Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 32
Að dvelja árum saman innan um blinda, vera í raun tengiliður þeirra við veruleikann, hlýtur að þroska með mönn- um bæði frásagnar- og túlkunarhæfileika. MYNDLIST Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir Kjarvalsstaðir Aðalsteinn Ingólfsson Árið 1994 ákvað nefnd um sýn- ingar á íslenskri myndlist erlendis að senda verk Birgis Andréssonar á Tvíæringinn í Feneyjum árið eftir, mörgum til allnokkurrar undrunar. Ekki síst listamanninum sjálfum, ef marka má nýútkomna bók um hann. Fram að því höfðu ýmsir helstu burðarásar myndlistarinnar í landinu, allt frá Jóhannesi Kjar- val til Errós, sýnt þar fyrir Íslands hönd, svo og nokkur átrúnaðargoð (og kennarar) Birgis sjálfs, Magnús Pálsson, Sigurður Guðmundsson og Hreinn Friðfinnsson. Sjálfur hitti ég fyrir efasemdamenn sem veltu fyrir sér hvort listamaðurinn verðskuld- aði þessa upphefð á þessum tíma- punkti ævi sinnar, og að auki hvort meginviðfangsefni hans, íslenskt þjóðerni, ætti nokkurt erindi við alþjóðlegan myndlistarheim. Satt best að segja voru viðbrögð í Fen- eyjum ekki uppörvandi. Í lítinn og nettan sýningarskála Íslands kom nánast enginn til að berja augum framlag Birgis, að minnsta kosti ekki meðan sá sem þetta skrifar var þar staddur, og þeir fáu sem létu sjá sig stöldruðu stutt við. Enginn hinna fjölmörgu blaðamanna sem að jafnaði sækja þennan viðburð taldi sér heldur skylt að fjalla um þessi sérkennilegu íslensku listaverk af skynsamlegu viti. Kannski hafði það sitt að segja hve sjónrænt aðdráttaraf l sýn- ingargripanna, til dæmis prjónuðu íslensku fánanna tólf í sauðalit- unum, var af skornum skammti. Má vera að þarna hafi Birgir verið réttur maður á röngum tíma, því á tíunda áratugnum var farið að fjara ansi mikið undan hug mynda list á alþjóðavettvangi. Höfundur bókar- innar um Birgi, kanadíski listfræð- ingurinn Robert Hobbs, viðrar einn- ig þá skoðun að Feneyjasýning hans árið 1995 hafi verið kynnt á röngum forsendum, sem eins konar hlutlæg „rannsókn“ á ýmsum birtingar- myndum íslensks þjóðernis. Þvert á móti hafi ásetningur listamannsins alla tíð verið súbversífur, að grafa undan þessum birtingarmyndum með ýmsum hætti, af byggja þær, eða að minnsta kosti hafa uppi verulegar efasemdir um gildi þeirra. Uppskeruhátíð að Kjarvalsstöðum Í ljósi þessarar fremur ógæfulegu útrásar árið 1995 hefur verið ævin- týralegt að fylgjast með því hvernig I8 galleríinu og afkomendum Birgis Andréssonar (sem lést 2007) hefur tekist að búa til alþjóðlega gjald- gengt og ábatasamt „brand“ úr lista- manninum og viðfangsefni hans, „íslenskri þjóðrækni“, sannkallaðri útnárafræði sem ekki hefur verið milli tannanna á málsmetandi list- spekúlöntum úti í heimi á síðustu áratugum. Vísast hefur það auð- veldað þessa seinni útrás, hve mikið af myndlist Birgis er að stofni graf- ísk hönnun sem hægt er að prenta í upplögum og dreifa stafrænt til kaupenda og safna víða um lönd. Og nú fer fram vegleg uppskeru- hátíð; yfirlitssýning í yfirstærð á Kjarvalsstöðum og 370 síðna bók um listamanninn á ensku, tungu- máli heimsfrægðar. Vonandi gefst tækifæri til að ræða þessa bók á öðrum vettvangi. Hér skal einungis áréttað að hún er frábærlega vel gerð. Texti Kanada- mannsins Roberts Hobbs er læsi- legur og upplýsandi, og raunar afrek miðað við það að hann er hér að fjalla um löngu látinn og sann- ast sagna sérlundaðan listamann af framandi menningar- og mál- svæði. Höfundur þarf að standa skil á innviðum íslensks myndlistar- lífs á þeim tíma sem hér er undir, atburðum í íslenskri pólitík og undarlegum íslenskum þjóðsiðum, svo fátt eitt sé nefnt. Tvennt er það sem setur afgerandi mark á þróun Birgis sem mynd- listarmanns, uppvöxtur hans meðal blindra og námsferill meðal hug- myndalistamanna. Að dvelja árum saman innan um blinda, vera í raun tengiliður þeirra við veruleikann, hlýtur að þroska með mönnum bæði frásagnar- og túlkunarhæfi- leika, um leið og túlkunin leiðir óhjákvæmilega í ljós ýmislegt mis- ræmi milli þess sem er sýnt og sagt, milli máls og myndar. Til dæmis verður glöggur sjáandi/túlkandi þess áskynja að því nær sem hann stendur því viðfangi sem hann á að lýsa fyrir sjónlausum, þeim mun meir gliðnar viðfangið fyrir aug- liti hans. Í nærmynd er öll náttúra abstrakt, eins og þeir vissu gjörla Kjarval og Kristján Davíðsson. Hið sama gildir um ýmiss konar gildishlaðin hugtök sem menn hafa hampað gagnrýnislaust; við ítrustu skoðun verða þau hjóm eitt. Sjálfsímynd þjóðanna Hugmyndalistin er leið Birgis til að gaumgæfa hugtök og hug- myndir. Einna mestur áhrifavaldur á ferli hans er sennilega hollenski myndlistarmaðurinn Douwe Jan Bakker, sem Birgir kynnist ungur. Bakker er einna fyrstur hollenskra nýlistarmanna til að vinna ljós- mynda- og textaefni út frá íslensku landslagi, húsagerðarlist og tungu. Þekkt bókverk Birgis um „eyktar- mörk í íslensku landslagi“ er því mjög í anda Bakkers. Þeir félagarnir áttu drykkjuskapinn einnig sam- eiginlegan og létust úr ofdrykkju, nánast jafn gamlir. En þar sem við- horf Bakk ers til íslensks landslags og menningar er mestmegnis ljóð- rænt og spurult, einkennast athug- anir Birgis á ýmislegu í viðtekinni þjóðmenningu okkar Íslendinga – og þjóðmenningu yfirleitt – á efa- semdum, blönduðum ísmeygilegum húmor, eða jafnvel tvílræði. Nú er mér ekki fullljóst hvaðan Birgi kemur þessi áhugi á íslenskri þjóðmenningu í víðasta samhengi. Kannski er hann alfarið sprottinn upp úr bók Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili, Íslenskir þjóðhættir, sem hann eignaðist ungur og skildi aldrei við sig. Snemma á níunda ára- tugnum var Birgir altént kominn á kaf í eins konar myndræna spurn- ingaleiki, þar sem ýmislegt kunnug- legt var til umfjöllunar, ekki síst sjálfsímynd þjóðanna, eins og hún birtist í máli og myndum. Þar er auðvitað stærsta spurningin: Hvers eðlis er sú ímynd? Er hún yfirleitt til? Og ef hún er ekki til, eru þjóð- irnar sem stjórnast af henni ekki bara tilbúningur? Þungbær boðskapur? Yfirlitssýningin á verkum Birgis að Kjarvalsstöðum er viðamikil og fjöl- breytt. Mest fer þó fyrir verkum þar sem stakir litir eru notaðir ásamt textum. Nokkur þessara verka eru réttnefndar veggmyndir, stór verk, þar sem textarnir eru eins og opin- berar yfirlýsingar (jafnvel þótt þeir séu persónulegir), aðrar eru í stofu- stærðum, gerðar til einstaklings- brúks. Í þessum verkum á sér stað stöðug núningur milli textanna og litanna, þar sem textarnir kalla á lestur en litirnir á skynjun/túlkun. Til viðbótar koma svo staðhæfingar listamannsins, þrykktar á hverja mynd, um „íslenskan“ uppruna litanna sem notaðir eru, þegar áhorfandinn veit ósköp vel að eng- inn getur „átt“ liti. Þessar mótsagna- kenndu pælingar um „þjóðerni lita“ taka á sig stórbrotna mynd í verka- röðinni um gjörvöll ríki Afríku, þar sem sérhvert ríki virðist eiga sér lit, og sá litur er alltaf „íslenskur“. Og engin leið, skynrænt, menningar- lega eða heimspekilega, að tengja á milli nafnanna á löndunum og litanna sem Birgir velur þeim. Boðskapur Birgis gæti verið: Flest það sem okkur er heilagt er til- búningur. Og kannski helsta afrek hans sem hugmyndalistamanns að gera þann fremur þungbæra boð- skap allt í senn fyndinn, litríkan og aðlaðandi. ■ Heimsmyndin sem tilbúningur Yfirlitssýningin á verkum Birgis að Kjarvalsstöðum er viðamikil og fjölbreytt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sýningin á Kjar- valsstöðum stendur til 15. maí. 24 Menning 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.