Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 26
18 Íþróttir 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR Tiger Woods sneri aftur á golf- völlinn eftir langa fjarveru á Masters-mótinu um helgina og gaf til kynna í lok móts að hann myndi reyna að ná risa- mótum þessa árs. Gulldreng- ur golfíþróttarinnar skilaði strax aukningu í áhorfenda- tölum og eftirvæntingu hjá áhorfendum á vellinum. kristinnpall@frettabladid.is GOLF Þrátt fyrir að það hafi fjarað undan spilamennsku Tigers Woods á Masters-mótinu um helgina var gott að sjá kylfinginn goðsagna- kennda aftur á keppnisvellinum. Áhorfstölur ruku upp með þátt- töku Tigers sem staðfesti um leið að hann hygðist halda ferlinum áfram þótt hann myndi aldrei aftur ráða við þéttskipaða dagskrá. Met Sams Shields er innan seilingar en Jack Nicklaus mun líklegast halda sínu meti frá greipumTigers. Fjórtán mánuðum eftir örlaga- ríkt bílslys sem virtist ætla að binda enda á farsælan feril Woods sneri Tiger aftur á Masters-mótinu, fyrsta risamóti ársins í síðustu viku. Eftirvæntingin eftir því að sjá Tiger mæta aftur til leiks var slík að það voru þúsundir áhorfenda mættar til að fylgjast með hverju höggi Tigers á æfingahringjunum fyrir mót. Tiger er og verður gulldrengur PGA-mótaraðarinnar eins og sást á viðbrögðum áhorfenda og and- stæðinga hans eftir sigur Tigers á Masters árið 2019. Í lok móts staðfesti Tiger að hann myndi í það minnsta taka þátt á Opna breska meistaramótinu sem fer fram á hinum sögufræga St. And- rews-velli síðar á þessu ári og gældi við þá hugmynd að taka þátt á PGA- meistaramótinu í næsta mánuði. Hann virðist ætla að velja sér mót til að keppa í þegar hann vantar einn sigur til að bæta met Sams Shields og Tigers (82) yfir flesta sigra í sögu PGA-mótararaðarinnar. Hæpið er að Tiger nái að slá met Jacks Nick- laus yfir f lesta risamótstitla (18) úr þessu, en tíminn hefur kennt okkur að afskrifa ekki sigurvilja Tigers. Áhrif Tigers á meistarann: Bandaríski kylfingurinn Scottie Scheff ler hafði mikla yfirburði á Masters-mótinu en áhrif Tigers á þennan öfluga kylfing eru gríðarleg. Í mótinu sást Scheffler leika í Tiger Woods-skóm, hann notaði kylfur sem Taylor Made framleiddi fyrir Tiger Woods og bera merki Tigers og að auki var Scheff ler í bol sem Tiger og Nike framleiða saman. n Sviðsljósið fylgir Tiger óháð árangri 31% Áhorf jókst um 31% á annan hring mótsins á milli ára þegar Tiger virtist ætla að blanda sér í baráttu um sigur. 47 Í endurkomu sinni endaði Tiger Woods í 47. sæti, ekki frábær niðurstaða en stóri sigur Tigers var að spila golf í fjóra daga. 82 Hann hefur sigrað 82 sinnum á PGA-móta- röðinni. 11 Tiger hefur ellefu sinn- um verið valinn PGA- kylfingur ársins. 24 Hefur varið titil sinn á móti 24 sinnum. 4 Eini atvinnukylfingur- inn til þessa sem hefur unnið fjögur risamót í röð. 3 Tiger eyddi þremur vikum á sjúkrahúsi eftir bílslys þar sem meðal annars var íhugað að taka af honum annan fótinn. 20 Tiger hefur 20 sinnum farið holu í höggi á ferlinum. 142 Hann komst 142 sinnum í röð í gegnum niðurskurð á þeim mótum sem hann keppti á, það er met. 1 Var alls 683 vikur í 1. sæti heimslistans.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.