Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2020, Qupperneq 14
14
böllum þess tíma, en útsetningar
laganna voru þyngri en venjan var.
Notaðir voru alvöru þungir gítar-
effectar, s.s. Thrash Master og
Heavy Metal frá Boss, og fengu
öll hljóðfæri að njóta sín. Hljóm-
sveitin Pinhead kom nokkrum
sinnum fram og voru undirtektir
oftast góðar. Hún var nokkrum
sinnum upphitunar- og/eða pásu-
hljómsveit fyrir Hugrökku Brauð-
ristina Max og svo kom hún fram
á einu síldarævintýri. Þá spilaði hún
á tveimur dansleikjum sem aðal-
númer. Í fyrra skiptið var um að
ræða dansleik á landsmóti unglinga
í badminton og þar voru undirtektir
verulega góðar. Sá dansleikur stóð
yfir í þrjá tíma fyrir troðfullu Al-
þýðuhúsi og dönsuðu allir, allan
tímann. Í seinna skiptið var um
ræða dansleik í félagsmiðstöðinni
Fellahelli í Reykjavík. Óhætt er að
segja að þar hafi meiri eftirspurn
verið eftir raftónlist og blikkljósum,
en kraftmikilli sveitaballtónlist með
metalívafi og óteljandi gítar, trommu
og bassasólóum. Voru undirtektir
á þeim dansleik því töluvert undir
meðallagi góðar. Hljómsveitin Pin-
head leystist smám saman upp yfir
sumarið/haustið 1994 og í kjölfarið
.
Hér er hljómsveitin Blackmail einnig, en þetta mun vera síðari
útgáfa hennar. Frá vinstri talið: Jón Svanur Sveinsson, Gotti Kristjáns,
Víðir Venna, Sigþór Ægir og Helgi Svavar sem var þarna kominn í staðinn
fyrir Ásgrím Antonsson undir það síðasta. Ljósmynd: Sveinn Hjartarson
gengu flestir meðlima hennar inn
í aðrar hljómsveitir á Sigló. Farið
verður yfir þá sögu í næsta þætti
um popplífið á Sigló.
En nánar verður farið yfir þá sögu
í næsta og síðasta þætti um popp-
lífið á Sigló á árum áður. - LRÓ
HEIMILDARMENN:
Hlöðver Sigurðsson,
Jón Pálmi Steingrímsson,
Pálmi Rögnvaldsson,
Sveinn Hjartarson,
Leó Ingi Leósson,
Víðir Vernharðsson,
Ásgrímur Antonsson,
Gottskálk H. Kristjánsson,
Helgi Svavar Helgason,
Sigurbjörn Einar Guðmundsson,
Jón Svanur Sveinsson.