Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2020, Síða 11

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2020, Síða 11
11 Poppað á Sigló - sjötti hluti Helgi Svavar, Steinsteypa og fleiri bönd. Helgi Svavar Helgason hóf sinn feril m.a. með því að leika á trommur í Léttsveit Tónskólans sem fór m.a. í heilmikla ferð til Danmerkur og fljótlega eftir það lék hann líka með Harmonikkusveitinni sem illu heilli liggur nú í dvala. Um svipað leyti gat hann einnig byrjað að læra eitthvað á trommur því það hafði fengist kennari til Tónskóla Siglu- fjarðar sem veitti góða tilsögn á það hljóðfæri. Sá ágæti maður hét Helgi Ástvaldsson og kom frá Ólafsfirði, en hans naut því miður ekki lengi við því hann lést af slys- förum á sviplegan hátt fáeinum mánuðum eftir að kennslan hófst. Eftir hann tóku þeir við, Sveinn Hjartar, Steini Sveins og Aggi Sveins. Ég tók hús á Helga Svavari ný- verið og við spjölluðum um hljóm- sveitarárin hans á Siglufirði. Hjólabrettaáhugadrengirnir Börkur Þórðarson og Tryggvi Jónasson voru ásamt vinum sínum Víði, Sigga og Jónsa að grúska með ein- hvers konar tilraunakennt rapp og eitthvað fleira í þeim dúr í kjallar- anum í Gagganum og einnig niðri í Æskó, en þessir ungu menn köll- uðu sig Dexis records. Á þessum tíma var ég að djöflast við að spila á gítar og við Sibbi (Sigurbjörn Einar Guðmundsson) fundum gamlan bassa sem við löguðum og máluðum og spiluðum svo ótrúlega oft og mikið saman á kvöldin og vorum þá að herma bæði eftir því sem við fíluðum og svo því sem var í gangi. Red hot Chili peppers, Hendrix, og fleiri goð voru til dæmis í hávegum höfð hjá okkur svo einhverjir séu nefndir. Vina- hópur stækkaði eins og gengur þegar eitthvað er að gerast og Sigurður Steinsson sem spilaði á gítar bættist fljótlega í hann. Sam- an héldum við svo oft til á kvöldin heima hjá Hjalta syni Valþórs læknis, dunduðum okkur við að gera grínmyndbönd og tókum upp tónlist á gamla tölvu sem Hjalti átti. Einhvern veginn svona byrjaði þetta allt saman. Sumarið eftir kemur svo Grétar sonur Sigga Hilmars í bæinn, en hann var oft á Sigló á sumrin. Hann er tvíburabróðir hans Dodda ef einhver tengir betur með þær upplýsingar. Grétar kemur með ferska strauma úr Árbænum þar sem voru í gangi svolítið experi- mental hljómsveitir t.d. Bibbi Curver og co og Yukatan svo dæmi sé tekið. Hann kemur líka með fulla tösku af kassettum með Nirvana, Primus og ýmsum hljómsveitum sem gátu með góðu eða ekki góðu móti flokkast undir hálfgerða jaðar- músík sem hafði fram að þessu ekki numið land á Siglufirði. Þegar þarna er komið sögu var í gangi band sem æfði í gömlu Matta sjoppunni sem í voru meðal ann- arra þeir Jón Svanur og Ási Tona en ég man ekki alveg hvað hét. Við fengum aðstöðu á efri hæðinni, en héngum samt mikið saman niðri með hinni hljómsveitinni. Þarna verður til band sem við nefndum Steinsteypa þar sem ég er á trommur, Grétar á bassa, Börkur söng, Sigþór Ægir var minnir mig fyrst á gítar, en hættir fljótlega og fer í hljómsveitina á neðri hæðinni og þá held ég að Siggi Steins hafi kom- ið í hans stað. Þeir Hjalti og Sibbi héngu alltaf með okkur, en eftir sumarið flytur Grétar úr bænum, Sibbi fer á bassann og þá minnir mig að við höfum breytt nafninu úr Steinsteypa í Concrete. Við missum síðan húsnæðið að Aðal- Helgi byrjaði kornungur að munda kjuðana.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.