Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 10
Þetta er bara saga þjóðar- innar í ljós- mynd- um eins og hún leggur sig. Gunnar V. Andrésson Stafrænt ljósmyndasafn Fréttablaðsins frá 2002 hefur verið afhent Ljósmyndasafni Reykjavíkur til varðveislu og mun verða aðgengilegt almenningi þar héðan af. tsh@frettabladid.is Gunnar V. Andrésson er einn þekkt- asti blaðaljósmyndari Íslands og starfaði sem ljósmyndari á Frétta- blaðinu frá 2003 til starfsloka 2018. Hann fagnar því að ljósmyndasafn Fréttablaðsins sé komið í öruggar hendur hjá Ljósmyndasafninu. „Þetta er ansi skemmtilegt og gott að vita til þess að þetta sé í góðri vörslu hjá alvöru fyrirtæki, sem er Ljósmyndasafn Reykjavíkur, það skiptir okkur miklu máli,“ segir hann. Spurður um hvernig það hafi komið til segir Gunnar, eða GVA eins og hann er oft kallaður: „Ljósmyndasafn Reykjavíkur tók að sér að varðveita gamla DV- og Vís- is-safnið sem nær aftur til um 1960 ef allt er tekið. Takan á stafrænu mynd- inni hófst 2002 á Fréttablaðinu og sá hluti myndasafnsins er að koma á Ljósmyndasafn Reykjavíkur núna og verður öllum aðgengilegur.“ Hér má sjá sérvalin brot frá ljós- myndurum Fréttablaðsins úr rúm- lega tuttugu ára sögu blaðsins. Þar á meðal er sögufræg mynd GVA af fundi Geirs Waage sóknarprests og Karls Sigurbjörnssonar, þáverandi biskups Íslands, á Biskupsstofu árið 2010. „Þetta er bara saga þjóðarinnar í ljósmyndum eins og hún leggur sig frá um 1970,“ segir Gunnar. n Ljósmyndasafnið kemur fyrir augu almennings Karl Sigurbjörnsson, þáverandi biskup Íslands, og Geir Waage sóknarprestur ræðast við á Biskupsstofu árið 2010 undir vökulu auga Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lögregla var með mikinn við- búnað á bensín- stöð Olís við Rauðavatn vorið 2008 þegar vörubílstjórar mótmæltu hækkandi elds- neytisverði. Táragasi og piparúða var meðal annars beitt á mótmæl- endur. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 var einn af stórviðburðum síðasta áratugar. Ísland komst í heims- fréttirnar eftir að flugsamgöngur lögðust niður í Evrópu dögum saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Rithöfundurinn Guðbergur Bergsson á heimili sínu árið 2014. Tilefni mynda- tökunnar var útgáfa Litlu hugsanabókarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Almenningur mótmælti fyrir utan Alþingi mánuðum saman í kjölfar bankahrunsins haustið 2008. Á myndinni má sjá eitt af þekkt- ustu slagorðum búsáhaldar- byltingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Guðni Th. Jóhannesson fagnar sigri í forsetakosning- unum 25. júní 2016 ásamt eiginkonu sinni Elizu Reid og börnum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK 10 Fréttir 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMYNDAÞÁTTUR FRÉTTABLAÐIÐ 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.