Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2020, Síða 13
13
í skóla á Laugarvatni og Hlöðver
tók við. Pálmi var þó ekki alveg
hættur í bransanum því hann stóð
fyrir stofnun hljómsveita á Laugar-
vatni.
-
Hlöðver segir frá: "Hljómsveitin
Max var stofnuð í janúar árið 1988
og hana skipuðu í fyrstu Pálmi
Steingrímsson söngur, Hilmar Elef-
sen gítar, Rúnar Sveinsson bassa,
Örvar Bjarnason hljómborð og
Sveinn Hjartarson trommur. Áður
hafði hún heitið Ekkó og var tromm-
ari þá Jón Pálmi, en árið 1989 tók
ég við sem söngvari. Hljómsveitin
spilaði í músíktilraunum árið 1989
og komst nærri því áfram, en
vorum því miður í riðli með hljóm-
sveitinni sem vann. Við fengum
engu að síður flest atkvæði frá
áhorfendum. Við spiluðum þrisvar
í Húnaveri á útihátíð og þar var
Hilmar eitt sinn að tala við Helga
Björns og Helgi var að segja honum
þegar þeir í Sssól höfðu spilað fyrir
yfir 5000 manns í Vestmannaeyjum
og þá sagði Hilmar að það væri nú
ekkert við hefðum spilað fyrir
10.000 manns á Síldarævintýrinu
og þá varð Helgi kjaftstopp. Síðustu
10 ár hefur Max verið endurvakin
og þá undir nafninu Hugrakka
Brauðristin Max og hefur Pálmi þá
verið með okkur spilað á gítar og
sungið og höfum við verið að spila
á svokölluðum Siglfirðingaböllum
til dæmis á Spot. Læt þetta duga
frá mér því ég er ekki alveg tilbú-
inn að segja grófu bransasögurnar,
því það gæti leitt til vinslita". Hmm.
Pinhead
Nokkrir ungir menn komu saman
veturinn 1992-93 og úr varð hljóm-
sveitin Pinhead. Þetta voru:
Ásgrímur Finnur Antonsson á
trommur, Jón Svanur Sveinsson á
bassa, Sigþór Ægir Frímannsson á
gítar og Leó Ingi Leósson á rythma-
gítar til að byrja með, en seinna
aðeins söngur. Þá söng Sigurbjörn
Óskar Guðmundsson með hljóm-
sveitinni í fyrsta skiptið sem hún
kom fram.
Hljómsveitin Pinhead þótti þétt
og ágætlega spilandi. Fyrsta æfingar-
húsnæðið var í bílskúr við Hvann-
eyrarbraut sem Frímann faðir Sig-
þórs átti, það næsta í tónlistarskól-
anum og að síðustu í Dröfn sem
var númer 5 við Aðalgötu þar sem
Matti Jó hafði rekið söluturninn
Tröð, en þar æfðu a.m.k. tvær
aðrar hljómsveitir á sama tíma.
Lagalistinn var ekkert ósvipaður
hefðbundnum lagalistum á sveita
Newshit sem er eiginlega orðaleikur
sem getur lesist sem News hit, en
einnig sem New shit. Upp úr þessari
spilamennsku verður síðan til sá
jarðvegur sem hljómsveitin Day-
sleeper er eiginlega grundvölluð á.
Hugrakka brauðristin Max
Ævintýrið byrjaði í Æskó árið 1987
að sögn Jóns Pálma Rögnvaldssonar
og þá nefndist hljómsveitin Ekkó,
en það nafn hafði reyndar einnig
verið notað á sjöunda áratugnum
af öðrum siglfirskum ungmennum
og mér er ekki kunnugt um neina
sérstaka tengingu þar á milli. Ekkó
spilaði tvisvar eða þrisvar í Æskó
áður en nafnið breyttist og Svenni
Hjartar tók við af Jóni Pálma.
Fyrsta árið eða svo söng frændi hans
Pálmi Steingríms með bandinu eða
þar til hann hætti til að fara suður
Hljómsveitina Blackmail skipuðu þeir Sigþór Ægir Frímannsson
sem er fyrir framan magnarann til vinstri, Ásgrímur Antonsson
aftast, Jón Svanur Sveinsson fremst á mynd og Víðir Vernharðsson
lengst til hægri. Á myndina vantar Gotta Kristjáns. sem hefur þá
annað hvort verið myndasmiðurinn eða ekki á staðnum. Myndin er
tekin í æfingahúsnæðinu að Aðalgötu 5 eða í Drafnarhúsinu sem
seinna varð verslunin Tröð sem var rekin af Matta Jóhanns og Jónu.