Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 25.03.2022, Qupperneq 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 ✝ Guðbjörg Björg- vinsdóttir fædd- ist 12. september 1951 á Akureyri. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 15. mars 2022. Foreldrar hennar voru Arnfríður Jónsdóttir húsfreyja frá Dalvík, f. 15.8. 1921, d. 3.11. 1998, og Friðrik Björgvin Friðriksson klæð- skeri, f. 3.6. 1920, d. 9.7. 1978. Systkini Guðbjargar eru Arnar Önfjörð (látinn), Jón Elvar og Guðmundur Ágúst. Guðbjörg giftist Guðmundi Erni Sigurðssyni, þau skildu. Synir þeirra eru: 1) Ágúst Örn, í sambúð með Ólöfu Sigrúnu Björgvinsdóttur. 2) Sigurþór Örn, sambýliskona hans er Olga Helena Kristinsdóttir. Barna- börn Guðbjargar eru ellefu og langömmubörnin orðin sjö. Guðbjörg fluttist fjögurra ára til Reykjavíkur þar sem hún bjó alla tíð síðan. Að lokinni grunnskólagöngu lærði hún hár- greiðslu og starfaði sem hárgreiðslu- kona í mörg ár, en vann síðustu starfs- árin við fjölbreytt skrifstofustörf hjá Búnaðarbankanum, Fasteignamati ríkisins og Svans- prenti. Eftir að að Guðbjörg lauk starfsævinni sinnti hún and- legum málefnum í meira mæli, hélt miðilsfundi, spáði fyrir fólki auk þess sem mörgum þótti gott að leita til hennar með fyrirbæn- arefni. Útför Guðbjargar fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 25. mars 2022, og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku amma Gugga okkar. Nú myndast tómarúm í lífi okk- ar systra, hver sendir okkur núna englakveðju og hlý orð til hvatningar á hverjum degi? Hlý orð frá þér hvetja og hvöttu okkur systur til að halda áfram að gera okkar besta á hverjum degi og muna eftir náunganum við hliðina á okkur. Við systurnar viljum þakka þér fyrir þann áhuga og kær- leika sem þú ávallt sýndir okk- ur með orðum þínum og með því að hlusta á okkur. Við mun- um svo vel hversu gott það var að koma til þín, fá að gista í rúminu þínu, leika með dótið þitt, skoða spilin þín, fá kær- leiksknúsið þitt og best af öllu að borða matinn sem þú gafst okkur. Einhvern veginn varð allur maturinn sem þú eldaðir fyrir okkur það besta sem við fengum, grilluð samloka eða lambalærið þitt bráðnaði í munni okkar. Elsku amma Gugga okkar, síðasta knúsið og skilaboðin frá þér rétt áður en þú fórst yfir í Sumarlandið og minningin um þig munu lifa með okkur. Kær- leikurinn þinn lifir í okkur. Við viljum kveðja þig og minnast þín með uppáhaldsljóði þínu því þessi orð styrkja okkur í sorginni: Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin, sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Englakveðja, Valgerður Arna og Sarah Rós Sigurþórsdætur. Guðbjörg Björgvinsdóttir Elsku mamma, þú fórst of snemma frá okkur, við áttum svo margt eftir ósagt. Þú varst allt- af til staðar fyrir mig og eftir sitja margar góðar minningar. Ég mun færa mínum börnum all- an þann kærleika og hlýju sem þú gafst mér alltaf, og nú vill svo til að nýtt ömmubarn er vænt- anlegt í september. Ég er stoltur af því að vera sonur þinn og er þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég verð alltaf mömmustrákurinn þinn, hvíldu í friði elsku mamma, þú lifir áfram í hjarta okkar. Einar Halldórsson. Þegar ég slasaði mig 2012 og beið eftir aðgerð í sólarhring, þá skildir þú mig og hjálpaðir mér svo mikið í gegnum erfiðleika. Mér var svo illt og mér fannst Aðalheiður Einarsdóttir ✝ Aðalheiður Einarsdóttir fæddist 23. maí 1968. Hún lést 5. mars 2022. Útför Heiðu fór fram 17. mars 2022. stundum eins og þú fyndir til með mér. Þín einlæga dótt- ir, Sóley. Mér er svo minn- isstætt þegar ég átti erfitt í septem- ber í fyrra og ég var að tala við stráka. Ég var sem sagt flutt til þín aftur og pabbi var á sjónum. Samtalið sem fór þarna fram var ekki týpískar umræður móður og dóttur, það var eins og ég væri að tala við stelpu á sama aldri og ég. Það er þetta sem þú hafðir; þú gast alltaf tekið við hlutum sem vinkona. Við töluðum oft saman eins og tvær unglingsstelpur, þær minningar eru geymdar djúpt. Minning um vinkonu sem engin kemur í stað. Mamma, ég mun aldrei gleyma okkar stelpusamtölum, hvort sem það var í síma eða ekki. Ég mun alltaf sakna þín og megir þú fylgja mér áfram í hjarta mínu. Litli fyrirburinn þinn, Ólöf Rún. Elsku amma okkar. Við sjáum þig ljóslifandi fyrir okkur. Stend- ur í annan fótinn, tyllir mjöðm- inni til hliðar og glensar í fólkinu þínu á milli þess sem pönnukök- urnar bakast. Þær eru margar minningarnar um ömmu. Þar standa upp úr all- ar góðu stundirnar í bústaðnum, á æskuslóðum hennar. Þegar all- ur skarinn tróð sér inn í litla gamla húsið, eða í seinni tíð þegar nýi bústaðurinn var reistur og plássið varð aðeins meira. Sama hvernig viðraði glitti alltaf í sól- ina í austri og það var glatt á hjalla. Amma var söm við sig, stýrði flokknum harðri hendi, enda forystukona sem var í senn vön að annast um og stýra stórum hópi barna, barnabarna og barnabarnabarna. Amma var sannkölluð kjarnakona sem kenndi okkur mikið, sterkur per- sónuleiki sem sat ekki á skoðun- um sínum og var með bein í nef- inu. Við erum ævinlega þakklátar fyrir síðustu samverustundirnar með ömmu, þar sem slegið var á létta strengi eins og alltaf. Í dag leggjum við ömmu til hinstu hvílu. Hún er farin í sum- arlandið, á vit ævintýra, þar sem verður eflaust vel tekið á móti henni af ástvinum sem hafa þeg- ar kvatt þennan heim. Þar mun hún sitja í góðum félagsskap, sötra kaffið sitt með krosslagða fætur og gæða sér á molasykri – en bara helmingnum. Elsku amma okkar, við elskum þig og söknum þín. Þú mátt vera Þorbjörg Erna Óskarsdóttir ✝ Þorbjörg Erna Ósk- arsdóttir fæddist 2. janúar 1934. Hún lést 4. febr- úar 2022. Útför Þor- bjargar Ernu fór fram 22. febrúar 2022. stolt af þínum afrek- um í gegnum ævina og öllu sem þú skilur eftir þig hér í þessu lífi. Við erum stoltar að eiga þig fyrir ömmu. Þú ert með hlýjan faðm og nærveru sem skín, þú ert svo falleg elsku amma mín. ( Tara Tjörvadóttir) Guðrún Lilja, Hildur Sif og Erna Rut. Í dag kveðjum við kæra vin- konu og skólasystur. Við kynntumst á Húsmæðra- skólanum á Löngumýri veturinn 1953-54. Það var yndislegur og góður tími hjá okkur og áttum við góðar minningar þaðan. Svo tók lífið við hjá okkur. Þorbjörg var ákaflega traust og voru mikil samskipti á milli okkar. Við vorum fimm vinkonur sem stofnuðum klúbb og hittumst oft yfir góðri máltíð og meðlæti. Þor- björg og Steinn byggðu sér góð- an og vandaðan sumarbústað í landi Brúar, á æskuslóðum henn- ar. Þorbjörg var dagmóðir til margra ára og var eftirsótt í starfinu. Hún var búin að þjást lengi líkamlega og orðin slitin, og síðustu árin dvaldi hún á Hrafn- istu. Við þökkum elsku vinkonu okkar fyrir allar góðar samveru- stundir. Elsku Steinn, börn og fjöl- skyldur. Við sendum okkar sam- úðarkveðjur og kveðjum með þessu litla ljóði: Ég bið Guð að gæta mín, góða anda að hugga mig. Sama ósk er eins til þín: Almættið það sjái um þig. (Leifur Eiríksson) Rannveig Leifsdóttir og Sigríður Steingrímsdóttir. Elskulegi maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, ALEXANDER VOSKANIAN, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum sunnudaginn 20. mars. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 29. mars klukkan 13. Donara Voskanian Nelly Alexandersdóttir Naira Alexandersdóttir George Voskanian Emma Rudolfsdóttir Alexandra Rudolfsdóttir Diana Macijauskas Evelina Voskanian ✝ Jóna Fríða Leifsdóttir, ávallt kölluð Nanna, fæddist í Reykjavík 27. júní 1947. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 6. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru Leifur Halldórsson frum- mótasmiður og stofnandi Málmsteypunnar Hellu, f. 18.10. 1918 Nesi í Loð- mundarfirði, d. 22.4. 1990, og Árný Ingvaldsdóttir, f. 12.11. 1922 í Selárdal Arnarfirði, d. 16.1. 1996. Systkini Nönnu eru: Svan- hildur, f. 26.11. 1948, Kristján Ingvaldur, f. 10.2. 1950, Hall- dór, f. 4.3. 1954, og Ásta, f. 8.3. 1958. Nanna giftist 16.7. 1965 Birgi Guðmannssyni rafmagnstækni- Sigurrós Areyju Árnýjardóttur, f. 17.12. 2001. c) Í sambúð með Þorsteini Gísla Hilmarssyni, f. 6.6. 1970, eignaðist hún dótt- urina Láru Hlín, f. 1.9. 2010. Nanna ólst upp í Melgerði 12 í Kópavogi til fullorðinsára. Nanna gekk í skóla í Kópavogi og síðan í Kvennaskólann í Reykjavík til framhaldsnáms, þar sem hún lauk prófi 1963. Að loknu prófi hóf hún störf í Iðn- aðarbanka Íslands í Lækjargötu við bókun og gjaldkerastörf. Eftir giftingu voru Nanna og Birgir búsett í Svíþjóð til 1968, og þann tíma starfaði hún hjá Oppunda Sparbank við bókhald og afgreiðslu. Eftir heimkomu vann hún við bókhald hjá Seðlabanka Íslands þar til börn komu til skjalanna. Hjónin byrjuðu sinn búskap eft- ir heimkomu í tvíbýli í Tungu- heiði í Kópavogi en reistu sér síðan einbýlishús 1977 við Dals- byggð í Garðabæ og bjuggu þar síðan. Hún hóf störf hjá Axis 1982 við bókhald og gjald- kerastörf og vann þar til sex- tugsaldurs. Útför Nönnu fór fram í kyrr- þey. fræðingi, f. 4.4. 1942. Foreldrar hans voru Guð- mann Högnason, f. 26.9. 1914, d. 30.3. 1994, og Jenný Sig- mundsdóttir, f. 9.6. 1918, d. 12.12. 1997. Börn þeirra eru: 1) Guðmann Bragi, f. 18.9. 1970, kvæntur Önnu Lilju Magnúsdóttur, f. 28.7. 1972. Þau eiga tvö börn, a) Fjólu Ósk, f. 22.1. 2000, og b) Birgi Óla, f. 12.6. 2007. 2) Árný Björk, f. 26.2. 1972, hún á þrjár dætur: a) Hún var gift Viggó Þóri Þór- issyni, f. 2.5. 1967, og eiga þau dótturina Ástu Katrínu, f. 12.7. 1994. Hún er í sambúð með Tyrfingi Sigurðssyni, f. 28.10. 1989, og eiga þau börnin Ými, f. 13.5. 2018, og Ylfi, f. 23.6. 2021. b) Í sambúð átti hún dótturina Elskulega tengdamóðir mín til ríflega þrjátíu og tveggja ára var jarðsett 15. mars síðastliðinn. Hún var ekki þessi dæmigerða tengdamamma fyrir mér. Ég fann væntumþykju á við að ég væri henni sem eigin dóttir, enda byrjuðum við Guðmann saman ung. Hún var alltaf hrein og bein og raunsæ. Mikið fyrir hefðir og að allt væri eins og það ætti að vera. Hverjum þykir sinn fugl fagur sagði hún stundum en sagði svo að við skyldum átta okkur á því að barnabörnin væru óendanlega falleg og hló. Ég held að Nönnu hafi einlæglega þótt það, svo stolt af öllu sínu og sínum og ég vil segja að það má. Við áttum ákveðið samtal á fyrstu árum tengdadóttursam- bands okkar sem um leið voru að einhverju leyti mótunarár mín. Með sínum leiðum kom hún til skila hvernig ætti að halda heim- ili og gæta fjármálanna. Hún gat svo vel lesið í aðstæður og látið vita ef hún hefði áhyggjur, hvort við þyrftum aðstoð og hvort hún og Biggi gætu eitthvað gert til að styðja okkur. Allt gert með dæmalausri hlýju og nærgætni. Þegar við Guðmann giftum okkur leiddi ég tal að því við Nönnu að fá að vera í brúðarkjól hennar og mér þótti það mikill heiður að hún samþykkti það. Enn vænna þótti mér um þegar hún gaf mér kjólinn fyrir fáeinum árum. Nanna hætti snemma að vinna eða 60 ára. Ég held að hún hafi verið byrjuð að finna gloppurnar í minninu og verið meðvituð um hvað gæti verið fram undan vegna reynslunnar af veikindum föður síns. Þegar þau Biggi eignast fyrsta barnabarnið þá varð hún Ásta Katrín strax augasteinninn og hjartagullið hennar ömmu sinn- ar. Ég man að ég hugsaði: hvern- ig ætlar Nanna að deila þessari ást ef við Guðmann skyldum eignast börn. En svo skildi ég það þegar mín börn komu, hvernig hjartað stækkar og pláss verður til fyrir fleiri og hjá Nönnu fengu barnabörnin öll þessa sömu botn- lausu ást og umhyggju. Það var gæfa fyrir börnin okk- ar og hin barnabörnin að hafa ömmu alltaf til staðar, boðna og búna til að gera hvaðeina fyrir þau. Þegar horft er aftur sést hve dýrmætar allar stundir eru. Það hefur verið ómetanlegt fyrir okk- ur Guðmann að eiga ömmu í Dalsbyggð og hafa svo stutt á milli okkar. Börnin okkar hafa notið þess vera sótt af ömmu þeg- ar skóla lauk og fengið að vera hjá henni í stað dagvistar. Nanna lagði sig fram um að barnabörnin hefðu allt sem þau þyrftu, að allar gjafir væru eitt- hvað sem raunverulega nýttist. Hún hugsaði til þess hvað hún gæti gert til að létta lífið og gera það ánægjulegra. Það er sárt að kveðja Nönnu alltof snemma, sorgin og söknuð- urinn eru bergmál af kærleika og umhyggjusemi sem hún sýndi mér allt frá fyrstu kynnum. Um leið og ég kveð elsku Nönnu vil ég segja að hún er mér fyrirmynd að ömmu, ef ég verð þeirrar gæfu aðnjótandi. Þá vona ég að ég geti orðið sams konar stuðningur við uppeldi barnabarna og hún hefur verið mér og Guðmanni. Anna Lilja. Jóna Fríða Leifsdóttir Elsku Þórunn, nú ert þú farin í sumar- landið þar sem þú get- ur baðað þig í blómum og alls konar gróðri. Ég og fjölskylda mín tengd- umst ykkur Ásmundi frænda er við vorum á Eiðum og mikil var gæfan að kynnast þér og fjöl- skyldu þinni, nærvera þín og elska var svo hlý og traust. Við Sigurður erum þér ævin- lega þakklát fyrir ómetanlega hjálp þegar þú tókst Hjalta Stein og Heiðdísi Erlu að þér um þegar aðstæður mínar voru erfiðar vegna veikinda, svona varst þú alltaf hjálpleg og góð við okkur. Síðast þegar við Sigurður kom- um til ykkar Ásmundar í Orms- staði tókuð þið svo vel á móti okk- ur eins og alltaf, og fengum við að skoða allan fallega gróðurinn í gróðurhúsunum þínum þar sem kenndi ýmissa grasa, berjatré af ýmsu tagi, grænmeti og allt mögu- legt sem þér datt í hug að rækta. Þórunn Sigríður Oddsteinsdóttir ✝ Þórunn Sigríður Oddsteinsdóttir fæddist 5. júlí 1938. Hún lést 28. febrúar 2022. Útför Þór- unnar Sigríðar var gerð 12. mars 2022. Hjalti og Heið- dís minnast þín ávallt af mikilli ást og kærleik. Elsku Ásmund- ur, Oddsteinn, Þór- hallur, Anna Sig- rún, Guðjón og fjölskyldur, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Eigi stjörnum ofar á ég þig að finna, meðal bræðra minna mín þú leitar, Guð. Nær en blærinn, blómið, barn á mínum armi, ást í eigin barmi, ertu hjá mér, Guð. Hvar sem þrautir þjaka, þig ég heyri biðja: Viltu veikan styðja, vera hjá mér þar? Já, þinn vil ég vera, vígja þér mitt hjarta, láta ljós þitt bjarta leiða, blessa mig. (Frostenson, Sigurbjörn Einarsson) Hrafnhildur, Sigurður, Hjalti Steinn og Heiðdís Erla. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.