Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2020, Side 12
12
Síðan lá leið Helga á Krókinn og
það má segja að litlu böndin frá
Sigló hafi bráðnað svolítið saman
þar. Þar spilaði hann með Jónsa
Sveins, Víði Vernharðs og Gísla
sem kom frá Hvammstanga, en
svo fór Gotti Kristjáns að syngja
með bandinu og annar trommari
tók við af Helga þegar hann hélt
suður í jazzinn. Þá nefndist bandið
Skemmtileg mynd af hljómsveitinni Max sem Sigurður Hlöðvesson tók.
götu 5 en fáum í staðinn einbýlis-
hús við Túngötu á horninu á móti
Alþýðuhúsinu sem bærinn átti líka
á þessum tíma. Þarna vorum við
komnir með fína aðstöðu og æfðum
á hverju kvöldi, sömdum mikið af
tónlist og tókum í framhaldinu þátt
í músiktilraunum undir Stein-
steypunafninu.
Sú meinlega villa slæddist inn með
fréttinni í Mogganum að hljóm-
sveitin Steinsteypa var sögð vera
frá Hafnarfirði og voru drengirnir
ekki mjög kátir með það, enda
Siglfirðingar og stoltir af sínum
heimabæ.
Þegar þarna var komið sögu í
spjallinu, sagðist Helgi vilja "hringja
í vin" og sló í framhaldinu á þráð
til Sibba til að fá tímalínuna stað-
festa. Allt passaði með smávægileg-
um leiðréttingum og viðbótum.
Eftir Mattasjoppuna æfðum við
um tíma í gamla leikskólanum
uppi á Hlíðarvegi bætti Sibbi við,
(þar sem Þormóður Eyjólfsson átti
einu sinni heima). Hann rifjaði
líka upp að þeir spiluðu einu sinni
í pásu hjá Max og það var hljóm-
sveitin Stjörnukisi sem vann músik-
tilraunirnar sem þeir tóku þátt í
árið 1996. Sibbi hafði líka í eina
tíð komið lítillega við sögu í hljóm-
sveitunum Pinhead og Bugles.
Mörgum árum síðar fer Sibbi suð-
ur og gengur til liðs við pönkband-
ið Spírandi baunir.
Og Helgi hringdi aftur í annan vin,
og í þetta skiptið var það Jón Svanur
Sveinsson. Hann kom líka með
nokkrar viðbætur sem skerpti á
heildarmyndinni og ég púslaði í
beinu framhaldi inn í textann.