Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2020, Page 20
Sjá má einkenni siglfirska gaflsins á Siglufjarðarkirkju
sem er byggð í ný-klassískum stíl. Arkitekt er Arne Finsen.
Mynd fengin að láni af netinu.
Ljósmyndari Þórarinn Ólafsson.
Hverjir voru að verki?
Hús með siglfirska gaflinum eru dreifð
um allan bæ en þéttast standa þau við
Hverfisgötuna á Brekkunni. Þekkt hús
hafa þessi einkenni þótt þau leyni á sér,
svo sem Siglufjarðarkirkja og Útvegs-
bankahúsið.
Fróðlegt væri að vita hvaða smiðir eða
hönnuðir voru þarna að verki. Því
miður eru fáar upplýsingar aðgengi-
legar sem geta varpað ljósi á það. Að-
eins örfáar teikningar eru til af húsum
sem byggð voru á þessum tíma og
fárra húsasmíðameistara getið.
Aðeins fyrirfinnast 11 nafngreindar
teikningar af steinhúsum frá fjórða ára-
tugnum með siglfirska gaflinum.
Flestir nafngreindu hönnuðirnir hafa
aðeins teiknað 1 hús en einn sker sig
úr með 6 hús. Sá heitir Sverre A.
Tynes. Hægt er að sjá þessar teikning-
ar á kortasjá sem finna má á vef Fjalla-
byggðar. Í augum leikmanns bera
teikningar Sverre af.
Vegleg hús sem prýða bæinn
Af þeim gögnum sem liggja fyrir verð-
ur ekkert fullyrt um tilurð siglfirska
gaflsins. Þó er ljóst að Sverre A. Tynes
hefur teiknað um 17% þeirra stein-
húsa sem byggð voru á fjórða áratugn-
um og skarta siglfirska gaflinum.
Meðal verka hans eru nokkur vegleg
hús sem prýða Siglufjörð enn þann
dag í dag, svo sem hús Aage Schiöth
við Aðalgötu. Sverre er sannarlega þess
verður að Siglfirðingar haldi nafni
hans á lofti.
Sverre A. Tynes fæddist í Noregi og
kom til Siglufjarðar árið 1926 og
dvaldist þar til ársins 1939. Kona
hans var Hrefna Tynes skátahöfðingi.
Nánar verður fallað um Sverre A.
Tynes og verk hans í næsta tölublaði
Siglfirðingablaðsins.
Kjartan Stefánsson
1940 eða síðar. Þessu til við-
bótar fann ég með grúski á net-
inu myndir af 4 húsum með
siglfirska gaflinum sem hafa
verið rifin.
Þú færð Siglfirðingablaðið sent til þín vegna þess
að þú ert meðlimur í Siglfirðingafélaginu.
Allir sem fæddir eru á Siglufirði eða hafa einhvern
tímann skráð sig í félagið eða verið skráðir af
öðrum í félagið eru félagsmenn. Siglfirðingafélagið
er átthagafélag með um 2300 félagsmenn sem
búsettir eru á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum
uppákomum og sendir félagsmönnum tvö blöð
á ári, eitt að vori og annað að hausti. Félagsgjöld
í félaginu eru í dag kr. 2.000 og eru ákveðin á
árlegum aðalfundi félagsins.
Stjórn Siglfirðingafélagsins vill gjarnan hafa þig
áfram í félaginu en í ljósi nýrra reglna um
persónuvernd viljum við benda félagsmönnum á að
hægt er að segja þig úr félaginu hvenær
sem er með því að senda tölvupóst á
stjorn@siglfirdingafelagid.is.
Upplýsingarnar um félagsmenn varðveitast í gagna-
grunni félagsins og verða aldrei sendar til þriðja
aðila í markaðstilgangi.
Við vonumst eftir að hafa þig áfram
í okkar frábæra félagi!
Siglfirðingafélagið
í ljósi nýrra reglna um persónuvernd
Siglufirði. Um helmingur þeirra
er með siglfirska gaflinum. Svo
afgerandi var þessi byggingarstíll
á sínum tíma. Fjögur hús með
skreyttum gafli voru byggð fyrir
árið 1930 og fimm hús árið
20