Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 Ásthildur Hannesdóttir asthildur@mbl.is „Við minnumst þess rækilega í ár að kyrrðardagar hafa verið haldnir með hléum í Skálholti í 35 ár,“ segir sr. Kristján Björnsson. „Núna er hægt að skrá sig á kyrrðardaga en þeir standa yfir dymbildagana. Frá miðvikudagskvöldi og yfir skírdag, föstudaginn langa og til hádegis á laugardegi fyrir páska. Það er hinn helgi laugardagur,“ útskýrir hann. „Frá byrjun og lengi á eftir var það Sigurbjörn Einarsson biskup sem leiddi þessa kyrrðardaga. Það gerði hann líka þegar Margrét Jóndóttir á Löngumýri hélt fyrstu kyrrðar- daga á Íslandi fyrir 40 árum,“ segir Kristján. „Það var árið 1987 sem þetta allt byrjaði hérna í Skálholti. Reyndar halda sumir því fram að kyrrðar- dagar eigi sér lengri sögu en þetta er ártalið sem er öruggt og það hef ég eftir Karli Sigurbjörnssyni, sem er ansi minnugur,“ segir Kristján og hlær. Fyrirmyndin sótt frá öðrum kyrrðardagasetrum „Allra fyrstu kirkjulegu kyrrðar- dagarnir á Íslandi fóru að berast hingað frá kyrrðardagasetrum í Englandi, Svíþjóð og Noregi. Allra fyrstu dagarnir voru mjög fámennir og vöktu meiri áhuga hjá fólki sem hafði áhuga á að byrja að vinna fyr- ir kyrrðardaga og það eru 40 ár síð- an það kom til,“ útskýrir Kristján og rekur þá löngu sögu sem kyrrð- ardaga eiga sér. „Í nokkrum nágrannalöndum okkar eru kyrrðardagasetur og hef- ur Skálholt sótt fyrirmyndir sínar á þá staði. Líklega er elsta setrið í Pleshey í Essex á Englandi sem stofnað var á 19. öldinni. Aðal- hvatamaður að því var Evelyn Underhill. Enn koma þangað hópar og oft er það hópur úr söfnuði með prestinum sínum. Fyrir seinni heimsstyrjöldina var Grandchamp- systrasamfélagið stofnað í Sviss og meðal þeirra sem uxu mikið þar í andlegri uppbyggingu sinni var bróðir Roger, sem stofnaði seinna Taizé-regluna sem er meðal annars þekkt af Taizé-bænasöngvunum. Þá er kyrrðardagasetur einnig að finna í Sandum í Noregi þar sem Mar- grét Jónsdóttir dvaldi áður en starfið hófst á Íslandi,“ segir hann. „Stefið á kyrrðardögum er sótt í dýpstu atvik kristinnar trúar sem minnst er í sögu skírdagsins og föstudagsins langa. Síðustu orð Krists á krossinum lýsa fyrirgefn- ingu og sátt með fullri lotningu mannsins: „Í þínar hendur fel ég anda minn!““ Kyrrðardagar kjörnir fyrir þá sem vilja flýja stressið Kristján segir að á síðustu ára- tugum hafi fólk úr öllum þjóðfélags- hópum sótt kyrrðardaga. Þeir séu ekki bundnir við stétt eða stöðu fólks. „Hingað kemur alls konar fólk. Fólk í leit að friðsæld og kyrrð,“ segir Kristján. „Þetta er að miklu leyti kirkjunnar fólk en það er líka töluvert um að fólk sem vill losna við hraðann og stressið sæki í að koma á kyrrðardaga. Á miðviku- dagskvöldinu er gengið inn í kyrrð- ina og hún stendur yfir fram á laug- ardag,“ segir hann og bendir á að kyrrðin sé það mikil að fólk heilsist alla jafna ekki með orðum heldur í hljóði. „Fólk heilsast með því að vera hvað innan um annað, brosa eða kinka kolli. Þetta er indælis samvera sem skilur mikið eftir sig, bæði fyrir líkama og sál,“ segir Kristján. „Á kyrrðardögum í Skálholti er unnið út frá reynslu og fræðum um gildi kyrrðar og íhugunar. Helgi- hald skiptir miklu máli og í nútím- anum er mikilvægt að fá að taka talið út úr samskiptunum og að sjálfsögðu er horfið frá samfélags- miðlum um stund,“ segir Kristján en snjallsímum er gefið frí á kyrrð- ardögum til að forðast óþarfa áreiti og hámarka upplifun og árangur um leið. „Unnið er meðal annars út frá skrifum Thomas Keatings: Leið- in heim. Vegur kristinnar íhugunar. Á öllum kyrrðardögum er boðið upp á viðtal við prest, sem getur verið mikilvægt þegar hugurinn fer á flug og flýgur inn á við. Útivera, góð gisting og frábær matur er líka lýs- andi fyrir kyrrðardagana,“ segir hann. Fastað upp á hvítt Kristján segir matseldina á kyrrðardögum hafa verið vinsælan lið í dagskránni síðustu ár og stund- um hafi matseðillinn trekkt að, enda mikið í hann lagt. „Við erum alltaf að prófa eitthvað nýtt. Nú höfum við verið að prófa okkur áfram með það sem gert var í gamla daga og kallast að fasta upp á hvítt,“ segir hann. „Þar fer meist- arakokkurinn okkar alla leið og hef- ur útbúið alveg hvítan disk. Það er allur maturinn á diskinum hvítur. Þetta er mikið fyrir augað, eins og listaverk sem fer að virka bæði fyr- ir líkama og sál,“ segir Kristján um matargerðina á kyrrðardögum sem inniheldur einna helst hvítmeti á borð við fisk, kjúkling og fleira. Kyrrðardagar hafa verið eftir- sóttir í gegnum tíðina en að þessu sinni verður boðið upp á að hjóna- og vinapör geti skráð sig saman. „Það eru ekki nema 18 herbergi en nú ætlum við að bjóða upp á hjóna- dvöl þannig að tveir og tveir hafi möguleika á að vera saman í her- bergi,“ segir Kristján en skráning á kyrrðardaga er í fullum gangi á vef- síðu Skálholts. Flýðu allt áreiti og núllstilltu líkama og sál „Á dymbildögum leynast dýpstu og mikilvægustu atburðir kristinnar trúar,“ segir sr. Kristján Björns- son, vígslubiskup í Skálholti, sem stendur fyrir kyrrðardögum í dymbilvikunni, ásamt sr. Degi Fannari Magnússyni sóknarpresti. Kyrrðardagar fara fram dagana 13.-16. apríl en í ár eiga kyrrðar- dagar á Íslandi 35 ára afmæli. Morgunblaðið/Eggert Vígslubiskup Séra Kristján Björnsson í Skálholti. Skálholtskirkja Séra Kristján segir kyrrðardag- ana vera fyrir alla þá sem vilja flýja stressið og upp- lifa kyrrðina í Skálholti. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.