóknina að draga hana formlega til baka. Nú nýta þingmenn popúlistaflokkanna þriggja óspart þá staðreynd að það var ekki gert og telja það geta auð- veldað blekkingarleikinn. - - - Þessir flokkar vita, þó að þeir reyni enn að halda öðru fram, að engin þjóð sækir um aðild að Evr- ópusambandinu og fer svo í „samn- ingaviðræður“ um að breyta sam- bandinu þannig að það henti inngönguþjóðinni. Þetta kom skýrt fram í aðlögunarviðræðunum sem hlutu skipbrot þegar vinstristjórnin gat ekki haldið blekkingunni áfram lengur. - - - Hvernig stendur á því að þing- menn hafa geð í sér nú til að endurtaka óheilindin? Var ekki nóg komið? Logi Einarsson Blekkingarleikur- inn endurtekinn STAKSTEINAR Þorgerður K. Gunnarsdóttir Halldóra Mogensen Reykjanesbær og bandaríska fyrirtækið Almex USA Inc., í gegnum íslenskt dótturfélag, hafa náð samkomulagi um að skoða möguleika þess að setja upp umhverfisvæna endurvinnslu á áli í Helguvík. Samkomulagið var samþykkt sam- hljóða á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær- morgun og heimilaði bæjarráð Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að undirrita vilja- yfirlýsingu þessa efnis. Um yrði að ræða umhverfisvæna starfsemi sem yrði hluti af sjálfbæru hringrásarhagkerfi og er áætluð ársframleiðsla 45.000 tonn í fyrri áfanga. Reiknað er með að starfsmenn verði um 60 þegar fullum afköstum er náð. Reykjanesbær horfir jafnframt til þess að afleidd tækifæri af slíkri starfsemi geti styrkt atvinnuþróun á svæð- inu. Í fréttatilkynningu segir að Almex USA Inc sérhæfi sig í framleiðslu á búnaði fyrir úrvinnslu og endurvinnslu á hágæðaáli ásamt fjárfest- ingum í skyldum iðnaði, sé leiðandi á sviði endur- vinnslu léttmálma og með sérstöðu hvað varði framleiðslu á áli fyrir geimferða- og flugvéla- iðnaðinn. Telur fyrirtækið Ísland hentuga stað- setningu fyrir þessa starfsemi. Jákvæð áhrif á umhverfið Verkefnið er í samræmi við þá stefnu Reykja- nesbæjar að í Helguvík byggist upp iðnaður sem hafi jákvæð áhrif á umhverfið og samfélagið. Markmið Reykjanesbæjar er að efla Helguvík sem iðnaðarsvæði sem styður við þá stefnu og hringrásarhagkerfið. 60 störf við endurvinnslu áls - Viljayfirlýsing um uppbyggingu í Helguvík - Umhverfisvæn starfsemi Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Dæmi eru um að börn hafi ofreynt sig í ákafa um að reyna að standa sig vel á svokölluðum píp-prófum í íþrótta- kennslu í grunnskólum. Mörg börn upplifa vanlíðan og kvíða fyrir um- ræddum prófum og á meðan á þeim stendur. Þá upplifa mörg börn það sem niðurlægingu þegar þau detta út úr píp-prófunum í viðurvist skóla- félaga sinna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi Salvarar Nordal, umboðsmanns barna, til Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Kveðst umboðs- maður hafa fengið fjölmargar ábend- ingar og fyrirspurnir á síðustu árum er varða þessi próf og fer þess á leit við ráðherra að hætt verði að fram- kvæma þau í grunnskólum. Píp-próf eru þol- og hlaupapróf sem framkvæmd eru þannig að nem- endur hlaupa fram og til baka í íþróttasal skólans þar sem tíminn milli lota er stöðugt styttur en þeir sem ekki ná að hlaupa salinn á enda á tilskildum tíma verða að setjast niður og fylgjast með þar til aðeins einn stendur eftir. Í bréfinu er tekið fram að próf þessi séu ekki notuð í öllum skólum. Umboðsmaður barna segir ljóst að fjölmargir nemendur upplifi ekki að þessi próf fari fram í öruggu um- hverfi sem hvetji alla til hreyfingar. „Í stað þessara aðferða ætti að byggja á því sjónarmiði að göngur og hlaup eru hreyfing sem nánast allir geta stundað, sér til heilsubótar og á sínum forsendum,“ segir í bréfinu. „Að mati umboðsmanns barna er brýnt að mennta- og barnamálaráðu- neytið taki þetta málefni til skoðunar og beini þeim fyrirmælum til skóla að hverfa frá notkun slíkra prófaðferða og matsaðferða sem ganga þvert á markmið aðalnámskrár, um að styrkja sjálfsmynd barna og hvetja þau til markvissrar hreyfingar og þátttöku,“ segir þar enn fremur. Vill láta banna píp- próf í grunnskólum - Umboðsmaður barna biðlar til ráð- herra menntamála Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Leikfimi Ekki vinsæl hjá öllum. SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK spo r t i s@spo r t i s . i s S P O R T I S . I S 520-1000 CARETTA FERÐAVAGN - FERÐAFÉLAGI ÁRSINS! - TRYGGÐU ÞÉR VAGN TIL AFHENDINGAR Í VOR - Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.