Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ólafur Darri hefur alltaf verið uppáhalds íslenski leikarinn minn og ég var smá í sjokki þegar ég heyrði fréttirnar um að hann myndi vera í þessu. Birgir Dagur Bjarkason 30 Lífið 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ MANNAMÁL FIMMTUDAGA KL. 19.00 OG AFTUR KL. 21.00 MANNAMÁL FIMMTUDAGA KL. 19.00 OG AFTUR KL. 21.00 Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð ve rð ge tu r b re ys t á n fyr irv ar a. Ljubljana 21. apríl í 4 nætur Borgarferð 595 1000 www.heimsferdir.is Verð frá kr. 116.450 59.900 Flug báðar leiðir frá Flugsæti Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð ve rð ge tu r b re ys t á n fyr irv ar a. Costa del Sol 20. apríl í 10 nætur 595 1000 www.heimsferdir.is Flug & hótel frá 79.200 10 nætur Lækkaðu ferðina um 30.000 kr. á mann með kóðanum “30ARA” Sjá dæmi um verð með afslætti hér að neðan. ára 1992-2022 59.900 Flug báðar leiðir frá Flugsæti Ungi leikarinn Birgir Dagur Bjarkason fer með aðalhlut- verkið í myndinni Berdreymi. Hann lýsir því sem ótrúlegu tækifæri og stefnir á að gera leiklistina að ævistarfi. tsh@frettabladid.is Hinn sautján ára gamli Birgir Dagur Bjarkason leikur aðalhlut- verkið í Berdreymi, nýjustu mynd Guðmundar Arnar Guðmunds- sonar, sem fer í almennar sýningar á næstunni. Myndin fjallar um fjóra táningspilta sem tengjast vináttu- böndum í skugga of beldis og fer Birgir með hlutverk Adda, stráks sem er alinn upp af einstæðri móður með skyggnigáfu. Spurður um hvernig hann hafi landað hlutverkinu segir Birgir: „Það kom maður í skólann minn sem lék í Hjartasteini og sagði að það vantaði í hlutverk fyrir nýja kvikmynd sem Guðmundur Arnar Guðmundsson væri að gera og ég hugsaði bara: „Af hverju ekki að kýla á það, ég hef engu að tapa.“ Birgir fór í prufu og eftir að hann landaði hlutverkinu tók við tæpt ár af æfinga- og tökuferli. „Það var ótrúlega gaman en á pörtum gat það verið krefjandi, sérstaklega í tilfinningalegu sen- unum. En það góða við það er að við tókum svo langt æfingaferli og við strákarnir vorum svo vanir að fara í gegnum hverja einustu senu þannig að við vissum alveg hvað við áttum að gera, hvar við áttum að vera, hvað við áttum að segja og svo framvegis,“ segir hann. Myndin fjallar um vináttu ykkar strákanna, urðuð þið nánir í ferlinu? „Já, við urðum bara bestu vinir! Við hættum ekki að grínast í hvor öðrum á setti og í æfingaferlinu. Þetta var ótrúlega gaman og ég myndi án djóks kalla þá bræður mína í dag, við erum svo nánir.“ Gat verið krefjandi Berdreymi fjallar um ýmis alvarleg málefni á borð við heimilisofbeldi, einelti og kynferðislega misnotkun. Spurður um hvort það hafi verið erfitt að leika í sumum senum segir Birgir: „Það góða við það var að Kristín Lea, sem kenndi okkur leiklist í æfingaferlinu, var á setti fyrir þessar krefjandi senur. Ef okkur strákun- um fannst eins og við þyrftum að tala við einhvern og fannst eitthvað erfitt þá voru Guðmundur og allir aðrir tilbúnir að spjalla við okkur. En það gat alveg verið krefjandi.“ Addi, karakterinn þinn í mynd- inni, er berdreyminn. Trúir þú sjálf- ur á að fólk geti verið með skyggni- gáfu? „Já, ég trúi að maður geti verið berdreyminn og ég hef alveg átt vini sem hafa verið það. Ég hef reyndar ekki verið berdreyminn sjálfur en það gæti gerst hvenær sem er. Maður veit aldrei.“ Sjokk að leika á móti Ólafi Darra Aníta Briem fer með hlutverk móður Adda í Berdreymi og Ólafur Darri Ólafsson leikur helsta and- stæðing strákanna í myndinni. Spurður hvernig upplifun það hafi verið að leika á móti svo þekktum leikurum segir Birgir: „Það var svolítið sjokk í byrjun, ég get alveg sagt það. Ólafur Darri hefur alltaf verið uppáhalds íslenski leikarinn minn og ég var smá í sjokki þegar ég heyrði fréttirnar um að hann myndi vera í þessu. Að leika með þeim og öðrum leikur- unum var ótrúlega mikil reynsla og sannkallaður heiður að fá að vinna með svona stórum reynsluboltum í þessum bransa.“ Þá segir Birgir Anítu Briem hafa reynst honum einkar vel á settinu. „Aníta meira að segja kenndi mér á gítar á settinu og gaf mér ljóðabók. Hún var beisiklí bara leiklistar- mamma mín.“ Aldrei haft jafn gaman í lífinu Berdreymi var frumsýnd á Berl- inale, alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðinni í Berlín, í febrúar síðast- liðnum og vann til verðlauna sem besta evrópska myndin. Leikararnir fengu að vera viðstaddir ásamt fjöl- skyldum sínum og segir Birgir það hafa verið mikla upplifun að ganga rauða dregilinn. „Ég vissi ekki hvernig þetta myndi vera og ég hugsaði bara: „Já, þetta er að gerast og við sjáum bara hvernig þetta fer.“ Ég labbaði þarna inn og ég hef bara aldrei haft jafn gaman í lífi mínu.“ Berdreymi er fyrsta kvikmyndin sem Birgir leikur í en hann stundar nú leiklistarnám við Fjölbrauta- skólann í Garðabæ. Hann segist hafa haft áhuga á leiklist síðan hann var krakki en ekki hugsað um hana sem framtíðarstarf fyrr en nú. „Eftir að ég fékk þetta ótrú- lega tækifæri þá hugsaði ég bara: Heyrðu, ég elska að gera þetta, þetta er bara minn draumur og það sem ég ætla að gera allt mitt líf,“ segir hann og bætir við að hann geti hugsað sér að fara í framhaldsnám í leiklist einhvers staðar erlendis. n Trúir sjálfur á berdreymi Birgir Dagur Bjarkason segist hafa haft mikinn áhuga á leiklist síðan hann var krakki. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Birgir tengdist mótleikurum sínum í Berdreymi sterkum böndum og segist hann líta á þá sem bræður sína. MYND/JOIN MOTION PICTURES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.