Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
VINNINGASKRÁ
113 10697 22448 30435 38402 50249 59715 72921
480 10886 22872 30553 38501 50360 60474 73117
550 11429 22902 30559 38754 50863 60788 73369
613 11934 22919 30939 38817 50969 61107 73476
681 12290 23093 30971 38819 51179 61339 73541
703 12324 23109 31120 39012 51200 61630 73650
916 12762 23134 31146 39112 51226 62454 73791
1377 12793 23285 31508 39232 52012 62577 74597
1566 13017 23454 32273 40034 52106 62599 75054
1775 13168 23558 32447 40343 52847 62956 75150
1856 13401 23566 32782 40547 53293 64403 75657
2170 14275 24187 33009 40557 53484 64678 76088
2365 14689 24453 33039 40888 53843 65445 76132
2585 15117 24517 33448 40903 53960 65459 76193
2674 15828 24936 34137 40939 54482 65518 76324
2819 16461 25135 34207 41096 54517 65841 76422
3327 16486 25182 34357 42332 54551 66085 76611
3538 16644 25211 34676 43155 54675 66402 76691
3585 16839 26035 34887 43592 54892 66758 76764
3990 16999 26110 34915 44471 54907 67221 76778
5186 17431 26476 35010 44746 54909 67334 76816
5314 17678 26667 35306 44811 54931 67550 76863
5402 17747 26684 35469 44880 55010 67728 76963
5533 17847 27047 35605 45341 55050 68060 77496
6381 18961 27316 35698 45770 55157 68062 78326
6677 19284 27607 35714 45993 55514 68093 78412
6843 19453 27912 35940 46763 55531 68268 78987
7033 19914 28431 36281 47097 55963 68354 79259
7240 20708 28710 36364 47170 56440 69070 79304
7337 20780 29052 36613 47292 56580 69099 79734
7850 20808 29577 36717 47315 57346 69821 79812
8057 20898 29632 37342 48339 57576 70583
8159 21038 29848 37348 48664 58328 70882
8251 21260 30033 37380 48877 58489 71127
9353 21952 30162 37664 49691 58717 71933
10128 22256 30294 37923 50010 58982 72092
10369 22340 30328 38070 50208 59030 72807
189 8033 17099 31360 37781 53531 61314 70836
765 8393 18165 32031 38938 53744 61464 71516
835 9384 18590 32080 39164 54651 62154 74954
1570 9578 18741 32873 40715 54936 62547 75187
1614 9845 20834 33346 41513 55877 63978 75597
2529 10013 20893 33858 43455 56202 64221 77984
2933 10146 21151 34297 45284 56481 64248 78120
3158 10364 23606 35031 46840 56805 65228 78165
3247 12030 23894 35947 47096 56892 67567 79594
4630 12046 24169 36604 47614 58065 67879
4991 12701 28468 37345 49444 59335 69950
5441 16249 29772 37608 50065 60255 70379
5974 16380 30110 37727 50694 60416 70733
Næsti útdráttur fer fram 31. mars 2022
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
5689 21175 28242 63465 73725
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
461 11038 21731 53303 59342 73182
2611 16325 29241 54631 67129 73325
5303 20006 42871 55836 69299 76313
7224 20471 53142 59252 72794 79948
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 7 7 3 7
47. útdráttur 24. mars 2022
Nú liggur fyrir til samþykktar
deiliskipulag gatnamóta Arnar-
nesvegar og Breiðholtsbrautar þar
sem gert er ráð fyrir að gatnamótin
verði ljósastýrð.
Þetta þykir mér hið versta mál
(sbr. grein mín í Morgunblaðinu 1.
október 2021, „Skelfileg breyting
gatnamóta“) og hef ég sent athuga-
semdir varðandi deiliskipulagið til
skipulagsaðila. Þar rek ég ógöngur
gatnamótanna og held því fram að
rangt sé staðið að málum. Ég tel rétt
að framtíðarvegfarendur gatnamót-
anna sjái þessar athugasemdir mínar,
sbr. eftirfarandi texta:
Athugasemdir ganga út á að for-
sendur breytinga deiliskipulagsins
séu rangar á flesta vegu þar sem
breyting umræddra gatnamóta úr
mislægum í ljósastýrð er vanhugsuð
og alls ekki í takt við áherslur í sam-
gönguframkvæmdum, að auka um-
ferðaröryggi og umferðarflæði. Um
það og fleira fjalla ég hér neðar.
Og þar sem breytt deiliskipulag
gerir það að verkum að ekki verður
hægt að byggja mislæg gatnamót
eins og samþykkt var í mati á um-
hverfisáhrifum árið 2003, er gerð sér-
stök athugasemd við það.
Vegagerðin, Reykjavíkurborg,
Samgöngusáttmálinn og samgöngu-
áætlun setja aukið umferðaröryggi
og aukið umferðarflæði í fyrsta sætið
þegar hugað er að nýjum samgöngu-
framkvæmdum. Þess vegna er það
óskiljanlegt að núna þegar ráðast á í
eitt af fyrstu verkefnum Samgöngu-
sáttmálans er útfærslu gatnamóta
Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar
breytt frá því sem var samþykkt í
mati á umhverfisáhrifum árið 2003.
Breytingin felst í því að hætta við
mislæg gatnamót eins og Vegagerðin
lagði til í matinu 2003 og byggja í
staðinn ljósastýrð gatnamót sem
Vegagerðin taldi árið 2003 að ekki
kæmu til greina.
Þessi breyting hefur í för með sér
eftirfarandi :
. Fleiri umferðarslys
. Meira eignatjón
. Minni afkastagetu gatnamótanna
. Meiri umferðartafir
. Lengri akstursleiðir
. Meiri loftmengun
. Meiri umferðarhávaða við Nönnu-
fell og Suðurfell
. Stærri mannvirki (fjögurra akreina
brú í staðinn fyrir 2ja akreina)
. Breiðari rampa við Suðurfell (fjór-
ar akreinar í staðinn fyrir tvær)
. Litla breytingu á framkvæmda-
kostnaði
Ef horft er á afleiðingar breyting-
arinnar sést að þær eru þvert á öll
framsett markmið samgöngufram-
kvæmda.
Rifjum aðeins upp hvernig mat
umhverfisáhrifa var afgreitt árið
2003. Þar kom fram að Reykjavíkur-
borg mótmælti útfærslu mislægra
gatnamóta vegna þess að rampi (2 ak-
reinar) gatnamótanna kæmi of ná-
lægt byggð við Suðurfell og Nönnu-
fell. Síðan þá hefur Reykjavíkurborg
komið í veg fyrir að gatnamótin færu
í endanlega hönnun og farið fram á að
þarna yrðu ljósagatnamót þvert á
skoðun Vegagerðarinnar.
Þrýstingurinn á að klára Arnar-
nesveginn og þar með gatnamót hans
við Breiðholtsbraut var að lokum svo
mikill að Vegagerðin lét undan
stjórnendum borgarinnar og lagði
fram tillögu um ljósastýrð gatnamót.
Og það merkilega við þessa nýju út-
færslu er að meðal breytinga er að við
Nönnufell og Suðurfell kemur fjög-
urra akreina rampi (í staðinn fyrir 2
akreinar) með tvöfalda umferð sam-
anborið við mislægu útfærsluna.
Hvað er þá orðið um mótmælin frá
2003 um nálægð rampans við Nönnu-
fell?
Víkjum þá að Vegagerðinni sem
nauðbeygð sendir erindi til Skipu-
lagsstofnunar og fer fram á að ekki
þurfi að gera nýtt mat á umhverfis-
áhrifum þrátt fyrir þessa miklu
breytingu á útfærslu gatnamótanna
og að nú eigi að byggja gatnamót sem
ekki komu til greina í matinu 2003.
Vegagerðin útlistar í erindi sínu að
breytingin í ljósa-
gatnamót feli í sér litlar
breytingar og þá að-
allega fjallað um litla
breytingu á hljóðvist.
Þá er tekið fram að um-
ferðarmannvirki verði
umfangsminni sem er
auðvitað vitleysa, fjög-
urra akreina brú er
næstum tvöfalt stærra
mannvirki heldur en 2ja
akreina brú. Vegagerð-
in á að gera umferðar-
öryggismat fyrir fyrirhugaðar sam-
göngubætur og var það gert vegna
breytingar umræddra gatnamóta.
Slíkt umferðaöryggismat á að vera
grundvöllur þess þegar besti val-
kostur er valinn af Vegagerðinni og
lagður fram í mati á umhverfisáhrif-
um. Umferðaröryggismat breyting-
arinnar (dags. jan. 2021) telur breyt-
inguna slæma og í niðurstöðum þess
segir : „Niðurstöður rýnihópsins eru
að mislæg gatnamót séu mun betri
m.t.t. umferðaröryggis. Sú lausn að
aðskilja akstursstefnur, losna við
stöðvun umferðar á umferðarljósum
og engar vinstri beygjur þar sem
þvera þarf gagnstæða umferðar-
strauma felur í sér mun öruggari um-
ferðarmannvirki.“ Þessi niðurstaða
umferðaröryggismatsins virðist
hundsuð af Vegagerðinni sjálfri og er
ekki kynnt fyrir Skipulagsstofnun
þegar Vegagerðin sendir sitt erindi
um að ekki þurfi að gera nýtt mat á
umhverfisáhrifum gatnamótanna. Og
ekki kynnir Vegagerðin Skipulags-
stofnun þær neikvæðu breytingar
sem upp eru taldar hér á undan þegar
gatnamótin verða ljósastýrð.
Og þá er það Skipulagsstofnun sem
fær ófullnægjandi gögn frá Vega-
gerðinni eins og komið hefur fram.
Skipulagsstofnun étur það upp eftir
Vegagerðinni að um litlar breytingar
sé að ræða og telur ekki þörf á nýju
mati á umhverfisáhrifum. Skipulags-
stofnun notar málsgrein 2 í 12. grein
laga um mat á umhverfisáhrifum til
að úrskurða um að ekki þurfi að gera
nýtt mat, en þar segir „að Skipulags-
stofnun geti ákveðið að endurskoða
skuli matsskýrslu fram-
kvæmdaraðila sam-
kvæmt 1. mgr. ef for-
sendur hafa breyst
verulega frá því að álit-
ið lá fyrir, svo sem
vegna breytinga á nátt-
úrufari eða landnotkun
á áhrifasvæði fram-
kvæmdarinnar, breyt-
inga á löggjöf um um-
hverfismál, breytinga á
alþjóðlegum skuldbind-
ingum eða vegna
tækniþróunar varðandi
framkvæmdina.“
Að nota þessa lagagrein til að úr-
skurða að nýtt mat sé óþarfi stenst
ekki, hún fjallar ekkert um það þegar
um gjörbreytta framkvæmd er að
ræða, þ.e. að byggja ljósastýrð gatna-
mót sem komu ekki til greina í mat-
inu 2003 í staðinn fyrir mislæg gatna-
mót. Og ekki er Skipulagsstofnun að
spyrja Vegagerðina hvaða áhrif
breytingin hefur á umferðina, ný
gatnamót snúast jú um að þau séu
eins örugg og hægt er og hafi gott
umferðarflæði.
Ég hef verið í sambandi við Vega-
gerðina, Skipulagsstofnun, Sam-
göngustofu, Kópavogsbæ, FÍB og
samgönguráðuneytið um þessa
skelfilegu breytingu gatnamótanna
án árangurs og benda aðilar oft hver
á annan og að þarna sé komið á sam-
komulag sem ekki þurfi að breyta.
Líklega eru allir hræddir við að fram-
kvæmdir tefjist ef hreyft er við sam-
komulaginu.
Að lokum bendi ég á að þessi nýju
ljósagatnamót verða mjög lík núver-
andi gatnamótum Bústaðavegar og
Reykjanesbrautar sem allir eru sam-
mála um að séu hættuleg og umferð-
arþung og er í undirbúningi að breyta
þeim, vonandi til batnaðar en ekki
eins og er að gerast við gatnamót
Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar
þar sem allt breytist til verri vegar.
Samantekið í stuttu máli. Reykja-
víkurborg tefur lausn málsins vegna
2ja akreina rampa við Nönnufell og
endar á því að þröngva fram lausn
með fjögurra akreina rampa við
Nönnufell, Vegagerðin gefst upp með
sína útfærslu á mislægum gatnamót-
um og leggur til lausn sem kom ekki
til greina áður og Skipulagsstofnun
tekur við ófullnægjandi upplýsingum
frá Vegagerðinni og túlkar svo lög
um mat á umhverfisáhrifum á rangan
hátt til að hleypa þessum skelfilegu
breytingum gatnamótanna í gegnum
kerfið.
Svo verða vegfarendur gatnamót-
anna fórnarlömbin.
Ógöngur gatnamóta
Eftir Bjarna Gunnarsson
»Reykjavíkurborg
tefur lausn málsins
vegna 2ja akreina
rampa við Nönnufell og
endar á því að þröngva
fram lausn með fjögurra
akreina rampa við
Nönnufell.
Bjarni Gunnarsson
Höfundur er umferðarverkfræðingur.
6.1. Útfærsla vegamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar miðað við
framlagða tillögu (drög að tillögu Efla og Vegagerðin 2020.)
Mynd/Efla 2020
Mynd 6.2. Útfærsla með fullbúnum mislægum vegamótum eins og gert var
ráð fyrir í mati á umhverfisáhrifum frá 2003.
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is