Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 49

Morgunblaðið - 25.03.2022, Side 49
ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022 _ Knattspyrnukonan Ada Hegerberg er í norska landsliðshópnum sem mætir Kósóvó og Póllandi í F-riðli und- ankeppni HM dagana 7. og 12. apríl. en báðir leikirnir fara fram í Noregi. He- gerberg, sem er 26 ára gömul, hætti að gefa kost á sér í norska landsliðið árið 2017 þar sem hún var ósátt við norska knattspyrnusambandið og vinnubrögð þess. Framherjinn er liðs- félagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Lyon í Frakklandi en hún hefur verið á meðal fremstu knattspyrnukvenna heims undanfarin ár. Alls á hún að baki 66 A-landsleiki fyrir Noreg þar sem hún hefur skorað 38 mörk en Noregur er í efsta sæti F-riðils undankeppn- innar með 16 stig eftir 6 leiki. _ Þýska knattspyrnumanninum Me- sut Özil hefur verið vikið úr leik- mannahópi tyrkneska félagsins Fener- bahce í óákveðinn tíma ásamt Tyrkjanum Ozan Tufan. Tyrkneska fé- lagið greindi frá tíðindunum í yfirlýs- ingu í gær en ekki kom fram í tilkynn- ingunni hver ástæðan væri fyrir brotthvarfi tvímenninganna. Hinn 33 ára gamli Özil gekk í raðir Fenerbahce frá Arsenal í janúar á síðasta ári. _ Hollenska handboltakonan Estev- ana Polman er á förum frá danska stórliðinu Esbjerg eftir að hafa leikið með því í níu ár og orðið þrisvar danskur meistari. Hún hafði átt í úti- stöðum við þjálfarann Jesper Jensen og skýrði frá því á samfélagsmiðlum að henni hefði verið sagt upp með tölvupósti. Polman, sem er 29 ára gömul, var kjörin besti leikmaður heimsmeistaramótsins 2019 þar sem Holland hreppti gullverðlaunin. Eitt ogannað Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á samtals fjór- um höggum yfir pari á fyrsta degi Joburg Ladies Open-golfmótsins sem fram fer í Suður-Afríku í gær en mótið er hluti af Evrópumóta- röðinni. Guðrún Brá lék hringina 18 á samtals 77 höggum en hún fékk sjö skolla á hringnum og þrjá fugla. Hún er sem stendur í 58.-67. sæti af 132 keppendum og á því góða möguleika á því að komast í gegnum niðurskurðinn ef hún held- ur uppteknum hætti í dag þegar annar keppnisdagurinn fer fram. Guðrún Brá í vænlegri stöðu Ljósmynd/GSÍ Suður-Afríka Guðrún er sem stend- ur í 58.-67. sæti af 132 keppendum. Handknattleiksmarkvörðurinn Daníel Freyr Andrésson hefur gert tveggja ára samning við Lemvig í Danmörku og mun hann ganga í raðir félagsins eftir leiktíðina. Hann hefur leikið með Guif í Sví- þjóð undanfarin tvö ár en Daníel staðfesti við Morgunblaðið að hann hefði leikið sinn síðasta leik með sænska liðinu þegar deildinni þar lauk í vikunni. Daníel hefur áður leikið í Danmörku og þá með Sönd- erjyskE. Þá hefur hann leikið með Val og FH hér á landi og Ricoh, sem nú heitir AIK, í Svíþjóð. Daníel til liðs við Lemvig Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Danmörk Daníel Freyr Andrésson er búinn að semja við Lemvig. hrikaleg pressa á þessu liði, ekki bara að vera besta liðið í deildinni heldur langbesta liðið þar sem þeir setja miklu meiri pening í þetta en hin liðin. Það er hrikaleg pressa og pressa sem ég hef ekki séð áður,“ sagði Axel. Það var ýmislegt öðruvísi í Riga en Axel er vanur, til dæmis und- irbúningstímabilið. „Ég spilaði tólf æfingaleiki á undirbúnings- tímabilinu þar sem við vorum í Tyrk- landi og Dúbaí í tvo mánuði. Þetta var kannski aðeins of mikið af því góða en það er ekki hægt að væla yf- ir þessu,“ sagði hann léttur. Eins og að fremja glæp Axel glímdi mikið við meiðsli í Lettlandi og það tók á andlega og líkamlega, sérstaklega á framandi slóðum þar sem hlutunum var öðru- vísi háttað en hann er vanur. „Það var hrikalega erfitt að vera meiddur þarna. Eins og ég væri að fremja glæp. Þeim fannst að ég væri að svindla á þeim. Þetta voru ekki al- varleg meiðsli en ég fékk ekki tíma til að verða betri. Þeir ýttu mér allt- af aftur af stað of snemma og þá náði ég mér ekki af meiðslunum,“ sagði Axel og hélt áfram að tala um æv- intýri í Lettlandi. „Ef ég mun einhvern tímann gefa út bók þá verður þetta langstærsti kaflinn. Ég veit hreinlega ekki hvað ég vil segja,“ sagði hann en eftir smá sannfæringu frá blaðamanni hélt hann áfram. „Ef það var gert eitt- hvað vitlaust var farið beint í launa- seðilinn og sektað. Ef ég var 900 grömmum of þungur voru tekin 10 prósent af næstu launum. Þá voru þrír yfirmenn knattspyrnumála sem réðu öllu. Þeir hringdu á bekkinn til að segja þjálfaranum hvaða skipt- ingar hann ætti að gera. Þá spilar það líka inn í að mér var sagt að með góðum árangri í Riga myndu dyr opnast í Rússlandi. Það er góður markaður þarna til að komast að hjá góðu liði í Rússlandi og það er ekki eitthvað sem ég hef áhuga á núna,“ sagði Mosfellingurinn. Axel, sem er nú 24 ára, fór ungur að árum til Reading á Englandi en lék ekki með aðalliði félagsins. Eftir að hafa verið að láni hjá Bath og Torquay í utandeildum Englands lá leiðin til Viking í Noregi árið 2018, áður en hann fór til Riga á síðasta ári. Axel er spenntur að fara aftur til Norðurlandanna. Í besta standi lífs míns „Riga-liðið er sterkt en deildin er það ekki. Ég tel mig geta bætt mig miklu mikið meira í Skandinavíu og komist á þá staði sem ég vil komast á. Það var mikill áhugi þegar kom í ljós að ég væri laus og mér leist best á Örebro. Það var áhugi í Noregi, Ungverjalandi og svo Litháen en ég vildi ekki vera áfram í Austur- Evrópu. Ég hlakka til að koma aftur til Skandinavíu og sýna hvað í mér býr. Ég hef ekki náð því lengi vegna meiðsla en nú er ég í besta standi lífs míns. Ég átti gott spjall við Örebro og mér líst rosalega vel á hvernig þeir spila og þeirra leikstíl. Það kemur ekkert annað til greina en að fara aftur upp í efstu deild. Þeir líta á sig sem efstudeildarlið og líta á síð- asta tímabil sem smá slys. Mér fannst spennandi að taka þátt í því verkefni að hjálpa liðinu upp aftur. Ég á að fá stórt hlutverk hjá þeim. Ég er búinn að vera hérna í einn dag og mér líst vel á völlinn, félagið og stuðningsmenn,“ sagði Axel Óskar. Íslendingar í Örebro Örebro var mikil Íslendinga- nýlenda undir lok 20. aldarinnar þegar Arnór Guðjohnsen, Hlynur Stefánsson, Hlynur Birgisson og Sigurður Jónsson voru allir lykil- menn í sterku liði félagsins í úrvals- deildinni. Arnór var um aldamótin kjörinn besti útlendingur 20. aldar í Svíþjóð fyrir frammistöðu sína þar. Gunnlaugur Jónsson kom líka við sögu og í kjölfarið lék Einar Brekk- an með liðinu í fjögur ár. Á seinni árum hafa síðan bæði Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hjörtur Logi Valgarðsson leikið með Örebro í úrvalsdeildinni. Þá hafa Edda Garðarsdóttir, Ól- ína G. Viðarsdóttir, María Björg Ágústsdóttir, Anna Björk Kristjáns- dóttir, Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir allar leikið með kvennaliði félagsins. Hrikaleg pressa í Riga - Axel Óskar Andrésson er á leiðinni frá Lettlandi til Örebro - Stökkpallur til Rússlands ekki lengur spennandi kostur - Vill sýna sig og sanna í Svíþjóð Ljósmynd/Zigismunds Zalmanis Riga Axel Óskar Andrésson í leik með lettneska liðinu. Hann var úr leik stóran hluta síðasta árs vegna meiðsla og er nú farinn til Svíþjóðar. LETTLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Síðustu dagar hafa verið svakaleg- ir. Ég hef verið að flytja úr íbúðinni í Riga og semja bæði við Riga og Örebro og það hefur verið nóg að gera,“ sagði knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson í samtali við Morgunblaðið. Axel hefur gert samning við sænska félagið Örebro, sem leikur í B-deildinni á komandi leiktíð. Hann kemur til Örebro frá Riga í Lett- landi þar sem hann hafði verið frá því í febrúar á síðasta ári. Þjóðverjinn Thorsten Fink, sem vann þýsku deildina fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni með Bayern München á sínum tíma sem leikmaður, tók við Riga á dögunum. Með komu hans færðist Axel aftar í goggunarröðina. „Hann er frábær þjálfari sem hef- ur unnið Meistaradeildina og er með þvílíka reynslu sem þjálfari og leik- maður. Ég spilaði allt undirbúnings- tímabilið með Riga en til að gera langa sögu stutta þá kom hann með sína nýju leikmenn inn. Við áttum frábært spjall þar sem hann sagði mér að samkeppnin yrði mjög hörð í miðvarðarstöðunni og við komumst að samkomulagi um að ég mætti fara. Mér leist betur á að fara en að vera í mikilli samkeppni akkúrat þarna. Það gekk alltaf rosalega vel þegar ég spilaði og við töpuðum ekki leik sem ég byrjaði og ég var ekki ósátt- ur við mína frammistöðu á vellinum. Kannski hentaði leikstíllinn minn bara ekki nægilega vel fyrir kom- andi tímabil,“ útskýrði Axel. Eiga að vera langbestir Eigendur Riga dæla peningum í félagið og eru óþolinmóðir ef illa gengur. Leikmenn og þjálfarar end- ast stutt ef liðið hefur ekki mikla yfirburði í heimalandinu. „Í Riga er þetta öðruvísi því þar koma nýir leikmenn inn á færibandi og menn fara út á færibandi. Maður sá ansi mörg ný andlit á stuttum tíma þarna og þar á meðal fjóra þjálfara á einu tímabili. Það er Subway-deild karla KR – Þór Þ .......................................... 84:100 Breiðablik – Vestri ............................. 112:91 Tindastóll – Keflavík ......................... (46:36) Valur – Þór Ak ................................... (72:41) _ Tveimur leikjum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Staðan fyrir tvo síðari leikina: Þór Þ. 20 16 4 1967:1763 32 Njarðvík 19 14 5 1832:1636 28 Keflavík 19 13 6 1717:1620 26 Valur 19 11 8 1547:1518 22 Stjarnan 19 11 8 1702:1645 22 Tindastóll 19 11 8 1666:1686 22 Grindavík 19 10 9 1621:1620 20 Breiðablik 20 9 11 2145:2123 18 KR 20 9 11 1828:1855 18 ÍR 19 7 12 1671:1672 14 Vestri 20 4 16 1627:1825 8 Þór Ak. 19 1 18 1475:1835 2 1. deild karla Hrunamenn – Hamar......................... 106:95 Staðan: Haukar 26 24 2 2682:2048 48 Höttur 26 22 4 2645:2166 44 Sindri 26 17 9 2498:2245 34 Álftanes 26 16 10 2481:2237 32 Fjölnir 26 14 12 2438:2497 28 Skallagrímur 26 11 15 2215:2343 22 Hrunamenn 27 11 16 2404:2635 22 Selfoss 26 11 15 2271:2351 22 Hamar 27 4 23 2121:2598 8 ÍA 26 1 25 1952:2587 2 NBA-deildin Charlotte – New York...................... 106:121 Detroit – Atlanta .............................. 122:101 Indiana – Sacramento ...................... 109:110 Boston – Utah ..................................... 125:97 Miami – Golden State....................... 104:118 Memphis – Brooklyn........................ 132:120 Minnesota – Phoenix........................ 116:125 Oklahoma City – Orlando ................ 118:102 Dallas – Houston ................................ 110:91 LA Lakers – Philadelphia ............... 121:126 Portland – San Antonio...................... 96:133 57+36!)49, Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson viðurkennir að það hafi verið svekkjandi að vera ekki fyrsti kostur í markvarðarstöðu ís- lenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu eftir að Hannes Þór Hall- dórsson lagði landsliðsskóna á hilluna á síðasta ári. Þess í stað var Elías Rafn Ólafsson markvörður Íslands í fjórum síðustu leikjum undankeppni HM á síðasta ári. „Já ég var svekktur en ég skil líka að þjálfararnir velja þann markvörð sem er heitastur og Elías var heit- astur. Hann var að spila með meist- urunum í Danmörku á meðan ég var á bekknum í Belgíu. Þjálfararnir velja þann sem stendur sig best hverju sinni,“ sagði Rúnar Alex á blaðamannafundi landsliðsins í gær. „Elli stóð sig vel í fyrra en við er- um ennþá að þróa liðið. Það er rosa- lega stutt á milli í fótbolta. Það líða fimm mánuðir á milli leikja og það getur margt gerst,“ bætti hann við. Rúnar gæti fengið stórt hlutverk í komandi vináttulandsleikjum Íslands gegn Finnlandi og Spáni á morgun og þriðjudag. johanningi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert 12 Rúnar Alex Rúnarsson á að baki 12 A-landsleiki fyrir Ísland. Svekktur en skilur ákvörðunina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.