Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
86%
EMPIRE
TOTAL FILM
VARIET Y
“ONE OF THE BEST SUPERHERO
MOVIES EVER MADE”
“A masterpiece.”
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
“Bullock and Tatum have dynamite chemistry”
“A riotously fun adventure thrill ride”
“A hilarious adventure from start to finish.”
28. mars
Samehead
Dagur Eggertsson, Baldur Skúla-
son og Tómas van Oosterhout kalla
sig Samehead. Dagur spilar á bassa
og syngur, Baldur á gítar og Tómas á
trommur. Þeir eru úr Reykjavík og
hafa verið að í fjóra mánuði. Same-
head sækir innblástur í síðrokk-
senuna, shoegaze/nu gaze og
draumapopp og markmið sveitar-
innar er að gera nýja senu af póst-
pönki sýnilegri og nýja músík á Ís-
landi fjölbreyttari og meira spenn-
andi.
Krísa
Krísa er hljómsveit úr Mosfellsbæ
og Kópavogi sem er ný af nálinni.
Kormákur Valdimarsson leikur á gít-
ar og syngur, Andri Eyfjörð Jóhann-
esson leikur á trommur og Jón
Ragnar Einarsson á bassa. Kormák-
ur er 15 ára, en Andri og Jón eru 17.
Krísa spilar indírokk sem er oft með
einlæga og súrrealíska texta og sæk-
ir innblástur til ýmissa grasrótar-
sveita í íslensku tónlistarsenunni.
Runes
Reykjavíkursveitin Runes, sem
verður brátt ársgömul, er skipuð
þeim Særúnu Sól Helgadóttur, gítar-
leikara og söngvara, Heimi Steini
Vigfússyni, rafmagnsgítarleikara og
söngvara, Jóni Erni Eiríkssyni
bassaleikara og Erni Ingólfssyni
trommuleikara, Þau eru 20 til 23 ára
og hafa lagt áherslu á nokkrar stefn-
ur, eins og kántrí, popp og rokk, þótt
rokkið sé í aðalhlutverki.
Project Reykjavík
Project Reykjavík er úr Reykja-
vík, nema hvað, og hefur starfað í
átta mánuði. Fannar Sigurðsson leik-
ur á gítar og öskrar, Friðrik Örn Sig-
þórsson leikur á bassa, Gunnar Hin-
rik Hafsteinsson á gítar, Hinrik Þór
Þórisson á trommur og Magnús Þór
Sveinsson á hljómborð og hljóð-
gervil.
Þeir eru allir 25 ára nema Magnús
sem er 24. Þeir lýsa sveitinni svo að
Project Reykjavík sé fimm manna
veiðimanna-prog hljómsveit sem eigi
ekki rætur að rekja til Skagafjarðar.
Allir stunda þeir rytmískt tónlistar-
nám í MÍT.
Dusilmenni
Dusilmenni eru þungarokkarar frá
Neskaupstað sem eru 15 til 17 ára
gamlir og hafa starfað saman í þrjú
ár. Skúli Þór Ingvarsson syngur,
Benedikt Arnfinnsson leikur á gítar,
Hlynur Fannar Stefánsson á
trommur og Jakob Kristjánsson á
bassa.
Kradak
Kradak er tvíeyki þeirra Mark-
úsar Loka Gunnarssonar og Egils
Helgasonar, sem leikar báðir á raf-
magnsgítara en Egill syngur líka.
Þeir eru úr Reykjavík og hafa
spilað saman í hálft ár, kynntumst í
Jafningjafræðslunni. Þeir semja
saman alla tónlistina á rafmagnsgít-
ara en fylla svo inn í bassa, trommur,
píanó o.fl., með upptökum eða öðrum
hljóðfæraleikurum.
Dóra & Döðlurnar
Dóra & Döðlurnar kepptu á síð-
ustu Músíktilraunum og komust þá í
úrslit. Þær eru úr Grafarvoginum og
hafa starfað saman í hálft fjórða ár
með mannabreytingum; núverandi
hópur hefur spilað saman í eitt og
hálft ár.
Brynja Lóa Bjarnþórsdóttir leikur
á píanó, Hekla Sif Sævaldsdóttir á
trommur, Auður Árnadóttir á
hljómborð og syngur líka, Dóra
Bjarkadóttir á bassi, Bára Katrín
Jóhannsdóttir á gítar og syngur líka
og Júlía Sylvía Gunnarsdóttir á gít-
ar.
Þær eru allar 16 ára nema Júlía
sem orðin er 17 ára, og spila aðal-
lega poppað rokk, bæði á íslensku
og ensku.
TTC
Hafnfirðingarnir Nikulás Dóri
Óskarsson, Ómar Freyr Scheving og
Steingrímur Daði Kristjánsson
leggja saman í púkk sem TTC, en
þeir starfa annars hver í sínu lagi
sem DÓNi, SXEF og STNY. Niku-
lás stýrir playbacki, leikur á gítar og
hljómborð, Ómar syngur og Stein-
grímur syngur og leikur á gítar og
hljóðgervil.
Þeir eru allir tvítugir og hafa
starfað saman í eitt ár, en hafa
þekkst síðan í grunnskóla.
Tónlistin er innblásinn af RnB,
hip hopi og poppi.
Samehead sækir innblástur í síðrokk og draumapopp.
Lára Snædal, Hildur Björg og Sientje Sólbjört eru Sóðaskapur.Woolly Mammoth’s Absence spilar tilrauna- og þjóðlagakennt rokk.
DÓNi, SXEF og STNY leggja saman í púkk sem TTC